Síða 1 af 1
Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 14:52
af GuðjónR
Hafið þið tekið eftir hve göturnar á höfuðborgarsvæðinu eru óvenjulega skítugar? Það hefur verið þannig síðan fyrir jól. Bílar eru annað hvort tandurhreinir af þvottastöð eða svo drulluskítugir að bílnúmerin eru nánast ólæsileg.
Stundum er eins og þoka sé um hábjartan dag, sérstaklega þegar sólin skín; þá er þetta sérstaklega áberandi. Sumir segja á FB að verið sé að nota vikurblandað salt sem hálkuvörn, sel það ekki dýrara en ég keypti það. Nýlega sá ég saltdreyfibíl; úr honum sprautaðist vökvi úr 12–16 spíssum. Mig grunar að það hafi verið meira en salt í þeirri vatnsblöndu, því vatnið í hjólförunum var ljósbrúnt.
Ég keypti mánaðaráskrift á Glans og þurfti að byrja á að fara tvisvar í gegn til að ná því mesta, því þetta var svo fast á bílnum. Núna fer ég daglega, stundum tvisvar á dag, en bíllinn er oft drulluskítugur nokkrum mínútum síðar. Ég hef aldrei upplifað neitt í líkingu við þetta áður.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 14:53
af Cepheuz
Borgarlínan reddar 'essu.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 15:06
af falcon1
Það er engin að þvo göturnar!
Þetta er sama ástand hérna í Reykjanesbæ. Hef ekki séð einn einasta götuhreinsunarbíl frá því fyrir áramót. Veðrið gæti ekki hafa verið betra frá áramótum til að hreinsa göturnar. Þetta er bara vanræksla, ekkert annað.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 15:11
af rostungurinn77
https://www.visir.is/k/994f7f03-2d27-44 ... gur-byrja-Hjalti Guðmundsson skrifstofustjóri Borgarlandsins um snjómokstur í borginni
Löng saga stutt. Reykjavík þvertekur fyrir að eitthvað sé í saltinu. Líklegast rétt. Saltið er selt samkvæmt stöðlum.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 15:35
af Viktor
Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 15:43
af falcon1
ah já blessuð nagladekkinn haha...
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 15:56
af olihar
rostungurinn77 skrifaði:https://www.visir.is/k/994f7f03-2d27-44c4-9d76-3a3f300691ac-1770229548252/-veit-ekki-hvar-thessar-sogur-byrja-
Hjalti Guðmundsson skrifstofustjóri Borgarlandsins um snjómokstur í borginni
Löng saga stutt. Reykjavík þvertekur fyrir að eitthvað sé í saltinu. Líklegast rétt. Saltið er selt samkvæmt stöðlum.
Kaupa það örugglega frá Ölgerðinni…. Eða var það öfugt…
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 16:25
af rapport
Of lítil rigning... global warming...
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 16:56
af emil40
nei ég hef ekki tekið eftir þessu, ég bý í njarðvík

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 18:33
af Gemini
Viktor skrifaði:Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.
Held að þetta fari bara endalaust upp afþví þetta er líklega að telja alla númerslausu bílana líka sem er ekki skilað til niðurrifs. Margir með gommu af bílum á sér ennþá sem eru ekkert í notkun. Ég er með 5 en bara 1 á númerum

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 18:41
af GuðjónR
Ekkert nýtt að blýantsnagarar borgarinnar viti ekkert…
Enda best að vita sem minnst til að forðast ábyrgð.
Það eru 40 ár síðan ég fékk bílpróf og þetta hefur ALDREI verið svona áður! Þetta hefur ekkert með nagladekk að gera. Þetta byrjaði í nóvember að mig minnir, eftir fyrsta vetrarhretið.
Ef þeir eru ekki að blanda saltið með einhverjum skítaefnum, þá eru þeir farnir að nota önnur efni í malbiksblöndunni því þetta er ekki eðlilegt.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 18:45
af rostungurinn77
Gemini skrifaði:Viktor skrifaði:Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.
Held að þetta fari bara endalaust upp afþví þetta er líklega að telja alla númerslausu bílana líka sem er ekki skilað til niðurrifs. Margir með gommu af bílum á sér ennþá sem eru ekkert í notkun. Ég er með 5 en bara 1 á númerum

https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/ ... tisnotkun/https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/fo ... 70-thusundTalning um fjölda bíla virðist byggja á skrásettum bílum og mætti því ætla að þú ættir einn bíl.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 18:53
af Gemini
rostungurinn77 skrifaði:Gemini skrifaði:Viktor skrifaði:Það hafa bæst við 70.000 bílar á tíu árum.
Það var allt stopp í október og líklega margfalt meira af nagladekkjaryki á götunum heldur en þegar byrjar að snjóa í des-jan.
Held að þetta fari bara endalaust upp afþví þetta er líklega að telja alla númerslausu bílana líka sem er ekki skilað til niðurrifs. Margir með gommu af bílum á sér ennþá sem eru ekkert í notkun. Ég er með 5 en bara 1 á númerum

https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/ ... tisnotkun/https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/fo ... 70-thusundTalning um fjölda bíla virðist byggja á skrásettum bílum og mætti því ætla að þú ættir einn bíl.
Skrásett ökutæki eru öll ökutæki í bifreiðaskrá. Það þýðir ekki að þau séu á skráningarnúmerum og ökuhæf samt.
Ég á því 5 skrásett ökutæki en 4 af þeim eru ekki á skráningarnúmerum og flest þeirra ekki farið á götu í yfir 5 ár núna.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 19:37
af Henjo
Gæti þetta tengst að það hefur varla ringt eða snjóað í tvo mánuði? Jafnvel ef það snjóar, þá hlýtur snjórin að draga í sig drulluna, hann verður svartur og allt, og síðan er honum mokað í burtu og eða þiðnar niður drenið.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 19:54
af Manager1
Ég bý úti á landi og hérna blandar Vegagerðin salti og möl saman til að búa til hálkuvarnarefnið sem fer á bílana sem dreifa því svo um göturnar. Enda eru vegirnir hérna haugskítugir og bílarnir líka.
Það kæmi mér akkúrat ekkert á óvart ef þetta væri það sem er verið að gera í Reykjavík.
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 20:18
af Minuz1
Umferðarþungi innan höfuðborgarsvæðissins
https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/ga ... edinu-2025Helstu aksturleiðir inn/úr borginni fara úr 116k í 182k frá árunum 2005 yfir í 2025 á dag að meðaltali.
Saltið er ekki blandað, ekki nema bara með pækli(salt/vatn)
Götur eru þrifnar á nóttinni, en það eru 1-2 bílar í því eftir því sem ég hef séð.
Kv. Snjóplógsökumaður í Rvk, vinn fyrir verktaka undir Vegagerðinni
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 21:17
af olihar
“
Úrkoma í Reykjavík mældist 26,5 mm sem er innan við þriðjungur af meðalúrkomu áranna 1991-2020. Þar hefur aðeins einu sinni mælst minni úrkoma í janúar, árið 1936 þegar úrkoman mældist einungis 2,4 millimetrar.
“
Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?
Sent: Sun 08. Feb 2026 23:43
af gRIMwORLD
Það er ekki verið að blanda neinu í saltið hérna í bænum en veðráttan, skortur á almennilegri rigningu eða almennilegu roki er að skilja göturnar eftir grútskítugar. En það er ekki verið að þrifa göturnar með götusópum á veturna þvi þeir segja það pointless ef það er frost á götunum, las það í einhverju blaðaviðtali í vetur.