Lúxusnet Tals

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf Frantic » Sun 27. Okt 2013 21:17

AntiTrust skrifaði:FYI, bandvíddarnotkun við Netflix streymi:

SD: 0.3-0.7GB per klst.
HD/3D (720p): 1-2.8GB per klst
SuperHD (1080p): 2.8-4.7GB per klst.

*Læk*




TraustiSig
Geek
Póstar: 809
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 12:46
Reputation: 4
Staðsetning: Now back to the bottom
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf TraustiSig » Mán 28. Okt 2013 12:26

Frantic skrifaði:
Revenant skrifaði:Er ekki líklegt að fólk muni sjá stökk í utanlandsdownload-i þar sem allt efni (youtube, akamai aðrir CDN) kemur allt erlendis frá í staðin fyrir að nota íslensku speglana.

Mögulega er þetta plott til að fólk noti miklu meira download magn og þurfi því að borga miklu meira.

Mér finnst líklegra að það sé bara verið að mæta vöntun á þessari þjónustu á íslenskum markaði.
Erlent download er líklegast bara plús. :money
Annars hef ég alltaf gaman af góðum samsæriskenningum :)


Sjálfsögðu mun erlent niðurhal aukast ef fólk fer í meira mæli að sækja sér efni til útlanda.

Svipað og gerðist þegar að erlendar skráardeilisíður spruttu upp fyrir áratug. Held að fjarskiptafyrirtækin séu ekkert að hata download menninguna :)


Now look at the location

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf tlord » Mán 28. Okt 2013 12:48

tal kom á sama tíma með 300GB pakka sem kostar aðeins 13þ




wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf wICE_man » Mán 28. Okt 2013 16:01

Það er e.t.v. kominn tími á að fólk átti sig á hversu brengluð hugsun er á bak við einkaleyfa og höfundarréttarlöggjöf í heiminum í dag.

Ímyndum okkur að Newton hefði haft færi á að fá einkaleyfi fyrir notkunn á uppgötvunum hans í eðlisfræði til 70 ára. Það er tvennt sem hefði gerst, hann hefði orðið margfalt ríkari og vísinda og tækniþróun í heiminum hefði tafist um áratugi og jafnvel árhundruð til lengri tíma litið vegna veldislegrar aukningar í þekkingu sem varð í framhaldi af uppgötvunum hans rétt eins og mörgum öðrum uppgötvunum á sviði tækni og vísinda. Hér er ég reyndar að gera ráð fyrir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir dreifingu á hugmyndum hans nema gegn endurgjaldi sem við vitum að er ekki hægt með öllu.

Prinsípið er þó til staðar. Einkaleifa og höfundarréttarlög koma í veg fyrir eðlilega flæðandi þróun á sviði tækni og lista í nafni hagsmuna þeirra sem þau eiga að "verja". Hér set ég þetta orð innan gæsalappa þar sem að þeir viðskiptahagsmunir sem hún "ver" voru ekki til fyrir daga löggjafarinnar og því er hún í raun að skapa hagsmunina og viðhalda þeim.

Sú tvöfeldni sem hefur verið látin viðgangast í þessum geirum hefur ekki hjálpað nýsköpun heldur búið til enn einn kerfis-spenann sem útvaldir aðilar leggjast á. Viðkomandi aðilar eru ófrávíkjanlega sannfærðir um nauðsin sína og hlaupa upp til handa og fóta í hvert sinn sem sértilbúnum hagsmunum þeirra er ógnað. Þeir eru þó þegar grant er skoðað óþarfir með öllu og eru því að veita ósjálfbæra þjónustu gegn kostnaði á samfélagið bæði í tíma og peningum. Þeim tíma og fjármunum hefði betur verið varið í eitthvað eins og tækniþróun eða listsköpun!

Þetta sér maður mjög fljótt ef maður leifir sér að spyrja grundvallaspurninga. Spurninga eins og: Hver er tilgangur laganna? Eru eðlilegt að lög gangi gegn öðrum lögum? Er eðlilegt að lög séu sett til að tryggja gróða fyrir tiltekna aðila?

