Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Athvarf handlagna heimilisnördsins

Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Snorrmund » Mán 11. Des 2023 15:41

Ég er með seríu á jólatrénu hjá mér sem er á 31V dc. Hún hefur þótt vera full Björt og mig langar að reyna að dimma hana eitthvað. Var að spá í að prufa Shelly Rgbw2 en hámarks spenna á honum er 24V. Dettur ykkur eitthvað í hug sem væri þægilegt að tengja inn í til að dimma hana smá?




skrani
Græningi
Póstar: 27
Skráði sig: Fim 10. Okt 2013 00:41
Reputation: 8
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf skrani » Þri 12. Des 2023 19:30

Ég reikna með að þetta sé 31V DC, þar sem þú varst að spá í að setja Shelly.

Þannig að það ætti að vera hægt að setja bara díóður í röð, hver díóða lækkar spennuna um 0.7V
Passa bara að díóðurnar séu nægilega öflugar til að höndla strauminn.

Einnig er hægt að setja viðnám (hvort sem serían er AC eða DC) .. það er kannski meira bras, að finna réttu stærðina, bæði viðnámið og aflið sem viðnámið þarf að þola.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4979
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 873
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf jonsig » Þri 12. Des 2023 19:40

skrani skrifaði:Ég reikna með að þetta sé 31V DC, þar sem þú varst að spá í að setja Shelly.

Þannig að það ætti að vera hægt að setja bara díóður í röð, hver díóða lækkar spennuna um 0.7V
Passa bara að díóðurnar séu nægilega öflugar til að höndla strauminn. Led hefur "fasta" forspennu sem þarf að haldast rétt, allt undir henni fer allt í rugl.

Einnig er hægt að setja viðnám (hvort sem serían er AC eða DC) .. það er kannski meira bras, að finna réttu stærðina, bæði viðnámið og aflið sem viðnámið þarf að þola.


Vandamálið við díóðurnar er spennufallið yfir þær myndar hita sem þarf að fara eitthvað, jafnvel þetta sé ekki hár straumur á seríunni. Síðan er spennustýring algerlega gagnslaus á LED. (Raðtengja díóður til að lækka spennu).

Auðveldasta stýringin væri PWM mótun. (t.d. algert núbba project með arduino + mosfet eða ódýr pwm reglunarbúnaður)
Flottasta stýringin væri straumstýring, en það væri dýrasti valmöguleikinn.

Veit ekki hvernig shelly virkar, en það virkar engin venjuleg dimming function á þetta, því cut-on /cut-off er ætluð fyrir AC álag eins og glóperur.
Síðast breytt af jonsig á Þri 12. Des 2023 19:42, breytt samtals 2 sinnum.




Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Hizzman » Þri 12. Des 2023 20:28

ef þú ert fiktari geturðu búið til straumgjafa með einum bjt og 3 mótstöðum.




Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Snorrmund » Mið 13. Des 2023 07:17

Takk fyrir öll svörin. Ég var svona meira að spá í einhverju sem væri semi einfalt og fljótlegt að græja, tíminn frekar takmarkaður rétt fyrir jól. Svo væri stór kostur ef þetta væri stillanlegt. En En serían er jú 31V DC. Ég á einn 24V spennugjafa og led borða stýringu held að fyrsta skref verði að prufa að tengja það við seríunni og gá hvað gerist :evillaugh



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4979
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 873
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf jonsig » Mið 13. Des 2023 07:21

Snorrmund skrifaði:Takk fyrir öll svörin. Ég var svona meira að spá í einhverju sem væri semi einfalt og fljótlegt að græja, tíminn frekar takmarkaður rétt fyrir jól. Svo væri stór kostur ef þetta væri stillanlegt. En En serían er jú 31V DC. Ég á einn 24V spennugjafa og led borða stýringu held að fyrsta skref verði að prufa að tengja það við seríunni og gá hvað gerist :evillaugh


Gerist örugglega ekkert sniðugt. Ég reyndi amk að gefa þér pointers.




Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Snorrmund » Mið 13. Des 2023 07:50

jonsig skrifaði:
Snorrmund skrifaði:Takk fyrir öll svörin. Ég var svona meira að spá í einhverju sem væri semi einfalt og fljótlegt að græja, tíminn frekar takmarkaður rétt fyrir jól. Svo væri stór kostur ef þetta væri stillanlegt. En En serían er jú 31V DC. Ég á einn 24V spennugjafa og led borða stýringu held að fyrsta skref verði að prufa að tengja það við seríunni og gá hvað gerist :evillaugh


Gerist örugglega ekkert sniðugt. Ég reyndi amk að gefa þér pointers.


Já þetta er tilraunirnar virði fyrir mig, á þetta til og tekur 5 mín að tengja :) held að hitt sé full mikið bras. En afhverju ætti þetta ekki að virka ? Stýring sem er ætluð til að stýra led borða og hægt að dimma og stilla afhverju virkar hún ekki á led seríu?




KristinnK
Gúrú
Póstar: 552
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 74
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf KristinnK » Mið 13. Des 2023 09:18

Snorrmund skrifaði:Já þetta er tilraunirnar virði fyrir mig, á þetta til og tekur 5 mín að tengja :) held að hitt sé full mikið bras. En afhverju ætti þetta ekki að virka ? Stýring sem er ætluð til að stýra led borða og hægt að dimma og stilla afhverju virkar hún ekki á led seríu?


