Síða 1 af 1

Pegasus diskastæða hugmyndir?

Sent: Fim 21. Mar 2024 14:05
af traustitj
Ég er með Pegasus diskastæðu sem er hundleiðinleg. Ég er búinn að eyða vikum í support hjá Pegasus og prufa allt undir sólinni, nýja kapla, snúa þeim við og snúa öfugt. Það eru engin gögn á þessu eða neitt slíkt. Þetta er Thunderbolt stæða með plássi fyrir 6 diska.

Stundum hrekkur hann í gang og núna 99.99% ekki. Þeir telja þetta vera PSU vandamál og auðvitað selja þeir ekki PSU.

Svo. Mér er spurn. Er einhver alger snillingur hér úti sem getur kíkt á þetta PSU fyrir lítið fé?

Hin hugmyndin er klárlega, hvað getur maður gert við hlut sem var áður useless? Er að spá í eitthvað RPI dæmi eða bara eitthvað. Hugmyndir?

Re: Pegasus diskastæða hugmyndir?

Sent: Fim 21. Mar 2024 14:20
af Njall_L
Er þetta ekki bara einhver svona PSU? https://www.ebay.com/itm/152603942091?m ... media=COPY

Lítið mál að skipta um ef svo er, gæti aðstoðað þig við það ef áhugi væri

Re: Pegasus diskastæða hugmyndir?

Sent: Fös 22. Mar 2024 09:41
af traustitj
Njall_L skrifaði:Er þetta ekki bara einhver svona PSU? https://www.ebay.com/itm/152603942091?m ... media=COPY

Lítið mál að skipta um ef svo er, gæti aðstoðað þig við það ef áhugi væri


Ég get skipt um sjálfur, hafði ekki skoðað að þetta væri til.

Kúdos á winrar leyfið