Höfundarréttarlög ganga nefnilega þvert á samkeppnislög í eðli og framkvæmd. Við höfum séð þörf fyrir að koma í veg fyrir að aðilar sem eru fyrir á markaði geti komið í veg fyrir innkomu nýs aðila á markaðinn með tímabundnum aðgerðum. Höfundarréttarlög um víðan heim koma í veg fyrir að aðilar eins og Netflix eigi auðvelt aðgengi að nýjum mörkuðum eins og Íslandi þar sem þeir sem eru fyrir eru varðir með lögum.

Annar staður þar sem klárt markaðssamráð á sér stað er í þróun og útfærslu afritunarvarna. Hér hafa aðilar um víða veröld tekið sig saman um að takmarka framboð (kallast á góðri íslensku markaðsmisnotkun) til að auka gróða sinn á heimsvísu. Þetta samráð hefur í för með sér hærra verð á efni sem viðkomandi aðilar stýra (þó það sé bara að takmörkuðu ráði) en jafnframt eykur þetta framleiðslukostnað á tækjum og flækir staðla að óþörfu, eykur þörf á vinnslugetu og þar með orkunotkunn allt til þess að kreista út meiri gróða án þess að bjóða betri vöru eða þjónustu. Þetta kallar jafnframt á vopnakapphlaup sem óheyrilegur fjöldi vinnustunda fer í þar sem samfélagið finnur leið í kringum viðkomandi varnir sem síðan eru endurbættar o.s.fv.. Þetta væri í öllum öðrum tilfellum ólöglegt samráð og afleiðingin væru svimandi sektir til að tryggja að menn reyndu slíkt ekki aftur.

Það er því kominn tími til að við tökum á þessari vitleysu og ég tel að það sé aðeins tímaspursmál hvenær samfélagið rís upp gegn þessum ólögum og krefst þess að stjórnvöld hætti þessari gerræðislegu lagasetningu og fari aftur að setja lög sem ganga jafnt yfir alla.


Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla :)
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal


playman
Vaktari
Póstar: 2000
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 72
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf playman » Mán 28. Okt 2013 22:55



CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9


capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf capteinninn » Þri 29. Okt 2013 09:41

http://www.visir.is/aetla-ad-kaera-tal- ... 3710299945

Hversu líklegt er að þetta gangi í gegn fyrir dómstólum?



Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1687
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf Stutturdreki » Þri 29. Okt 2013 09:52

hannesstef skrifaði:http://www.visir.is/aetla-ad-kaera-tal-og-flix-til-logreglunnar/article/2013710299945

Hversu líklegt er að þetta gangi í gegn fyrir dómstólum?

Í sögulegu samhengi, frekar líklegt. En maður getur vonað.

Þetta er samt er svona álíka rökrétt að fara í mál við Eimskip því þeir bjóða upp á leið fyrir mig að kaupa höfundarvarið efni erlendis og flytja það heim.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16311
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf GuðjónR » Þri 29. Okt 2013 09:54

hannesstef skrifaði:http://www.visir.is/aetla-ad-kaera-tal-og-flix-til-logreglunnar/article/2013710299945

Hversu líklegt er að þetta gangi í gegn fyrir dómstólum?


Þetta skemmir þá samúð sem þeir höfðu hjá "sumu" fólki varðandi ólöglegt niðurhal, þegar þeir ráðast á fullkomlega löglegar þjónustur.
Í hvaða lögum stendur að það sé ólöglegt að bjóða upp á erlendar IP tölur? Tal.is er þokkalega virt fyrirtæki og færi ekki að bjóða uppá ólöglega þjónustu og þannig skapa sér skaðabótaábyrgð.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6317
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 445
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf worghal » Þri 29. Okt 2013 09:59

bara ef þeir hjá smáís tæku þennan helvítis drumb út úr rassgatinu á sér og leifi okkur að sækja í LÖGLEGAR þjónustur sem við viljum borga fyrir.
tónlistarniðurhal hefur snar lækkað eftir að spotify kom til landssins, væri ekkert nema gott ef netflix kæmi líka.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5547
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1035
Staða: Tengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf appel » Þri 29. Okt 2013 10:01

hannesstef skrifaði:http://www.visir.is/aetla-ad-kaera-tal-og-flix-til-logreglunnar/article/2013710299945

Hversu líklegt er að þetta gangi í gegn fyrir dómstólum?


