DJOli skrifaði:gRIMwORLD skrifaði:Samkvæmt persónuverndarstefnunni þeirra þá safna þeir öllum upplýsingum og samtölum, þar á meðal einkaskilaboðum og gætu deilt þeim með hýsingaraðilum til að vinna fyrir þá (bundnir trúnaði)
Þetta er kannski ekki orðað nákvæmlega svona en í lagalegum skilningi þá er ekkert sem hindrar slíkt miðað við stefnuna þeirra.
Þannig að nei takk

Ef þetta stemmir er síðan á skjön við GDPR og verður því ekki lengi í loftinu.
Þetta hljómar eins og standard GDPR klásúla sem segir "við erum með undirvinnsluaðila sem eru bundnir trúnaði".
Í dag er enginn sem gerir allt sjálfur = get ekki ímyndað mér annað en að þessi klásúla sé einnig í skilmálum með hverju einasta appi sem þú notar.
En ég er samt eitthvað efins með útfærsluna á þessu.
Það er réttur til að gleymast = það verður að vera hægt að eyða aðgangi...
Hvað gerist svo ef ég vil opna annan aðgang eftir að hafa eytt mínum fyrri?
Appið má ekki tengja nýja aðganginn við þann gamla, það væri líklega lögbrot gegn "réttinum til að gleymast"...