Síða 1 af 1

Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Lau 23. Okt 2021 17:17
af Torrini24
Hef séð nokkra þannig en er það í rauninni löglegt. Er á Amerískum bíl og platan framan á er forljót.

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Lau 23. Okt 2021 17:18
af gunni91
Nei, ekki löglegt að hafa í rúðunni.

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Lau 23. Okt 2021 17:19
af Torrini24
gunni91 skrifaði:Nei, ekki löglegt að hafa í rúðunni.

Dem ok, takk fyrir félagi

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Lau 23. Okt 2021 17:21
af danniornsmarason
Torrini24 skrifaði:Hef séð nokkra þannig en er það í rauninni löglegt. Er á Amerískum bíl og platan framan á er forljót.

ólöglegt að hafa hana í glugganum, en það er hægt að fá límmiða sem númeraplötu, kanski það er skárra en platan? þarf samt eitthvað leyfi fyrir því minnir mig

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Sun 24. Okt 2021 02:02
af Danni V8
Hvað sem þú gerir, ekki setja plötuna á einhvern kjánalegan stað eins og í grillið neðst á stuðaranum eða í dráttaraugað eða eitthvað þannig. Það eru allt ógeðslega ljótar lausnir.

Ef þú neyðist til að setja plötu, þá er lang best í vondri stöðu að setja hana bara þar sem hún á að vera.

En hef séð marga sem sleppa plötunni og komast upp með það árum saman svo lengi sem þeir eru ekki að keyra eins og bjánar útum allar trissur.

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Sun 24. Okt 2021 02:16
af ChopTheDoggie
Það hefur allavega aldrei verið neitt vesen hjá mér þegar að ég þurfti að vera með plötuna í glugganum

danniornsmarason skrifaði:
Torrini24 skrifaði:Hef séð nokkra þannig en er það í rauninni löglegt. Er á Amerískum bíl og platan framan á er forljót.

ólöglegt að hafa hana í glugganum, en það er hægt að fá límmiða sem númeraplötu, kanski það er skárra en platan? þarf samt eitthvað leyfi fyrir því minnir mig

Hvar er hægt að fá svona límmiða?

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Sun 24. Okt 2021 09:00
af urban
Danni V8 skrifaði:Hvað sem þú gerir, ekki setja plötuna á einhvern kjánalegan stað eins og í grillið neðst á stuðaranum eða í dráttaraugað eða eitthvað þannig. Það eru allt ógeðslega ljótar lausnir.

Ef þú neyðist til að setja plötu, þá er lang best í vondri stöðu að setja hana bara þar sem hún á að vera.

En hef séð marga sem sleppa plötunni og komast upp með það árum saman svo lengi sem þeir eru ekki að keyra eins og bjánar útum allar trissur.

nákvæmlega, það má vel vera að númeraplata framan á bíl sé ljótt, en það er enn ljótara að ætla að fela hana einhver staðar annar staðar en á þeim stað sem að hún á að vera á, hún á að sjást, þannig að ef að hún er á bílnum, þá er hún ljót, það hjálpar ekkert að vera ljótari en allir hinir sem að setja hana bara á "réttan" stað

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Sun 24. Okt 2021 12:42
af Einar Ásvaldur
ChopTheDoggie skrifaði:Það hefur allavega aldrei verið neitt vesen hjá mér þegar að ég þurfti að vera með plötuna í glugganum

danniornsmarason skrifaði:
Torrini24 skrifaði:Hef séð nokkra þannig en er það í rauninni löglegt. Er á Amerískum bíl og platan framan á er forljót.

ólöglegt að hafa hana í glugganum, en það er hægt að fá límmiða sem númeraplötu, kanski það er skárra en platan? þarf samt eitthvað leyfi fyrir því minnir mig

Hvar er hægt að fá svona límmiða?

Merkistofan gerir allavega miða fyrir mótorhjól gætir fengið þá til að gera það eða Aron Ómars (6ixty6ix grapix)

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Sun 24. Okt 2021 13:31
af Black
Ég var einusinni stoppaður fyrir að vera með plötuna í frammrúðunni, Fékk sekt fyrir það og boðun í skoðun útaf ég var með of hávært pústkerfi.
Setti plötuna á stuðarann og fór í skoðun. Fékk akstursbann og endaði á að fá lánað pústkerfi til að fá skoðun á bílinn.
Þetta var dýrt vesen fyrir mig á þeim tíma. Með sektum og öllu skoðunarveseninu. :face
coolstorybro
En ef þú vilt hafa plötu sem er auðvelt að taka af t.d fyrir myndir og svona þá mæli ég með límdum frönskum rennilás :happy

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Sun 24. Okt 2021 23:39
af Minuz1
Black skrifaði:Ég var einusinni stoppaður fyrir að vera með plötuna í frammrúðunni, Fékk sekt fyrir það og boðun í skoðun útaf ég var með of hávært pústkerfi.

Hver var sektin fyrir að vera ekki með númeraplötuna?

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Þri 26. Okt 2021 11:18
af urban
Minuz1 skrifaði:

Það er 20 þús kall í dag.
https://sektir.logreglan.is/

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Þri 26. Okt 2021 15:41
af Nariur
Þessi virðist komast upp með límmiða
Mynd

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Þri 26. Okt 2021 16:30
af danniornsmarason
ChopTheDoggie skrifaði:Það hefur allavega aldrei verið neitt vesen hjá mér þegar að ég þurfti að vera með plötuna í glugganum

danniornsmarason skrifaði:
Torrini24 skrifaði:Hef séð nokkra þannig en er það í rauninni löglegt. Er á Amerískum bíl og platan framan á er forljót.

ólöglegt að hafa hana í glugganum, en það er hægt að fá límmiða sem númeraplötu, kanski það er skárra en platan? þarf samt eitthvað leyfi fyrir því minnir mig

Hvar er hægt að fá svona límmiða?

Mig minnir að límmiðinn þurfi að vera frá umferðastofu/samgöngustofu eða eitthvað álíka en það gæti líka verið að það þurfi bara sér leyfi fyrir því frá umferðastöfu/samgöngustofu

hér er annar með svona límmiða
síðan hef ég líka séð ehv porsche með svona
Mynd

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Mið 27. Okt 2021 09:17
af Toy-joda
danniornsmarason skrifaði:
Mynd

Mig vantar 2 svona. Færanlegur lyfta fyrir Land Cruiser. :happy

Re: Mega númerplötur að framan vera í glugganum?

Sent: Mið 27. Okt 2021 17:50
af Minuz1
Nariur skrifaði:Þessi virðist komast upp með límmiða
Mynd

Það er alls ekki víst að aðillinn sé að komast upp með þetta, gæti vel verið að aðillinn kyngi bara sektinni og hagi sér almennilega í umferðinni þannig að lögreglan hafi ekkert annað um málið að segja og láti það duga að rukka bara 20 þús en ekki kyrrsetja bifreiðina.

Eða beri fyrir sig umferðarlög " 1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að vernda líf og heilsu vegfarenda með auknu umferðaröryggi þar sem jafnræðis er gætt milli vegfarenda, óháð samgöngumáta, og tillit tekið til umhverfissjónarmiða við skipulagningu umferðar."

Og bendir síðan á vinnuvélar í umferðinni, sem þverbrjóta þetta.