Síða 2 af 2

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Sun 03. Des 2023 20:59
af Daz
jonsig skrifaði:
rapport skrifaði:Þú ert nafni alheimsins...

Hverjum sýnist þér hann vera að kvarta yfir ?

Ég er líka bara að hjálpa honum að fá fleirri like, hann er búinn að boosta heildar likin sín um tæp 10% með þessum þræði. Þá sé ég líka hverjir eru sammála honum, þvílíka suprise hverjir það eru.

Þú tjáir þig reglulega og nýlega á þann hátt að þú sért sko aðal vondi spaðinn á þessu spjalli. Finnst þér skrítið að þú sért nafngreindur sem dæmi um slíkt?

Ekki fara í svona mikla vörn þegar annað fólk gagnrýnir þína framkomu sem þú sjálfur segir vera vonda og tröllslega.

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Sun 03. Des 2023 21:01
af jonsig
Daz skrifaði:Að því sögðu er áhugavert af þér að segja mér að fokka mér í burtu, bæði sýnir það hvað þú ert mikill dóni og berð litla sem enga virðingu fyrir fólki sem er þér ókunnugt.

Daz skrifaði:Fyrir mig sem kem hérna aðallega til að leita og veita tæknihjálp og braska með úrelt tölvudót þá er þetta farið að hamla því aðeins hversu mikið ég nenni að kíkja hérna inn. Mig langar því að stinga upp á að það verði prófað (aftur) að taka þessar umræður úr birtingu í "virkar umræður". Ég vil alls ekki bannar þær eða takmarka að öðru leyti, ekki vil ég bera ábyrgð á því að jonsig og aðrir góðir menn fari að tjá sig á þennan hátt annarstaðar!

Varstu ekki að enda við að líkja mér við einhver vitleysing sem verður að tjá sig einhverstaðar ? Síðan svaka hissa að ég sé mættur á svæðið.

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Sun 03. Des 2023 21:42
af Daz
jonsig skrifaði:Varstu ekki að enda við að líkja mér við einhver vitleysing sem verður að tjá sig einhverstaðar ? Síðan svaka hissa að ég sé mættur á svæðið.

Alls ekki vitleysing, ég biðst 100%afsökunar að þú hafir tekið því þannig!
Sem einhver sem hefur mikla þörf fyrir að tjá sig mikið og myndir halda því áfram á öðrum vettvangi (eða auka það), það var algjörlega það sem ég meinti.

Ég var annars ekki hissa, fannst það bara áhugavert (orðið sem ég notaði) að þú kæmir inn í þennan þráð með þínum hefðbundna dónaskap, sjálfhverfu og píslarvættislátum þegar það er nokkuð augljóst að ég er að segja að það sé í það innihald sem ég nenni ekki.

Færðu borgað fyrir að vera svona mikið tröll eða er þetta bara rosalega misheppnað grín?

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Mán 04. Des 2023 08:33
af Hausinn
VIRKAR UMRÆÐUR - TÆKNILEG UMRÆÐA

VIRKAR UMRÆÐUR - PÓLITÍK OG SAMFÉLAGSMÁL

VIRKAR UMRÆÐUR - MARKAÐURINN

Mál leyst. :happy

Ég er sammála þessum þræði. Mig finnst frábært að fólk sé að tjá sínar skoðarnir með ástríðu og hreinskilni, en mörg af okkur eru einnig sammála því að við erum búin að fá ógjeð af pólitísku hringrúnki á öðrum samfélagsmiðlum og viljum hafa þann valkost að hunsa það.

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Mán 04. Des 2023 09:16
af Moldvarpan
Það þarf allavegana einhvað að gera í þessu, þetta gengur ekki mikið lengur svona. Þá fer bara þetta svæði að missa sitt gildi.

Enginn sem nennir að uppfæra vaktina, enginn stjórnandi sem nennir að stjórna þessu spjallborði. Svo koma svona Elon Musk týpur sem sjá ekki sólina fyrir eigin ágæti. Halda að þeir séu að taka þetta spjallborð á nýja áður óþekkta staði.... give me a break..

En það er ekkert mál að haga sér eins og hálfviti ef það er orðið lingoið hérna á vaktinni.

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Mán 04. Des 2023 09:51
af Mossi__
Daz skrifaði:Færðu borgað fyrir að vera svona mikið tröll eða er þetta bara rosalega misheppnað grín?

Ég sjálfur er farinn að hallast að því að hann sé bara fastur í "öll athygli er góð sama hvað" fasanum. Sem nú lýsir bara hversu félagslega sterkur maðurinn er.

Ef þetta væri grín þá ætti hann að vera löngu orðinn þreyttur á brandaranum og farinn að snúa sér að einhverju öðru.

.. bara. Hesturinn og vatnið.

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Mán 04. Des 2023 18:40
af Moldvarpan

Þetta minnir mig soldið á suma

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Þri 05. Des 2023 00:46
af dadik
Þetta er ansi spes umræða. Ef fólki líkar ekki umræðan í Koníaksstofunni er einfalt að sleppa því að lesa hana ekki satt? Fullt af þráðum þarna sem ég nenni ekki að lesa eða fylgjast með.

