AntiTrust skrifaði:@Gúru :
Sorry vinur, ef þú sérð ekki skynsemina í því að banna vímuefni er þér ekki viðbjargandi, og löngu orðið ljóst að við eigum nákvæmlega enga samleið í þessu máli.
Hvað er í gangi í Oregon 1973-1995? Hawaii? Mississippi?
Sýndu mér fram á góðu áhrifin sem bannið hefur - ég hef sýnt fram á slæmu áhrifin.
Hefur þú virkilega ennþá þá skoðun að áfengi og sígarettur eigi að vera gerðar ólöglegar?
Hefurðu engan áhuga á því að kynna þér hvað gerist þegar að hlutir eru færðir í heiminn - Bandaríkin 1920 og Oregon 1973?
Viltu frekar vernda bannið útfrá því sjónarhorni að þú viljir lifa í vímuefnalausu samfélagi? Því miður þá getur það ekki gerst.
Hann neytti vímuefna vitandi afþví að það væri lögbrot, vitandi hvaða áhættu hann var að taka, sem hann geldur nú fyrir.
Svo að það væri í lagi að fangelsa fólk sem drekkur Sprite vegna þess að það drakk Sprite þegar að það var bannað?
Þessi aðili sem fór í fangelsi - var óskynsamur. Alveg burtséð frá því hversu umdeild lögin eru, þá er nokkuð augljóst að það er ávalt óskynsamlegt að brjóta þau.
Hann mat það svo að persónunautnin væri virði áhættunnar að vera fangelsaður og 1/100.000 aukningunnar í líkum þess að hann þrói með sér geðsjúkdóm.
Af hverju ætti hann að fara í fangelsi væri góð spurning.
Svo ertu orðinn svo yfirgnæfilega upptekinn af því að sanna það og sýna hér í eitt skipti fyrir öll að þú hafir sko sannarlega rétt fyrir þér, og að allt þetta sem þú vitnar í sé hið rétta í þessu máli - en sérð varla fyrir æðunum poppandi útúr hausnum á þér rökin sem koma á móti, rannsóknir sem hafa verið gerðar og sýna fram á hið gagnstæða.
Værirðu ekki yfirgnæfilega upptekinn af því að hjálpa fólki ef þú gætir það? Myndir þú chilla á meðan að fólk færi í fangelsi fyrir að viðra skoðanir sínar? Drekka kók? Spliffa donk?'
Sýndu mér þessar rannsóknir sem hafa verið gerðar og sýna fram á hið gagnstæða - að bönn virki og séu samfélögum til betrunar.
Sýndu mér svo mig með æðarnar poppandi útúr hausnum á mér þegar rök koma á móti.
Ég er með úttektir frá nefndum sem að ríkisstjórnir og lögvaldshafar skipuðu - hvað ert þú með?
Farðu nú að klifra niður af þessu háa stalli þínum og slappa af, ert ekki í neinum rétti hér með að segja einum eða öðrum að hætta að kommenta, eða fara.
Ég segi fólki sem að fer að tala um eitthvað bull á þræðinum um maríjúana og maríjúana lögbannið hiklaust að fara ef það geti ekki komið sér on topic.
Það að tala um málflutning eins og að þú sért að lesa inná lesbók tengist þræðinum óvart bara ekki.