Síða 2 af 3

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Þri 13. Okt 2020 00:49
af littli-Jake
worghal skrifaði:Langar að forvitnast um hvort þú bjóðir upp á kóða lestur.
er með einn swift sem mig vantar að láta mögulega lesa á.


Það ætti að vera hægt. Sendi þér PM

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mið 21. Okt 2020 21:34
af pattzi
Er með 30 ára gamla toyotu sem er með endurskoðun á spindla handbremsu lausan rafgeymi og einhverjar perur.... reyndar púst líka en spurning með það ætlaði að reyna fiffa það saman einhvernveginn...


Er reyndar að bíða eftir varahlutunum frá autodoc en hef ekki tíma í þetta sjálfur núna... en vonast til að fá varahluti sem fyrst en hvað veit maður í þessu covid

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Lau 28. Jan 2023 18:04
af jonsig
Er þetta allt steindautt ?

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Lau 28. Jan 2023 19:20
af Saber
jonsig skrifaði:Er þetta allt steindautt ?


Er einnig forvitinn? Hvert á maður að fara með gamlan Aygo sem þarf öxulhosu og smá suðu í pústið til að fá skoðun?

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Lau 28. Jan 2023 20:49
af rapport
Er ekki hægt að gera flokk þar sem þræðir um business hjá vökturum eru pinnaðir?

V

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 29. Jan 2023 23:50
af littli-Jake
Hehe. Nei ekki dautt. Hef bara verið rólegur og ekkert verið að bömpa.
Ykkur er velkomið að senda mér PM.

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mán 30. Jan 2023 12:22
af chaplin
Fór með bílinn (bilaður startari) til little-jake á miðvikudagskvöldi, og fyrir hádegi daginn eftir var hann búinn græja startara og bílinn tilbúinn. Mjög sanngjarnt verð og frábær þjónusta!

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Lau 18. Mar 2023 19:27
af GuðjónR
Ég er búinn að hitta littli-Jake tvisvar á Esjumelum og þetta verð ég að segja:
Í fyrra skipti mætti ég með litla bílinn hennar múttu og hann og las af tölvunni og fann út að skynjari væri bilaður og hann var svo almenninlegur að rukka ekkert fyrir það. Í morgun fór ég svo með Skoda þar sem annar framgormurinn var brotinn og hann reddaði því á mettíma og rukkaði svo lítið fyrir að ég er ennþá með samviskubit að hafa ekki borgað meira.

Aðstaðan hans er til þvílíkrar fyrirmyndar að maður fær það á tilfinninguna að maður sé mættur með bílinn á umboðsverkstæði, grínlaust.
Drengurinn er fagmaður fram í fingurgóma og veit líklega meira um bíla en ég um tölvur.

Niðurstaða:
10/10 fyrir fagmennsku og liðlegheit.
10/10 fyrir snyrtilega og flotta aðstöðu.
10/10 fyrir sanngirni í verðlagningu.
Ég get ekki hælt honum nóg, mín eina eftirsjá er að hafa ekki farið til hans fyrir löngu með aðrar bilanir sem upp hafa komið.

Vil taka fram að ég hef engra hagsmuna að gæta, þetta er mín upplifun og skoðun og ég mæli 100% með því að ef þið eruð í vandræðum með bílinn ykkar að hafa samband við hann því ég er ekki í nokkrum vafa að þið verðið ánægð með útkomuna.

Ég er svo ánægður með hann að héðan í frá verður þessi þráður límdur og littli-Jake fær sérstakan titil!
Takk fyrir mig!

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 19. Mar 2023 11:28
af CendenZ
Ertu með aðstöðu til að ditta að pickup ?
er með gamlan pickup sem mig langar að sjæna, tundra 2008

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 19. Mar 2023 11:35
af littli-Jake
Jújú. Það er allt hægt. Sendu mér PM með frekari pælingum

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Fös 28. Apr 2023 14:09
af Dropi
11/10
Skipti um diska að aftan, handbremsubarka og bilanagreindi. Hefði kostað mig meira að reyna þetta sjálfur því ég hefði keypt og gert allt vitlaust.

