traustitj skrifaði:GuðjónR skrifaði:Búið að hamast á fólki að fara yfir í rafmangsbíla af því að þeir eru svo umhverfisvænir, þá allt í einu eru þeir það ekki af því að þeir eru svo þungir.
Varðandi rykið, þá er oft svartaþoka frá Kollafirði fram hjá Esjumelum á steypta kaflanum, þannig að fólk má troða nagladekkjasamsæriskenningunni þangað sem sólin ekki skín.
Nagladekin eru bara örlítið brot af vandanum, það þarf að sópa göturnar.
Rafmagnsbílar eru ekki mikið þyngri en hinn almenni bíll, kannski ef þú verð saman við Hyundai i10 eða Aygo. Það eru bara flestir á stærri bílum. 1800-2000 kg er ekki teljandi þyngri bíll en almennur fjölskyldu bíll eða strumpa strætó. Magnað hvað sum vitleysa neitar að drepast
Þeir eru auðvitað smá þyngri, eins og t.d. VW UP er allt að 997kg, VW E-up, rafútgáfan er allt um 1250kg. Samkvæmt google AI eru EV 10-30% þyngri en ICE bílar að meðaltali. Sem er auðvitað milljón fallt skárra en allur útblástur og viðhald sem fylgir bensín og dísel bílum.
Frekar klikkað að hugsa að I10, lítill borgarbíll sem er keyrðu 250þús, hefur brennt yfir 20 þúsund lítrar af eldsneyti. Meðalbíl á íslandi eyðir nær tvöfalt meira en það og væri þá nærri því 40 þúsund lítrar af eldsneyti brennt. Tala nú síðan ekki um dísel bílana sem blása út algjöru eitri.
Rafmagsbílar vinna yfir bensín og dísel alla daga, og það verður góður ávinningur þegar síðasti jarðeldsneytisbíllinn verður farinn úr umferð. Ég mun eflauast deyja úr kjánahrolli ef ég þarf enn eina ferðinna en hlusta á gamlingja væla um hvað beinskiptir bílar eru einu "alvöru" bílarnir.
En auðvitað eigum við að varast stóra og þunga bíla, og það er t.d. ekkert umhverfisvænt við nýja Hummer jeppan sem er kominn á göturnar hérna sem er yfir fjögur tonn. En fyrir hvern þannig eru samt trilljón stórir land cruiserar og pickupar sem eyða 20-30 lítrum.