En Castrol Edge er VW approved en ekki Mobil 1

lukkuláki skrifaði:Flottur verklisti hjá N1 en ég efast um að starfsfólkið sé látið fara eftir þessum lista það er margt á þessum lista sem er aldrei gert nema maður biðji um það sérstaklega. "þá færðu 100% rétta olíu á bílinn" ha ha ha ha ha ha ha
stefhauk skrifaði:Aðal málið er að athuga hvað hefur verið sett á bílinn hjá þér oftast gott að halda sig við sömu olíu hafi bíllinn alltaf verið þjónustaður með castrol edge hjá umboði enn núna er verið að setja mobil 1 á hann. enn já þetta á ekki að skipta máli enn oft er best að halda sig alltaf við sömu olíu.
En Castrol Edge er VW approved en ekki Mobil 1
MatroX skrifaði:
en sumt af þessu er ekki gert nema það sé einfaldlega til nýr hlutur í staðinn þar sem það tekur stundum rosalega langan tíma að skipta t.d um miðstöðvarsíðu og ef það er ekki til ný þá er enginn tilgangur að checka á henni ef þú þarft að rífa og setja saman aftur í 20min og það er ekki til ný sía,
en að checka á gírkassa og skiptingum gerði ég alltaf þegar það var hægt, en oftast á vw er það bara hreinlega ekki hægt nema vera með búnað til þess og að sem ég best veit er að n1 á ekki þann búnað
nidur skrifaði:Á meðan bíllinn minn var í ábyrgð þá lét ég umboðið alltaf sjá um þetta, en núna fer ég alltaf í Smurstöðina Klöpp ehf í vegmúla en ég bið þá bara alltaf um olíuskipti og síuskipti af því að ég sé um rest, passa samt að fá rétta olíu hjá þeim.
Mistökin hjá N1 að skipta ekki um olíusíuna eru frekar slæm og þeir ættu að skipta um hana og láta þig fá nýja olíu ókeypis.
Hvað er langt síðan þú varst með bílinn í olíuskiptum, það er mælt með því að fara árlega í skipti þótt að þú sért ekki búinn að ná km fjöldanum.
stefhauk skrifaði:ef þú nærð ekki km fjöldanum þá eiga þeir að setja dagsetningu um hvenær þú átt að koma næst.
stefhauk skrifaði:ofast er það sett í rúðuna hjá þér ef ekki mögulega í smurbókina.
Hoddikr skrifaði:MatroX skrifaði:
en sumt af þessu er ekki gert nema það sé einfaldlega til nýr hlutur í staðinn þar sem það tekur stundum rosalega langan tíma að skipta t.d um miðstöðvarsíðu og ef það er ekki til ný þá er enginn tilgangur að checka á henni ef þú þarft að rífa og setja saman aftur í 20min og það er ekki til ný sía,
en að checka á gírkassa og skiptingum gerði ég alltaf þegar það var hægt, en oftast á vw er það bara hreinlega ekki hægt nema vera með búnað til þess og að sem ég best veit er að n1 á ekki þann búnað
Þetta þykir mér merkilegt, og ástæðan fyrir því að fólk á að fara með bílana sína til umboðsaðila í þjónustuskoðanir ef það vill fá góða og rétta þjónustu sem hentar bílnum hverju sinni.
Ég er að vinna á verkstæði hjá Bílaumboði hér í Þýskalandi og er að framkvæma svona skoðanir daglega og þekki þetta mjög vel.
Ef N1 hefur ekki rétta varahluti eða starfsfólkið er ekki hæft til að framkvæma skoðunina almennilega (uppgefið frá framleiðanda) þá eiga þeir alls ekki að vera auglýsa það hvað þá rukka fyrir það. Að skipta um frjókornasíu (var hér kölluð miðstöðvarsía) er nauðsynlegt að gera reglulega (yfirleitt á 1-2 ára fresti), það er vissulega smá vinna en það er engin afsökun til að sleppa því. Að sleppa því af því það er vesen eða það er ekki til ný sía þykir mér vera ansi léleg afsökun ef þeir þykjast bjóða uppá þetta (lesist svindl)
Og auðvitað er alltaf skipt um olíusíu við olíuskipti. Og ef þú ferð ekki með bílinn til umboðsaðila í olíuskipti þá hefur þú ekki hugmynd um hvort þú ert með rétta olíu á bílnum. Bílaframleiðendur eru í samstarfi við olíufyrirtæki sem hanna vélarnar miðað við þá olíu, ef þú ert með eitthverja aðra olíu þá getur umboðið ekki tekið ábyrgð ef eitthvað kemur fyrir vélina, því þeir vita ekki hvaða olía þú varst með og hvort hún hentaði.
