Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Allt utan efnis
Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf beatmaster » Þri 25. Mar 2014 22:07

Ég er að verða kominn með 100 AUR inn á Cryptsy (ég var að vonast til að fara ekki neðar en 8$ á AUR þegar að gengið fór að síga en það er núna í 6,3$) er að spá í hvort að maður ætti að skipta þessum 100 AUR í BITCOIN eða bíða eitthvað lengur


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1827
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 181
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Nariur » Þri 25. Mar 2014 22:15

beatmaster skrifaði:Ég er að verða kominn með 100 AUR inn á Cryptsy (ég var að vonast til að fara ekki neðar en 8$ á AUR þegar að gengið fór að síga en það er núna í 6,3$) er að spá í hvort að maður ætti að skipta þessum 100 AUR í BITCOIN eða bíða eitthvað lengur


Ég samhryggist yfir tapinu.

Hvað græddu menn mikið á þessu? Ég er búinn að græða 1,1BTC.


AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

Oak
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Fim 15. Okt 2009 16:51
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Oak » Þri 25. Mar 2014 22:16

einn sem ég þekki kominn með 5 kt. inná pappírsveskið og er svo ekki með private key... :S svekkjandi...


i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64

Skjámynd

C2H5OH
Ofur-Nörd
Póstar: 272
Skráði sig: Mið 08. Des 2010 14:30
Reputation: 24
Staðsetning: Rannsóknarstofan
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf C2H5OH » Þri 25. Mar 2014 22:20

GullMoli skrifaði:Auðveldasta leiðin er eflaust að henda AUR inná http://www.cryptsy.com
Block tíminn er hinsvegar alveg rugl hægur í augnablikinu svo confirmations taka nokkra klukkutíma í stað mínútna (1 confirmation per block, og þú þarft 3 til þess að Cryptsy birti innistæðuna).

Cryptsy bjóða svo uppá það að senda inná Paypal skilst mér, hef ekki persónulega reynslu af því. Ég hef hinsvegar sent Bitcoin á http://www.justcoin.com og skipt því yfir í Dollara, þeir geta svo sent beint inná bankareikning. Þú þarft reyndar að staðfesta hver þú ert með afriti af skilríkjum svo þeir sendi á bankareikning.


hefurðu látið þá(justcoin) leggja dollara inn á þig? ef svo er hvað tók það langan tíma?



Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1066
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Hargo » Þri 25. Mar 2014 22:52

Er maður eitthvað öruggari að nota þetta pappírsveski?

Ég sótti bara clientinn, setti encryption phrase á veskið og fékk svo aurana mína senda.

Er maður óvarinn að geyma þetta bara svona? Tek reglulega backup af veskinu yfir á serverinn minn.



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf beatmaster » Þri 25. Mar 2014 23:00

Ætli maður græði eitthvað á að solo mine-a með client-inum?


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2336
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 404
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Moldvarpan » Þri 25. Mar 2014 23:04

Síðan þeirra er byrjuð að virka mun betur en hún gerði í dag, núna fer airdroppið bara í smá bið, komið svo inná wallet confirmed 5min seinna.

Samkvæmt http://coinmarketcap.com/mineable-all.html, lækkaði verðgildi AUR töluvert í kringum kvöldmatarleitið, en er að byrja fara eh uppá við aftur.


Verður forvitileg þróun svo á þessu.

En væri til í að heyra fá fleirrum, hvernig er best að selja þetta/tradea þessu fyrir aðra miðla.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16305
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2016
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf GuðjónR » Þri 25. Mar 2014 23:18

Hargo skrifaði:Er maður eitthvað öruggari að nota þetta pappírsveski?

Ég sótti bara clientinn, setti encryption phrase á veskið og fékk svo aurana mína senda.

Er maður óvarinn að geyma þetta bara svona? Tek reglulega backup af veskinu yfir á serverinn minn.


Er nauðsynlegt að encrypta þetta?



Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 815
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 128
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Hrotti » Þri 25. Mar 2014 23:32

Moldvarpan skrifaði:Síðan þeirra er byrjuð að virka mun betur en hún gerði í dag, núna fer airdroppið bara í smá bið, komið svo inná wallet confirmed 5min seinna.

