Síða 1 af 1

Gefins bilað gamalt 40" sjónvarp

Sent: Mán 01. Apr 2024 23:15
af Henjo
Biluð baklýsing þannig er dekkra öðru meginn, fæst gefins gegn því að vera sótt. Er í kópavoginum. Annars fer það bara á haugana seinna í vikunni. Veit ekkert um skjái eða sjónvörp hvort það sé eithv hægt að reyna laga svona.

Það er ekki í boði að láta taka frá, eða "ætla" sækja það á morgun, eða hinn, eða eithv og koma síðan aldrei. Algjörlega óþolandi svoleiðis týpur. Sá fær sem kemur og sækir.

Re: Gefins bilað gamalt 40" sjónvarp

Sent: Þri 02. Apr 2024 07:15
af Hlynzi
Þetta er vel viðgerðarhæft, einhver á facebook gefur sig út fyrir að sækja biluð (og brotin) sjónvörp.

En skil þig algjörlega með að auglýsa gefins og fólk hreinlega mætir ekki, mig grunar samt að þetta fari um leið ef þú auglýsir það, lítil raftæki og hlutir með vott af verðmætum eru fljótir að fara, ef þú nennir ekki á sorpu.