Sama með r/Icleand - fullt af dóti þarna sem maður nennir ekki að lesa eða taka þátt í en mér finnst ekki að það eigi að banna öðrum að tjá sig um þessi mál.

Kannski einfaldast að gera það sem @Hausinn bendir á

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Þri 05. Des 2023 01:45
af Stuffz
Ég man ég vildi einu sinni heimspeki umræðu þráð.. :P

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Þri 05. Des 2023 22:27
af Daz
dadik skrifaði:Þetta er ansi spes umræða. Ef fólki líkar ekki umræðan í Koníaksstofunni er einfalt að sleppa því að lesa hana ekki satt? Fullt af þráðum þarna sem ég nenni ekki að lesa eða fylgjast með.

Sama með r/Icleand - fullt af dóti þarna sem maður nennir ekki að lesa eða taka þátt í en mér finnst ekki að það eigi að banna öðrum að tjá sig um þessi mál.

Kannski einfaldast að gera það sem @Hausinn bendir á

Ég var ekki að biðja um að nein umræða yrði bönnuð og held að enginn annar hafi gert það.

Samanburður við r/Iceland er bjagaður því það er umræðusvæði almenns eðlis og því líklegt að þar sé rætt um allskonar.

Vaktin.is er frekar tölvu fókusað spjall og því má alveg velta því upp að gera tæknitengdri umræðu hærra undir höfði. Jafnvel þó aðrar umræðu sé vinsælar, þá er líka í lagi að ritstýra með því að draga frekar athygli að því sem kjarna umfjöllunar atriði er

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Þri 05. Des 2023 23:32
af appel
Daz skrifaði:

Þó þú hefur rétt fyrir þér á marga vegu þá er raunveruleikinn þannig að vaktin er heimilisstöð margra. Þetta er ekki bara "tölvu fókusað spjall", heldur samfélag tölvuáhugamanna, og tölvuáhugamenn glíma við öll þau vandamál sem venjulegt fólk glímir við, það er ekki bara tölvur heldur bíllinn, það er húsið, það er hitt og þetta. Ég hef fengið rafvirkja hér, bifvélavirkja, allskonar fólk er hér sem hefur áhuga á tölvum.

Ég lagði til að forumin Bílaplanið og Verkfæraskúrin yrðu stofnuð, einmitt til þess að halda tölvuáhugafólki hérna, að geta fengið aðstoð hér frekar en að leita annað. Bíllinn og Heimilið er það stærsta í lífi fólks hvað hluti varðar, og það er mikilvægt að halda umræðunni hér. Vaktarar hafa elst og eru komnir með heimili og bíl og algjör þörf á að koma upp vettvangi fyrir það. Ef við ætlum bara að tala um tölvur, þá verðum við nokkuð einir.

Þannig að við ættum að útvíkka frekar en að horfa innávið.

Re: Taka Koníaksstofu umræðu úr "virkar umræður"?

Sent: Mið 06. Des 2023 02:04
af Danni V8
appel skrifaði:Þó þú hefur rétt fyrir þér á marga vegu þá er raunveruleikinn þannig að vaktin er heimilisstöð margra. Þetta er ekki bara "tölvu fókusað spjall", heldur samfélag tölvuáhugamanna, og tölvuáhugamenn glíma við öll þau vandamál sem venjulegt fólk glímir við, það er ekki bara tölvur heldur bíllinn, það er húsið, það er hitt og þetta. Ég hef fengið rafvirkja hér, bifvélavirkja, allskonar fólk er hér sem hefur áhuga á tölvum.

Ég lagði til að forumin Bílaplanið og Verkfæraskúrin yrðu stofnuð, einmitt til þess að halda tölvuáhugafólki hérna, að geta fengið aðstoð hér frekar en að leita annað. Bíllinn og Heimilið er það stærsta í lífi fólks hvað hluti varðar, og það er mikilvægt að halda umræðunni hér. Vaktarar hafa elst og eru komnir með heimili og bíl og algjör þörf á að koma upp vettvangi fyrir það. Ef við ætlum bara að tala um tölvur, þá verðum við nokkuð einir.

Þannig að við ættum að útvíkka frekar en að horfa innávið.

Finnst þú hitta naglann svoldið á höfuðið þarna.

Ég skoða þetta spjallborð reglulega en er alls ekki jafn mikill tölvugaur og ég var þegar ég kom hingað fyrst. Ég hugsa að þetta fjölbreytta spjall er stór hluti af ástæðunni fyrir því að þetta spjallborð er ennþá virkt. Alls ekki eina ástæðan en hefur mikið að segja þegar kemur því hversu margir koma hingað.

Ef það væri bara talað um klukkuhraða, routera sem líta út eins og geimskip, internet protocols og þess háttar þá væru örugglega nokkuð færri hérna en eru nú þegar.