Ég skil ekki hví SMÁÍS fer ekki í málsókn gagnvart Netflix fyrir að veita þessa "ólöglegu" þjónustu? Tal er varla síðasti aðilinn til að benda fólki á að internetið er stærra en Ísland. Held að þeir bara hafi ekki efni á því að fara í málsókn í BNA á hendur Netflix, slíkt er dýrt.


Að vissu leyti hef ég samúð með SMÁÍS, því jú aðildarfélög þess eru að borga fyrir dreifingarréttinn á Íslandi, en sjá svo að hann virkar ekki útaf þjónustum á internetinu sem veita sama efni.
Þetta er ekki það sama og að versla sé vélsög á Ebay en ekki í Byko þó Byko sé að selja þá sömu tegund af vélsög. Byko er nefnilega ekki að borga framleiðandanum fyrir "einkaréttinn" á að selja íslendingum þessa vélsög. Heldur kaupi Byko bara ákveðinn fjölda af vélsögum og endurselur.
En í tilfelli myndrétthafa á Íslandi þá þurfa þeir að borga ákveðna upphæð fyrir að kaupa dreifingarréttinn fyrir Ísland, svo borga þeir held ég eintakagjald eða álíka.

Þetta er bara úrelt módel, og ósanngjarnt. Internetið brýtur það, og það mun aðeins halda áfram að eyðileggja þetta módel. Á ákveðnum tímapunkti er enginn gróði í því lengur að dreifa efni á Íslandi, þá hverfa allir þessir aðilar og það sem eftir situr verður í raun bara RÚV og Netflix.


*-*

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf ManiO » Þri 29. Okt 2013 10:02

Annar lögmaður sem Fréttablaðið ræddi við sagði mögulegt að fyrirtækin séu brotleg gegn lögum þar sem forsvarsmenn þeirra viti að þjónustan sem þeir bjóða upp á verði notuð til þess að nálgast efnisveitur á ólöglegan hátt.


Þetta er það sem að lögmenn Smáíss munu reyna að sýna fram á, þ.e.a.s. að nálgast DNS veitu utan landsteina Íslands sé ólöglegt í þeim tilgangi að nálgast efni sem að lokað er annars.

Persónulega finnst mér að framleiðendur á íslensku myndefni ættu að taka þessa barráttu upp í sína arma og hvetja Smáís til að fara út í samningaviðræður við straumþjónustur erlendis til að bjóða upp á íslenskt efni. Fáránlegt að samtök rétthafa á Íslandi sé nánast eingöngu að huga að réttindum þeirra sem að kaupa útgáfurétt og virðast fyrir almenningi hunsa þá sem að skapa efni.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16311
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf GuðjónR » Þri 29. Okt 2013 10:09

Það er búið að gagnrýna fólk út í eitt fyrir að "stela" efni, svo kemur leið þar sem fólk getur "keypt" efni og þá er reynt að stoppa það!
Hvað er í gangi?



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf ponzer » Þri 29. Okt 2013 10:30

ManiO skrifaði:
Annar lögmaður sem Fréttablaðið ræddi við sagði mögulegt að fyrirtækin séu brotleg gegn lögum þar sem forsvarsmenn þeirra viti að þjónustan sem þeir bjóða upp á verði notuð til þess að nálgast efnisveitur á ólöglegan hátt.


Þetta er það sem að lögmenn Smáíss munu reyna að sýna fram á, þ.e.a.s. að nálgast DNS veitu utan landsteina Íslands sé ólöglegt í þeim tilgangi að nálgast efni sem að lokað er annars.