Samkvæmt http://coinmarketcap.com/mineable-all.html, lækkaði verðgildi AUR töluvert í kringum kvöldmatarleitið, en er að byrja fara eh uppá við aftur.


Verður forvitileg þróun svo á þessu.

En væri til í að heyra fá fleirrum, hvernig er best að selja þetta/tradea þessu fyrir aðra miðla.



ég skipti í BTC á cryptsy , það var ekkert mál.


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2336
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 404
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Moldvarpan » Þri 25. Mar 2014 23:36

Jubb, Er búinn að senda AUR á cryotsy, en það er enn Pending Deposit.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3843
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Tiger » Þri 25. Mar 2014 23:38

Moldvarpan skrifaði:Jubb, Er búinn að senda AUR á cryotsy, en það er enn Pending Deposit.


Hlutfallið á milli BTC og AUR er bara búið að hrapa svo.... maður hefði grætt á því að taka sér frí í vinnu í dag og fá einhverja tugi þúsunda meira fyrir þessa 100 AUR sína.


Mynd

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2336
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 404
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Moldvarpan » Mið 26. Mar 2014 00:15

Hugsa að það sé samt betra að losa sig við þetta núna yfir í BTC, þótt verðgildið hafi nánast hálfnað í dag. 1 BTC er í um 580$, og ég tel líklegra að sú coin hækki fyrr í verði heldur en AUR.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Viktor » Mið 26. Mar 2014 01:02

Aurarnir voru að skila sér, 12 klst seinna :)


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

trausti164
Geek
Póstar: 854
Skráði sig: Lau 13. Okt 2012 23:43
Reputation: 4
Staðsetning: 271 Mosfellssveit
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf trausti164 » Mið 26. Mar 2014 01:14

Búinn að vera að selja coins fyrir fólk sem að veit ekki hvað á að gera við þau gegn 10% þóknun, frábært business.
Ef að þið þekkið fólk sem að veit ekki hvað það ætti að gera við aura þá endilega að bjóða þeim þetta, ég er búinn að græða 40.000kr bara í dag.


Ryzen 5 2600x - Gtx 1060 6GB - Asus B350M TUF - 8GB Corsair Vengeance 2133Mhz DDR4 - Corsair CX550W

Skjámynd

GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf GönguHrólfur » Mið 26. Mar 2014 01:38

Er engin annar nema ég að lenda í vandræðum með auðkenninguna!?

Er að verða geðveikur á þessu, hvorki facebook né sms auðkenningin virkar, og það er engin þjónusta hjá þeim.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2336
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 404
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Moldvarpan » Mið 26. Mar 2014 08:17

Til að auðkenna sig í gegnum SMS, þá þarf síminn að vera á skrá já.is

Til að auðkenna sig í gegnum FB, þá þarf að vera skráð Fullt nafn og kennitala. (Ég þurfti að bæta við millinafninu á fb svo þeta rúllaði í gegn)



Skjámynd

GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf GönguHrólfur » Mið 26. Mar 2014 08:59

Moldvarpan skrifaði:Til að auðkenna sig í gegnum SMS, þá þarf síminn að vera á skrá já.is

Til að auðkenna sig í gegnum FB, þá þarf að vera skráð Fullt nafn og kennitala. (Ég þurfti að bæta við millinafninu á fb svo þeta rúllaði í gegn)


>og kennitala

Hvað meinarðu með því?

Ég er með fullt nafn mitt skrifað rétt og réttan afmælisdag, samt virkar það ekki..

Önnur spurning, það kemur hjá mér "unconfirmed" í staðin fyrir "balance", hvað þýðir það og hvenar kemur það inn á balance?




eeh
Ofur-Nörd
Póstar: 298
Skráði sig: Fim 17. Jún 2004 19:34
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf eeh » Mið 26. Mar 2014 09:09

Spurning til þeirra sem eru að grafa eftir AUR, hvaða pool eru þið að nota?


Intel Core i5 3450 3.1 Ghz Quad Core | Asus P8Z77-V LX | G.Skill 2x4GB 1333MHz | AMD Radeon™ HD 7950 | stock cooler | NZXT H2

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf dori » Mið 26. Mar 2014 09:10

GönguHrólfur skrifaði:Ég er með fullt nafn mitt skrifað rétt og réttan afmælisdag, samt virkar það ekki..

