appel skrifaði:Ég veit ekki afhverju Jordan Peterson var bannaður. Hann talar bara um að ungir karlmenn eigi að taka tök á eigin lífi, koma vel fram við konur, en versta sem hann sagði var víst að það sé líffræðilegur munur milli karls og konu.... fyrir það var hann líklega bannaður.
Annar gæji sem er svona á þessum nótum, Andrew Tate, bara miklu ofboðslegri karakter. Hann var einnig bannaður.
Jú, þeir segja eitthvað sem þú ert óssamála, en það er ekkert glæpsamlegt við þessa einstaklinga, þeir hafa engin lög brotið, það eru bara ákveðnir hópar þarna sem eru óssammála pólitískum og samfélagslegum skoðunum þeirra og þessvegna voru þeir bannaðir.
Ég gæti aldrei notað svona amerískan miðil, facebook, twitter eða hvaðeina, þetta er allt ónýtt.
Svo einsog með Donald Trump og árásina á þinghúsið. Hann var víst bannaður á twitter aðallega útaf þessari árás á þinghúsið. Hinsvegar ræðst almenningur oft gegn stjórnvöldum og er með mótmæli og hvaðeina allsstaðar í heiminum, aldrei hefur twitter gripið til þess ráðs að banna stjórnendur þessara mótmæla, heldur þvert á móti styðja þeir við mótmælendur. Eini munurinn er hvort twitter sé á móti eða með einhverju eða einhverjum, þannig að þetta er gríðarlega biased miðill (eða var). Hvernig var með búsáhaldabyltinguna hérna og árásina á Alþingi? Kannski twitter vilji kanna hverjir stóðu á bakvið henni (VG) og banna á twitter?
Ég er sáralítið inn í JP málum, maður heyrir hannsuða öðru hverju.
Hann var bannaður fyrir að ganga ekki í þetta mál, að útskýra tvítið sitt eða eyða því þegar hann var að hæðast að kynskiptum Ellenar Page -
https://twitter.com/nypost/status/1539705413754552320Líklega var fólk sem tilkynnti þetta, hann fékk póst og ákvað að verða píslavottur í stað þess að ræða málin.
Það þurfti rétt aðeins korters video fyrir hann að útskýra sína hlið á málinu -
https://www.youtube.com/watch?v=UYfKWQqvFacSkal alveg játa að ég hef fordóma fyrir honum eftir að hafa heyrt dóttur mína tala um hvernig strákarnir (þá í 9.bekk) í skólanum hennar dýrkuðu hann og voru að ausa þessari vitleysu yfir stelpurnar í bekknum og kennarana í einhverri fjölbreytileikafræðslu, spilandi einhver video af honum með hljóðið hátt, ofan í kennsluefnið til að trufla.
Hún spilaði eitthvað af þessu þegar hún kom heim og hennar niðurstaða og vinkvenna hennar var einföld, gaurar sem eru svona þenkjandi eru ljótir og óaðlaðandi og þær eiga betra skilið = gaurinn stuðlar að, eða hreinlega framleiðir incels...
Mun ekki kynna mér hvað hann hefur að segja.