Persónulega finnst mér að framleiðendur á íslensku myndefni ættu að taka þessa barráttu upp í sína arma og hvetja Smáís til að fara út í samningaviðræður við straumþjónustur erlendis til að bjóða upp á íslenskt efni. Fáránlegt að samtök rétthafa á Íslandi sé nánast eingöngu að huga að réttindum þeirra sem að kaupa útgáfurétt og virðast fyrir almenningi hunsa þá sem að skapa efni.



Ef þetta eru rökin hjá þeim þá hafa þeir ekki neinn skilning á hvernig internetið virkar..

Vilja þeir þá ekki líka bara banna OpenDNS og Google DNSana.


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf ManiO » Þri 29. Okt 2013 10:48

ponzer skrifaði:
ManiO skrifaði:
Annar lögmaður sem Fréttablaðið ræddi við sagði mögulegt að fyrirtækin séu brotleg gegn lögum þar sem forsvarsmenn þeirra viti að þjónustan sem þeir bjóða upp á verði notuð til þess að nálgast efnisveitur á ólöglegan hátt.


Þetta er það sem að lögmenn Smáíss munu reyna að sýna fram á, þ.e.a.s. að nálgast DNS veitu utan landsteina Íslands sé ólöglegt í þeim tilgangi að nálgast efni sem að lokað er annars.

Persónulega finnst mér að framleiðendur á íslensku myndefni ættu að taka þessa barráttu upp í sína arma og hvetja Smáís til að fara út í samningaviðræður við straumþjónustur erlendis til að bjóða upp á íslenskt efni. Fáránlegt að samtök rétthafa á Íslandi sé nánast eingöngu að huga að réttindum þeirra sem að kaupa útgáfurétt og virðast fyrir almenningi hunsa þá sem að skapa efni.



Ef þetta eru rökin hjá þeim þá hafa þeir ekki neinn skilning á hvernig internetið virkar..

Vilja þeir þá ekki líka bara banna OpenDNS og Google DNSana.


Ég er sammála þér, en því miður þá er lagaramminn mjög óljós hvað varðar internetið. Ekki hjálpar heldur að almenningur veit í rauninni ekki hvað internetið er og stjórnvöld keppast um að reyna að ná lögsögu sinni yfir hina ýmsu kima netheimanna.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


playman
Vaktari
Póstar: 2000
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 72
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf playman » Þri 29. Okt 2013 10:54

ManiO skrifaði:
ponzer skrifaði:
ManiO skrifaði:
Annar lögmaður sem Fréttablaðið ræddi við sagði mögulegt að fyrirtækin séu brotleg gegn lögum þar sem forsvarsmenn þeirra viti að þjónustan sem þeir bjóða upp á verði notuð til þess að nálgast efnisveitur á ólöglegan hátt.


Þetta er það sem að lögmenn Smáíss munu reyna að sýna fram á, þ.e.a.s. að nálgast DNS veitu utan landsteina Íslands sé ólöglegt í þeim tilgangi að nálgast efni sem að lokað er annars.

Persónulega finnst mér að framleiðendur á íslensku myndefni ættu að taka þessa barráttu upp í sína arma og hvetja Smáís til að fara út í samningaviðræður við straumþjónustur erlendis til að bjóða upp á íslenskt efni. Fáránlegt að samtök rétthafa á Íslandi sé nánast eingöngu að huga að réttindum þeirra sem að kaupa útgáfurétt og virðast fyrir almenningi hunsa þá sem að skapa efni.



Ef þetta eru rökin hjá þeim þá hafa þeir ekki neinn skilning á hvernig internetið virkar..

Vilja þeir þá ekki líka bara banna OpenDNS og Google DNSana.


Ég er sammála þér, en því miður þá er lagaramminn mjög óljós hvað varðar internetið. Ekki hjálpar heldur að stjórnvöld vita í rauninni ekki hvað internetið er og stjórnvöld keppast um að reyna að ná lögsögu sinni yfir hina ýmsu kima netheimanna.

Fixed


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

Plushy
Vaktari
Póstar: 2277
Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
Reputation: 20
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf Plushy » Þri 29. Okt 2013 12:48

GuðjónR skrifaði:Það er búið að gagnrýna fólk út í eitt fyrir að "stela" efni, svo kemur leið þar sem fólk getur "keypt" efni og þá er reynt að stoppa það!
Hvað er í gangi?