Mjög ánægður!

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 11. Jún 2023 00:23
af GuðjónR

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 11. Jún 2023 09:25
af littli-Jake
Nii. Gæjarnir í húsinu fyrir neðan

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 11. Jún 2023 14:48
af GuðjónR
littli-Jake skrifaði:Nii. Gæjarnir í húsinu fyrir neðan

Fékk smá hnút í magann þegar ég sá þessa frétt.

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Fim 15. Jún 2023 00:21
af rapport
Súper þjónusta, takk fyrir mig!

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Þri 16. Jan 2024 20:44
af chaplin
Legendið tók við bílnum kl 17 og rúmlega klst seinna var hann búinn að skipta um bremsudælurnar að aftan.

10/10 þjónusta
10/10 verð
11/10 snillingur

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mið 17. Jan 2024 09:07
af Dropi
Ég fékk hann til að klappa gamla bílnum aftur í síðasta mánuði, hafði samband á fimmtudegi, hann tók við bílnum á föstudegi, bilanagreindi og lagaði á laugardegi og afhenti á sunnudegi. Algjör fagmaður frá toppi til táar.

Svo lengi sem hann tekur við mér mun ég halda áfram að hafa samband við littla jake. :happy

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mið 17. Jan 2024 21:37
af jonsig
Ríkisstyrkt stafsemi ?

Getur þú sett túrbínu,sterkari stimpla og dót í súzúkí swift 2013 ?

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mið 17. Jan 2024 23:07
af littli-Jake
jonsig skrifaði:Ríkisstyrkt stafsemi ?

Getur þú sett túrbínu,sterkari stimpla og dót í súzúkí swift 2013 ?


Já ég myndi nú alveg getað gert það. En miðað við framkomu þína sîðan ég byrjaði á þessu þá er ég ekki að fara að vinna fyrir þig.

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Fim 18. Jan 2024 17:43
af jonsig
Hva ? með að kalla þig eitthvað eða ýja að einhverju sem þú ert saklaus af ? :guy

Hver að vinna fyrir hvern ? Hugsa ég borgi einhverja ríkisstyrkina til fólks sem þarf hann ekki.

En það er nú bara allt í lagi. Ég ræð við flest í bílamálum, nema setja túrbínu í.

Lagað af CendenZ :happy

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Fim 18. Jan 2024 22:45
af KaldiBoi
jonsig skrifaði:Ríkisstyrkt stafsemi ?

Getur þú sett túrbínu,sterkari stimpla og dót í súzúkí swift 2013 ?


Myndi ekki vera eyða pening í Suzuki ](*,)
https://hringras.is/

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Fim 18. Jan 2024 23:14
af jonsig
Á nú meiri virðingu en þetta skilið. Hvað þá óbilandi súkka sem ber 0% lán og bilar EKKI.

Sîðan hvað er betra fyrir þráð á vaktinni en að hafa mig á honum að espa upp fólk.
Lagað af CendenZ :happy

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mán 22. Jan 2024 15:52
af worghal
fékk Litla-jake til að skoða volkswageinn minn, hann skipti um bremsur og bilanagreindi aðra hluti.
þetta er mín þriðja heimsókn til hans og ég er mjög ánægður með vinnubrögðin :D

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mán 22. Jan 2024 18:24
af CendenZ
Reynum nú að halda okkur mjúkum og góðum og draga úr óþarfa dónaskap.
Annars ritskoða ég bara og bæti við
Lagað af CendenZ :happy

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mán 22. Jan 2024 22:29
af selur2
Sæll Litli Jake

Skipti um stýrismaskínu í Swift 2008 ?
er með maskínuna ?
áætlaður kostnaður ?