Best er auðvitað að fara alltaf með bílinn til umboðsaðila til að fá rétt viðhald á bílnum, eða þá kynna sér frá framleiðenda hvernig á að gera þetta og fylgjast með því að það sé gert rétt ef maður fer eitthvað annað með bílinn.
rapport skrifaði:Þetta eru kjána vinnubrögð en þú getur aldrei komið ábyrgð á rekstri bílsins þíns yfir á þjónustuaðila, þú berð ábyrgð á viðhaldi bílsins.
Ekki nema þeir hafi rukkað þig fyrir eitthvað sem þeir gerðu ekki.
Ég er ekki að draga úr því að þetta var léleg þjónusta, en þú virðist líka vera nokkuð lélegur bíleigandi (ég er það sjálfur og þekki einkennin).
En þú ert að læra í hverju þetta felst, gott hjá þér að vera vakandi fyrir ástandi bílsins, setja 1-2 litra á hann milli smurninga o.þ.h.
p.s. af hverju fórstu að tékka á olíunni, var eitthvað að?
Dúlli skrifaði:rapport skrifaði:Þetta eru kjána vinnubrögð en þú getur aldrei komið ábyrgð á rekstri bílsins þíns yfir á þjónustuaðila, þú berð ábyrgð á viðhaldi bílsins.
Ekki nema þeir hafi rukkað þig fyrir eitthvað sem þeir gerðu ekki.
Ég er ekki að draga úr því að þetta var léleg þjónusta, en þú virðist líka vera nokkuð lélegur bíleigandi (ég er það sjálfur og þekki einkennin).
En þú ert að læra í hverju þetta felst, gott hjá þér að vera vakandi fyrir ástandi bílsins, setja 1-2 litra á hann milli smurninga o.þ.h.
p.s. af hverju fórstu að tékka á olíunni, var eitthvað að?
Var að bæta við rúðuvökva þar sem maður er búin að nota þetta mikið undafarið og ákvað að skoða þetta í leiðinni svona af því bara.
Finnst þetta smá furðulegt svar hjá þér því eins og þú segir maður hefur lítið vit á þessu þess vegna þegar ég fer á smurstöð bið ég um að það sé skipt um allar síur á sama tíma og alltaf er sagt já ekkert mál.
Svo taka þeir fram að olíu sía eigi sé skipt með olíu skiptum og svo hef ég heyrt frá mjög mörgum í dag að það sé hrein heimska að skipta um olíu en ekki síu og að þetta sé ALDREI gert.
Og þetta er undir þeirra ábyrgð því maður fór með bílinn í smurningu hjá þeim og þeir taka fram að þeir fari eftir þessum lista.
rapport skrifaði:Ég sagði að þetta væri léleg þjónusta, en góður eigandi sem þekkir bílinn sinn og skoðar reikninginn hefði fattað þetta strax.
Þú fékkst í raun yfirlit yfir allt sem var gert, stóðst yfir manninum sem vann þetta og því er þín ábyrgð meiri en ef þú hefðir beðið á kaffistofunni.
Rétt eins og ef þú færð smið til að skoða íbúð með þér, þá er ábyrgð þín vegna leyndra galla sem koma í ljós orðin meiri því að ef smiður fann þá ekki þá voru þeir kannski ekki svo leyndir.
Það var eina meiningin s.s. að þú hafðir eftirlit með því hvað var gert og gerðir engar athugasemdir því að þú vissir ekki betur (ég hef verið í þeim sporum sjálfur)
En ef þeir rukkuðu þig fyrir eitthvað sem þeir gerðu ekki, þá er það allt annar handleggur, þá erum við að tala um svik.
Dúlli skrifaði:Svo til dæmis var ekki ekki mælt rafgeyminn og hann er nú sirka 3 ára gamall og ég hef lesið til að þeir endist oft í 2-3 ár.