Vesen með skjákort eða annað? Tölvan frýs í leikjum


Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Vesen með skjákort eða annað? Tölvan frýs í leikjum

Pósturaf Veit Ekki » Sun 29. Jan 2006 21:42

Þetta vandamál byrjaði þegar ég var með gamla skjákortið mitt ATI Radeon 7000 64MB kort og þá var tölvan að frjósa þegar ég var í leikjum. Ég bjóst við því að þetta væri skjákortið þar sem það var nú ekki gott og var ég búinn að prófa nokkra drivera en ekkert virtist virka.

Nú nýlega keypti ég mér ATI Radeon 9800XT kort notað og fraus tölvan ekki í fyrstu, svo lendi ég í því að tölvan frýs. Það gerist þannig að leikurinn frýs og svo kemur ekkert signal á skjáinn og þá verð ég að restarta tölvunni.

Ég hef prófað bæði Omega og Catalyst drivera, tölvan er ekki heit þegar ég kem við kassann en ég prófaði að taka hliðana af og snúa henni þannig að loftið kæmist betur út.
Hitinn er ekki það hár, í Speedfan er hitinn svona: 34C, 38C og 45C (þá temp1 fremst). Þessi hiti er þegar ég er ekki í neinum leik, veit ekki hvernig þetta er þegar ég er í leik.
Samt þegar ég læt hendinna upp við tölvuna, nálægt skjákortinu þá finn ég engann hita.

Þetta gerist oftast og ekkert eftir neinn ákveðinn tíma, stundum bara strax en oftast eftir svona hálftíma. Svo þegar ég prófaði að fara aftur í leikinn þegar ég var búinn að restarta eftir að hún hafði frosið, þá fraus hún nánast strax aftur eða eftir svona 5-10 mín.

Gæti þetta hugsanlega verið aflgjafinn, ég er með 300W Fortron, tegund: FSP300-60PN(PF). Samt finnst mér það skrýtið ef svo er þar sem ég var líka að lenda í því að tölvan var að frjósa þegar ég var með gamla kortið og það notar mun minna afl en þetta 'nýja'.


Er með:
AMD 64 3000+ s754n - MSI K8NM NEO FISRB - AMD64, M-ATX, nForce3 - 1GB Corsair Cl. 3 - ATI Radeon 9800XT - 300W Fortron aflgjafi.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6838
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 953
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Viktor » Sun 29. Jan 2006 22:36

Ég var með einhvernvegin svona vandamál, skipti um aflgjafa, minni og fl. minnir mig, sendi svo á endanum tölvuna til Tölvuvirkni og þá kom í ljós að þetta var einhver stýrikerfisbilun og eitthvað shit.... leynir á sér.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1711
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mán 30. Jan 2006 10:07

Frís hún bara í leikjum? Hefurðu prófað prófað Prime95 eða álíka forrit sem kynda CPU/minnið ágætlega, bara til að útiloka það?

Og svo ætti 300W að vera nóg fyrir þetta skjákort, nema þú sért með fullann kassa af öðru dóti sem tekur mikið rafmagn.

Er einhver munur á DirectX og OpenGL leikjum?




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Mán 30. Jan 2006 13:05

Stutturdreki skrifaði:Frís hún bara í leikjum? Hefurðu prófað prófað Prime95 eða álíka forrit sem kynda CPU/minnið ágætlega, bara til að útiloka það?

Og svo ætti 300W að vera nóg fyrir þetta skjákort, nema þú sért með fullann kassa af öðru dóti sem tekur mikið rafmagn.

Er einhver munur á DirectX og OpenGL leikjum?


Já hún frýs bara í leikjum.

Hef ekki prófað Prime95 en skal prófa það.

Er með 2 harða diska, 2 drif, sjónvarpskort, 2 minni þannig að aflgjafinn ætti að duga.

Hef verið í 'Medal of Honor: Pacific Assault' og 'LOTR: The Return of the King'.




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Mán 30. Jan 2006 15:33

Sko, 9800 XT er held ég gallaðasta kort sem ATI hefur sennt frá sér, eftir ákveðinn tíma einfaldlega brennur það.

Ég átti svona fyrir löngu og það brann :)
Giska á að það sé ástæðan fyrst hún frýs bara í leikjum.




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Mán 30. Jan 2006 15:45

hahallur skrifaði:Sko, 9800 XT er held ég gallaðasta kort sem ATI hefur sennt frá sér, eftir ákveðinn tíma einfaldlega brennur það.

Ég átti svona fyrir löngu og það brann :)
Giska á að það sé ástæðan fyrst hún frýs bara í leikjum.