Þá eru þeir að fatta að fólk er að borga fyrir þetta, núna eru dollaramerkin í augunum og ef þeir fá ekki sneið af kökunni, fær það enginn.



Skjámynd

kazzi
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 372
Skráði sig: Mið 04. Maí 2011 16:20
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf kazzi » Þri 29. Okt 2013 22:33

Og fjörið heldur áfram http://www.ruv.is/frett/atla-ad-kaera-v ... fundalogum

Sent from my Nexus 7 using Tapatalk 4




hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf hkr » Þri 29. Okt 2013 22:56

Hvað heldur SMÁÍS að þeir græði á þessu?

Fólk er búið að vera nota Netflix á ísland í dágóðan tíma (nokkur ár?). Halda þeir að ef tal og flix hætti að selja þessa DNS/erlenda-ip-tölu dótarí að þá eigi fólk eftir að hætta að nota netflix allt í einu?
Efast um að playmo, unblock-me, tunlr, netflixfixer og svo lengi mætti telja, hætti upp úr þurru að selja sína þjónustu til íslendinga...

Fer að verða svolítið sorglegt hjá þeim, greyjunum..



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5547
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1035
Staða: Tengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf appel » Þri 29. Okt 2013 23:11

Þetta verður áhugaverð varnarbarátta hjá SMÁÍS. Ég er ekkert of bjartsýnn á að þeim takist að verja kastalaríkið sitt hér á Íslandi. Neytendur vilja auðvelt aðgengi, lágt og sanngjarnt verð, mikið úrval og góð gæði. Þetta er ekki flókið, en virðist vera mjög erfitt. Smæð Íslands vinnur ekki með þeim, en merkilegra er þó að flestar aðrar þjóðir eru í sömu sporum og íslendingar með þetta svæðisréttindakerfi, sem virðist ekki gera ráð fyrir nútímanum.

Það verður mikið umbrot á þessum markaði líklega, og þá er ég ekki að tala um Ísland, heldur um allan heim og einnig í Bandaríkjunum. Viðskiptamódelin eru að syngja sitt allra síðasta og það er aðeins tímaspursmál hvenær það verður meiriháttar hrun.


*-*


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf AntiTrust » Þri 29. Okt 2013 23:12

Svo er eitt sem ég hef verið að velta fyrir mér. Þegar notast er við erlendar streymisþjónustur sem eru ekki með samninga við dreifingaraðila hérlendis en þeir þó búnir að græja sýningarhátt við stúdíóin, er ekki eingöngu verið að brjóta á sýningarrétti þeirra félaga, en ekki höfundarétt? Þar sem það er augljóslega verið að horfa á efni sem búið er að semja við stúdíóin erlendis um að sýna, og þar með greiða höfundum og eigendum sinn hlut.. eða hvað?




Vaktari
Ofur-Nörd
Póstar: 231
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 21:05
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf Vaktari » Þri 29. Okt 2013 23:49

Lúxusnet Tals fylgir frítt með internetáskrift hjá Tal.
Adsl/VDSL og ljósleiðara.
Þannig það er ekki einu sinni verið að rukka viðskiptavini Tals fyrir þessa þjónustu, sem ég myndi telja staka snilld.
Sérstaklega þar sem þetta er mjög notendavænt og auðvelt að virkja þetta


AMD Ryzen7 7700X AM5 | 2x16 GB G.Skill Flare X5 6000MHz DDR5 | Asrock A620M Pro RS Wifi uATX AM5 |Palit Geforce RTX 4070Ti Gamerock Premium 12GB | Be Quiet 850W |DeepCool AS500 |


capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf capteinninn » Mið 30. Okt 2013 01:22

Vaktari skrifaði:Lúxusnet Tals fylgir frítt með internetáskrift hjá Tal.
Adsl/VDSL og ljósleiðara.
Þannig það er ekki einu sinni verið að rukka viðskiptavini Tals fyrir þessa þjónustu, sem ég myndi telja staka snilld.
Sérstaklega þar sem þetta er mjög notendavænt og auðvelt að virkja þetta


Ég er einmitt búinn að panta að skipta yfir til þeirra, er bara að bíða eftir að það fari í gegn.