Önnur spurning, það kemur hjá mér "unconfirmed" í staðin fyrir "balance", hvað þýðir það og hvenar kemur það inn á balance?

Hvernig getur það ekki virkað en þú ert samt með í unconfirmed? Annars er búið að svara þessari unconfirmed spurningu marg oft í þessum þræði. AURinn er unconfirmed þangað til það er búið að staðfesta að block keðjan sé rétt og þá detta þeir væntanlega í "balance" eða "confirmed".




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1755
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf blitz » Mið 26. Mar 2014 09:26

Tiger skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Jubb, Er búinn að senda AUR á cryotsy, en það er enn Pending Deposit.


Hlutfallið á milli BTC og AUR er bara búið að hrapa svo.... maður hefði grætt á því að taka sér frí í vinnu í dag og fá einhverja tugi þúsunda meira fyrir þessa 100 AUR sína.


m.v. hvað markaðurinn er hrikalega grunnur þá hefðir þú eflaust varla geta losað 100AUR á því verði sem var í gangi


PS4

Skjámynd

cure
Geek
Póstar: 881
Skráði sig: Fim 11. Mar 2010 23:42
Reputation: 3
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf cure » Mið 26. Mar 2014 09:42

Hafið þið eitthvað notað minpal ? setti þar inn AUR en það er búið að vera pending þar í svona 2 tíma :O og vitiði hvort það sé alveg save að geyma mintina þar inni í einhvern tíma, ef ég ætla að bíða og sjá ??



Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Frantic » Mið 26. Mar 2014 09:50

Hvernig færir maður aura úr pappírsveski og í veski í tölvunni?
Er með allar upplýsingarnar.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3843
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf Tiger » Mið 26. Mar 2014 10:06

blitz skrifaði:
Tiger skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Jubb, Er búinn að senda AUR á cryotsy, en það er enn Pending Deposit.


Hlutfallið á milli BTC og AUR er bara búið að hrapa svo.... maður hefði grætt á því að taka sér frí í vinnu í dag og fá einhverja tugi þúsunda meira fyrir þessa 100 AUR sína.


m.v. hvað markaðurinn er hrikalega grunnur þá hefðir þú eflaust varla geta losað 100AUR á því verði sem var í gangi


Seldi þá alla í morgun og þeir fóru á nokkrum secundum...


Mynd


blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1755
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf blitz » Mið 26. Mar 2014 10:08

Tiger skrifaði:
blitz skrifaði:
Tiger skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Jubb, Er búinn að senda AUR á cryotsy, en það er enn Pending Deposit.


Hlutfallið á milli BTC og AUR er bara búið að hrapa svo.... maður hefði grætt á því að taka sér frí í vinnu í dag og fá einhverja tugi þúsunda meira fyrir þessa 100 AUR sína.


m.v. hvað markaðurinn er hrikalega grunnur þá hefðir þú eflaust varla geta losað 100AUR á því verði sem var í gangi


Seldi þá alla í morgun og þeir fóru á nokkrum secundum...


Væntanlega á töluvert lægra gengi? Miklu meira volume í gangi í morgun heldur en var þegar verðið var hærra í gær?


PS4


eeh
Ofur-Nörd
Póstar: 298
Skráði sig: Fim 17. Jún 2004 19:34
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Auroracoin - AUR - nýr rafrænn íslenskur gjaldmiðill

Pósturaf eeh » Mið 26. Mar 2014 10:09

Frantic skrifaði:Hvernig færir maður aura úr pappírsveski og í veski í tölvunni?
Er með allar upplýsingarnar.


Sælir félagar
Náði að flitja allt úr paper wallet yfir á tolvuna hjá mér.
Notaði þessa aðferð til þess.
Opna auroracoin-qt
Fera svo í flipan sem heitir Help > Debug Window > Console
Neðst í þessum glugga er þessi skipun set inn : importprivkey AuroraCoinprivkey [label]

Og þegar þetta er komið þá er bara að ýta á enter :happy

Tek við AUR hér takk :D
APzWF4c1uz7h839SXLGueMP1juYwXUgPtd


Intel Core i5 3450 3.1 Ghz Quad Core | Asus P8Z77-V LX | G.Skill 2x4GB 1333MHz | AMD Radeon™ HD 7950 | stock cooler | NZXT H2