Því að samband straums og spennufalls yfir LED/ljóstdíóðu lítur svona út:

Mynd

Það þýðir að nánast sama hver straumurinn í rásinni er er spennufallið yfir ljósdíóuðuna hið sama. Serían sem þú ert með er með einhvern vissan fjölda ljósdíóða sem eru raðtengdar saman (plús svo að margar þannig raðtengdar einingar eru hliðtengdar saman til að ná í heildarfjölda ljósanna), líklega tíu stykki. Spennan þarf því að vera að lágmarki nógu há til þess að vera hærri en tíu sinnum þessi spenna yfir hverja ljósdíóðu. Hvítar ljósdíóuður eru með spennu um 3V, þannig ef spennan sem spennugjafinn gefur frá sér er lægri en 10*3V = 30V þá mun enginn straumur vera í rásinni og ekki kvikna á ljósunum.


Intel Core i7-4770 | 2x8GB DDR3 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580


Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Hizzman » Mið 13. Des 2023 09:56

geturðu mælt straum og spennu þegar kveikt er á seríunni? Mögulega er spennugjafinn í reynd straumgjafi.




Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Snorrmund » Mið 13. Des 2023 11:38

KristinnK skrifaði:
Snorrmund skrifaði:Já þetta er tilraunirnar virði fyrir mig, á þetta til og tekur 5 mín að tengja :) held að hitt sé full mikið bras. En afhverju ætti þetta ekki að virka ? Stýring sem er ætluð til að stýra led borða og hægt að dimma og stilla afhverju virkar hún ekki á led seríu?


Því að samband straums og spennufalls yfir LED/ljóstdíóðu lítur svona út:

Mynd

Það þýðir að nánast sama hver straumurinn í rásinni er er spennufallið yfir ljósdíóuðuna hið sama. Serían sem þú ert með er með einhvern vissan fjölda ljósdíóða sem eru raðtengdar saman (plús svo að margar þannig raðtengdar einingar eru hliðtengdar saman til að ná í heildarfjölda ljósanna), líklega tíu stykki. Spennan þarf því að vera að lágmarki nógu há til þess að vera hærri en tíu sinnum þessi spenna yfir hverja ljósdíóðu. Hvítar ljósdíóuður eru með spennu um 3V, þannig ef spennan sem spennugjafinn gefur frá sér er lægri en 10*3V = 30V þá mun enginn straumur vera í rásinni og ekki kvikna á ljósunum.



Já já auðvitað :oops: ætli ég reyni ekki að gleyma þessari hugmynd og finna mér heppilegri seríu bara :D




Hizzman
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Hizzman » Mið 13. Des 2023 12:10

ef spennugjafin er straumgjafi gæti verið auðvelt gera breytingar til að lækka strauminn, líklega þarf bara ð skipta einni mótstöðu út.




orn
Nörd
Póstar: 133
Skráði sig: Þri 18. Okt 2016 10:46
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf orn » Mið 13. Des 2023 15:17

Pæling til viðbótar; þú gætir líka bara tekið low-tech lausn á þetta og málað / spreyjað yfir díóðurnar. Var með lítið jólaþorp sem var fullbjart (og fullhvítt) fyrir minn smekk. Ég notaði litað naglalakk á díóðurnar og nú er það mjög kósí.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4979
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 873
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf jonsig » Mið 13. Des 2023 16:44

Pwm stýring er praktískasta lausnin..




Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf Snorrmund » Mið 13. Des 2023 20:19

Hizzman skrifaði:ef spennugjafin er straumgjafi gæti verið auðvelt gera breytingar til að lækka strauminn, líklega þarf bara ð skipta einni mótstöðu út.


Þetta er bara einn lítill plastkubbur, þarf líklegast að brjóta hann þá upp.

orn skrifaði:Pæling til viðbótar; þú gætir líka bara tekið low-tech lausn á þetta og málað / spreyjað yfir díóðurnar. Var með lítið jólaþorp sem var fullbjart (og fullhvítt) fyrir minn smekk. Ég notaði litað naglalakk á díóðurnar og nú er það mjög kósí.


Já, það væri svosem séns, en serian má alveg vera svolsið Björt nema kannski þegar að það á að hafa kósý og horfa á tv.. leiðinlega erfitt að stilla birtuna til.


jonsig skrifaði:Pwm stýring er praktískasta lausnin..


Já alveg örugglega, held ég sé bara ekki nógu flinkur til að finna til hvað þarf að panta og hvaðan og vera búinn að græja fyrir jól :megasmile þess vegna var draumurinn að finna eitthvað plug and play dót bara.




skrani
Græningi
Póstar: 27
Skráði sig: Fim 10. Okt 2013 00:41
Reputation: 8
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Dimmer fyrir 31V jóla seríu.

Pósturaf skrani » Fim 14. Des 2023 16:52

Kannski er bara ódýrast að kaupa dimmanlega seríu :-), kostar minna en shelly

https://byko.is/vara/seria-240ljosa-led ... mer-297466

Eða all in og fara í twinkly...frá 8000 kalli og upp úr...
https://byko.is/vara/twinkly-jolaseria- ... 0lj-319031