Mér finnst snilld við þetta að þeir eru bara með stakar vefsíður sem fara í gegnum þetta eins og t.d. Netflix, Hulu og fleira þannig að þú ert ekki að fara með alla þína netumferð í gegnum þetta lúxusnet



Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1687
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf Stutturdreki » Mið 30. Okt 2013 09:15

AntiTrust skrifaði:Svo er eitt sem ég hef verið að velta fyrir mér. Þegar notast er við erlendar streymisþjónustur sem eru ekki með samninga við dreifingaraðila hérlendis en þeir þó búnir að græja sýningarhátt við stúdíóin, er ekki eingöngu verið að brjóta á sýningarrétti þeirra félaga, en ekki höfundarétt? Þar sem það er augljóslega verið að horfa á efni sem búið er að semja við stúdíóin erlendis um að sýna, og þar með greiða höfundum og eigendum sinn hlut.. eða hvað?

Það er ekkert 'ólöglegt' efni á Netflix/Hulu/Spotify, þe. efni sem er ekki greitt fyrir til höfundar. 'Vandamálið' er bara að dreifingaraðilinn í því landi sem Netflix/Hulu er semur við þá og græðir en dreifingar aðilar í öðrum löndum græða ekkert. Höfundurinn fær alltaf sitt. Held að þetta mál snúist næstum eingöngu um það að Stöð2 er hrætt um að missa en þá meiri viðskipti ef notenda hópur Netflix/Hulu stækkar.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf AntiTrust » Mið 30. Okt 2013 09:30

Stutturdreki skrifaði:Það er ekkert 'ólöglegt' efni á Netflix/Hulu/Spotify, þe. efni sem er ekki greitt fyrir til höfundar. 'Vandamálið' er bara að dreifingaraðilinn í því landi sem Netflix/Hulu er semur við þá og græðir en dreifingar aðilar í öðrum löndum græða ekkert. Höfundurinn fær alltaf sitt. Held að þetta mál snúist næstum eingöngu um það að Stöð2 er hrætt um að missa en þá meiri viðskipti ef notenda hópur Netflix/Hulu stækkar.


Þú ert e-ð að misskilja mig. Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að það sé ekki efni í órétti inn á streymisþjónustunum. Pointið mitt var að það er endalaust verið að tala um höfundarréttarbrot, þegar ég get ekki betur séð en að í raun sé bara verið að brjóta sýningarrétti einstakra dreifingaraðila.



Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1687
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: Lúxusnet Tals

Pósturaf Stutturdreki » Mið 30. Okt 2013 09:41

AntiTrust skrifaði:
Stutturdreki skrifaði:Það er ekkert 'ólöglegt' efni á Netflix/Hulu/Spotify, þe. efni sem er ekki greitt fyrir til höfundar. 'Vandamálið' er bara að dreifingaraðilinn í því landi sem Netflix/Hulu er semur við þá og græðir en dreifingar aðilar í öðrum löndum græða ekkert. Höfundurinn fær alltaf sitt. Held að þetta mál snúist næstum eingöngu um það að Stöð2 er hrætt um að missa en þá meiri viðskipti ef notenda hópur Netflix/Hulu stækkar.


Þú ert e-ð að misskilja mig. Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að það sé ekki efni í órétti inn á streymisþjónustunum. Pointið mitt var að það er endalaust verið að tala um höfundarréttarbrot, þegar ég get ekki betur séð en að í raun sé bara verið að brjóta sýningarrétti einstakra dreifingaraðila.

Jaa.. lesa meira en fyrstu setninguna :)

Bætti þessu bara við þar sem Smáís, Ari Edwald og Bubbi Morthens eru alltaf að tala um að þetta sé ólöglegt niðurhal, sem er að sjálfsögðu rangt.