Great. :roll:

Keypti það af muggs og hann sagði allavega að það hefði virkað hjá sér.




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Mán 30. Jan 2006 17:07

Prófaðu að dl ATI tool og gerðu artifacts scan, getur fundið það út þannig held ég, ef það koma artifacts.



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1665
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Mán 30. Jan 2006 17:54

ég notaði þetta kort í nokkra mánuði og notaði alltaf catalyst 5.2 án nokkura vandræða ...

lenti aldrei í því að frjósa eða bara í öðrum vandræðum ...




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Mán 30. Jan 2006 18:42

MuGGz skrifaði:ég notaði þetta kort í nokkra mánuði og notaði alltaf catalyst 5.2 án nokkura vandræða ...

lenti aldrei í því að frjósa eða bara í öðrum vandræðum ...


Já, ég hallast af því að þetta sé annaðhvort galli í minniskubbi eða hitavandamál.

Þú færir nú varla að selja gallað kort. :)

hahallur: Ég prófa ATI tool.

Edit: Þetta er líklegast ofhitnun á kortinu, það er mjög heitt þegar ég kem við það.

Þannig að ég var að spá í kælingu fyrir kortið. Ég á 3000 kr. inneign í Start sem ég væri til að í að nota og fann 2 kælingar hjá Start:

http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1239

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=962

Hvora myndiðu taka?



Skjámynd

fallen
ÜberAdmin
Póstar: 1320
Skráði sig: Fös 06. Feb 2004 13:09
Reputation: 8
Staðsetning: eyjar
Staða: Ótengdur

Pósturaf fallen » Mán 30. Jan 2006 21:12

Zalman.


Gaming: Intel i5-4670K @ 4.4GHz | Gigabyte G1.Sniper M5 | Gigabyte GTX 970 4GB | 16GB Crucial BallistiX DDR3 | Samsung 840 EVO 120GB | Corsair 350D | Corsair AX760 | Corsair H100i | BenQ XL2411T 144Hz
unRAID: Intel Xeon E3-1275 v6 | Supermicro X11SSL-CF | 32GB DDR4 ECC | 6x10TB IronWolfs | Samsung 850 Pro 512GB & 256GB | Fractal Node 804 | Corsair SF750 | APC Back-UPS Pro 900

Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2751
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Mán 30. Jan 2006 21:24

Iceberq = LOUD NOISES!



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1665
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Mán 30. Jan 2006 22:39

getur ekki einhver félagi þinn testað kortið fyrir þig ?

sett það í vélina hjá sér og keyrt einhverja leiki og sjá hvort hún frjósi ?




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Mán 30. Jan 2006 22:56

MuGGz skrifaði:getur ekki einhver félagi þinn prófað kortið fyrir þig ?

sett það í vélina hjá sér og keyrt einhverja leiki og sjá hvort hún frjósi ?


Hugsanlega.

Annars kíkti bróðir minn á þetta hjá mér núna áðan og hann sagði að þetta væri líklegast hitinn á skjákortinu, það væri allvega mjög heitt og fyrst þetta virkaði alveg hjá þér þá efast ég um að það sé eitthvað að kortinu annað en að það sé bara að ofhitna.

Svo hefur tölvan bara verið að frjósa í leikjum, þannig að ég held ég geti alveg útilokað að þetta séu minnin eða eitthvað annað.

Fæ mér þá örugglega þessa Zalman kælingu hjá Start og sé svo hvernig það fer. :)



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 573
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 8
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Mán 30. Jan 2006 23:01

Af hverju ekki þessa ?

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=734

Ég er með 2 skjákort með sambærilegri zalman kælingu (gylltu týpunni), þrælvirkar og engin vifta.




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Mán 30. Jan 2006 23:11

arnarj skrifaði:Af hverju ekki þessa ?

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=734

Ég er með 2 skjákort með sambærilegri zalman kælingu (gylltu týpunni), þrælvirkar og engin vifta.


Já, ég tók ekki eftir þessari.

Þyrfti þá að kaupa þessa líka með:

ZM-OP1 vifta fyrir ZM80D-HP

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=809

Note 1) If you are using a nVIDIA GeForce FX5800, an ATI Radeon 9800 Pro, a Matrox Parhelia, or a more advanced model, an Optional Fan (ZM-OP1, sold separately) must be installed.

Hvað segið þið hinir, hvora ætti ég að taka?

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=962

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=734



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2751
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Mán 30. Jan 2006 23:12





@Arinn@
Kerfisstjóri
Póstar: 1280
Skráði sig: Þri 03. Maí 2005 18:39
Reputation: 1
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf @Arinn@ » Þri 31. Jan 2006 07:18

Já ég tæki nú þessa líka en annars eru arctic silencer á tilboði í task allavega var það sagt hér á vaktinni.



