Nú er ég með ansi stórt ljósmynda og vídeósafn (10tb) sem ég hef safnað saman í gegnum árin, aðallega mínar eigin myndir og myndbönd, og ég hef alltaf haft ljósmyndirnar og myndböndin saman (þ.e. sama folder) sem eru tekin upp á sama tíma og/eða viðburði. Ég fór að hugsa, hvort það væri skynsamlegra að aðskilja ljósmyndirnar og myndböndin frekar en að halda þeim saman í sama safni/foldertré.
Hvernig eruð þið að gera þetta?
Ljósmynda/vídeó söfn - skipulag
-
Stutturdreki
- Of mikill frítími
- Póstar: 1726
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 48
- Staða: Ótengdur
Re: Ljósmynda/vídeó söfn - skipulag
Hendi mínu inn i Immich (immich.app) með default folder schema og hugsa ekki meira um það. Meðan ég get fundið dót aftur út frá dagsetningum, leitarorðum, andlitm þá hef ég ekki miklar áhyggjur af því sem er undir.