Síða 1 af 1

Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 12:07
af falcon1
Ég var að lenda í því að pústið losnaði eitthvað og hangir bara undir bílnum (Toyota Yaris) en snertir ekki jörðu. Heyrist í bílnum svona eins og hljóðkútur hafi farið. Ég er með bílinn í Reykjanesbæ og þori varla að keyra bílinn í þessu ástandi þannig að spurningin er hvort það sé best að fara í Toyota og láta þá gera við eða eitthvað annað verkstæði í Reykjanesbæ?
Bíllinn er keyrður rúmlega 160þ km (árgerð 2012) og ég vil að viðgerðin dugi helst út líftíma bílsins.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 12:17
af Ghost
Ef þú hefur tök á eða þekkir einhvern sem á tjakk og búkka þá geturðu hengt pústið upp og komið honum á verkstæði eg þú treystir þér ekki að keyra hann svona. Flest verkstæði ættu að ráða við að laga þetta.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 12:48
af rapport
Þetta er ekki eitthvað sem umboðið vill fiffa ódýr.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 13:23
af Mossi__
Getur reddað þér með vírherðatré (spotti bráðnar/brennur við hitann).

Source- gamli bíllinn minn (í lengri tíma en ég kæri mig um að viðurkenna).

Umboðið mun gera þetta dýrara en aðrir, og nær allir bílakallar geta reddað þessu :)

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 14:04
af appel
Púst hjá Einari á smiðjuvegi kóp. Alltaf farið þangað.
https://en.ja.is/pust/

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 15:38
af AsgeirM81
Pústþjónusta Bjarkars að Hrannargötu 3, Reykjanesb, ætti að geta reddað þessu fyrir þig ódýrara en umboðið.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 16:37
af pattzi
Þú getur örugglega alveg keyrt bílinn..

En best að fara bara á pústverkstæði

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Sun 28. Ágú 2022 21:28
af Sinnumtveir
Það myndi ekki flögra að mér að fara í umboðið til að fá leyst úr svona máli.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Mán 29. Ágú 2022 17:31
af Peacock12
Já en... þú færð ókeypis súkkulaðistykki hjá Toyota!

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Mán 29. Ágú 2022 22:54
af falcon1
AsgeirM81 skrifaði:Pústþjónusta Bjarkars að Hrannargötu 3, Reykjanesb, ætti að geta reddað þessu fyrir þig ódýrara en umboðið.

Ég endaði á að fara þangað. :) Fékk snögga og góða þjónustu á sanngjörnu verði.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Þri 30. Ágú 2022 09:26
af zedro
falcon1 skrifaði:Ég var að lenda í því að pústið losnaði eitthvað og hangir bara undir bílnum (Toyota Yaris) en snertir ekki jörðu. Heyrist í bílnum svona eins og hljóðkútur hafi farið.

Einmitt að lenda í því sama með Toyota Aygo! Kom gat á pústið í einni beygjunni sem endaði með að rörið fór í sundur eftir nokkra daga, aftari kúturinn endaði í jörðinni :crazy Festi hann uppi með ströppum til að komast leiða minna, náði ekki að losa hann undann.
falcon1 skrifaði:Ég er með bílinn í Reykjanesbæ og þori varla að keyra bílinn í þessu ástandi þannig að spurningin er hvort það sé best að fara í Toyota og láta þá gera við eða eitthvað annað verkstæði í Reykjanesbæ?

Skella sér undir hann með verkfærasett og sjá hvort þú getir losað hann undann ef hann er farinn í sundur eða festa hann til bráðabyrgða til að komast á pústverkstæði. Myndi forðast Umboð þar sem þau kosta yfirleitt drjúgann skilding.
falcon1 skrifaði:Bíllinn er keyrður rúmlega 160þ km (árgerð 2012) og ég vil að viðgerðin dugi helst út líftíma bílsins.

Held að það sé full mikil bjartsýni að vilja fá púst sem endist til langtíma. Mín reynsla á Aygo'num er allavega púst viðhald 2017, 2019 og núna 2022, bíllinn keyptur 2016 þá 10ára gamall.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Þri 30. Ágú 2022 14:14
af dreamdemon
hef farið með bílin minn á verkstæði hjá Toyota í kauptúni og fékk bílin tjónaðan í öll skiftin.
get allavega bara mælt með að skoða bílin 100% eftir að taka við honum frá þeim :) var nokkur skiftin sem þeir voru bara að fela skemdir eftir sig og reyna komast hjá því að laga.

Re: Toyota eða pústverkstæði?

Sent: Þri 30. Ágú 2022 22:06
af Sinnumtveir
dreamdemon skrifaði:hef farið með bílin minn á verkstæði hjá Toyota í kauptúni og fékk bílin tjónaðan í öll skiftin.
get allavega bara mælt með að skoða bílin 100% eftir að taka við honum frá þeim :) var nokkur skiftin sem þeir voru bara að fela skemdir eftir sig og reyna komast hjá því að laga.


Vó, Vóóóó!!!