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1711
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Þri 31. Jan 2006 10:01

Getur ekki haft Zalman ZM80D-HP án viftu á 9800xt korti, það verður alltof heitt. Þú getur hinsvegar sett næstum hvaða viftu sem er á þetta. Ég er td. með 92mm SilenX viftu á mínu (sem er reyndar upp í skáp núna..).

Ofan á ZM80-HP eru raufar til að festa viftuna á, þú getur farið í <byggingavöruverslun-af-eiginvali> og keypt skrúfur með 3mm (minnir mig) haus og svona 3,5-4,0sm langar sem passa inn í raufarnar og eru nógu langar til að hægt sé að festa viftuna á. Síðan keypti ég bara rær sem ég gat skrúfað með puttunum.

En, hinsvegar gæti verið nóg að bæta loftflæðið í kassanum, stock viftan á skjákortinu á að vera alveg nóg til að halda því í gangi.

Þú segist líka hafað prófað ATITool-Artifact Scan.. slökkti tölvan ekki á sér við það? Það kyndir skjákortið mjög mikið, örugglega meira en margir leikir.

Viðbót: btw, miklu auðveldara að setja Artic Cooling ATI Silencer á og það unit er sennilega með betri kælingu fyrir minnið. http://www.arctic-cooling.com/vga2.php?idx=11&data=1&disc=. Er með svona kælingu í dag (reyndar Silencer 5..) og hún virkar mjög vel en aðeins meiri hávaði heldur en var í 92mm SilenX viftunni á gamlakortinu.




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Þri 31. Jan 2006 14:03

Stutturdreki skrifaði:En, hinsvegar gæti verið nóg að bæta loftflæðið í kassanum, stock viftan á skjákortinu á að vera alveg nóg til að halda því í gangi.

Þú segist líka hafað prófað ATITool-Artifact Scan.. slökkti tölvan ekki á sér við það? Það kyndir skjákortið mjög mikið, örugglega meira en margir leikir.

Viðbót: btw, miklu auðveldara að setja Artic Cooling ATI Silencer á og það unit er sennilega með betri kælingu fyrir minnið. http://www.arctic-cooling.com/vga2.php?idx=11&data=1&disc=. Er með svona kælingu í dag (reyndar Silencer 5..) og hún virkar mjög vel en aðeins meiri hávaði heldur en var í 92mm SilenX viftunni á gamlakortinu.


Jú ég prófaði ATItool og hún fraus eftir svona 3-6 mín. prófaði þetta 3 sinnum.

Varðandi kælinguna held ég að það væri betra að ég fengi mér betri kælingu á kortið þar sem að tölvan sjálf er alls ekki heit.

Veistu hvort þessi Artic Cooling ATI Silenencer fáist á Íslandi?
En er samt þessi Zalman vifta ekki fín?



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1711
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Þri 31. Jan 2006 14:17

Zalman er mjög fín, sérstaklega ef þú setur góða viftu á, passaðu bara að viftan sé ekki of þung. En það er svoldið púsl að koma henni saman.

Hef séð bara séð Artic Cooling hjá Task.is en þeir eiga ekki akkurat þessa týpu fyrir 9800xt kortið.




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Þri 31. Jan 2006 14:24

Stutturdreki skrifaði:Zalman er mjög fín, sérstaklega ef þú setur góða viftu á, passaðu bara að viftan sé ekki of þung. En það er svoldið púsl að koma henni saman.

Hef séð bara séð Artic Cooling hjá Task.is en þeir eiga ekki akkurat þessa týpu fyrir 9800xt kortið.


Hvað meinaru sérstaklega ef sett er góð vifta á? Er þetta ekki vifta þessi hérna:

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=962 :?



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1711
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Þri 31. Jan 2006 14:31

Ah.. hélt þú værir að tala um ZM80D..

Það er örugglega ekki eins mikið púsl að koma VF700 á.




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Þri 31. Jan 2006 14:34

Stutturdreki skrifaði:Ah.. hélt þú værir að tala um ZM80D..

Það er örugglega ekki eins mikið púsl að koma VF700 á.


Já auðvitað, heita báðar Zalman eitthvað. :)

En já held að ég taki hana frekar en að vera að kaupa auka viftu á hitt.




Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Þri 07. Feb 2006 20:04

Afsakið að ég er að tvípósta.

En er loksins búinn að fá mér viftuna. Þessa hérna:

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=962

Keyrði Artifacts í ATI Tool í klst. og það kom enginn error. :D

Þannig að þetta hefur bara verið hitavandamál.

En takk fyrir öll svör. :)