Síða 84 af 88

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 27. Jan 2022 21:00
af jardel
er eitthvað vesen á hringdu núna eða er stöð2 appið í ruglinu stöð2+ gerir ekki annað en að hökkta. er wired.

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 28. Jan 2022 20:48
af EinarGisla
Daz skrifaði:
hannesstef skrifaði:Hvaða gerð af routerum eruð þið með?

Stefnið þið eitthvað á það að setja upp ljósleiðara á svæðum sem Síminn býður ekki upp á fyrir fólk að tengjast við. Veit til dæmis að á svæðinu mínu er ljósleiðari í jörð en Síminn telur víst ekki vera nægan markað hjá mér til að bjóða upp á ljósleiðarann


Býður síminn upp á nettengingar í gegnum ljósleiðara? Er það ekki bara Vodafone (og Gagnaveitan)..



Já, míla rekur ljósleiðarakerfi um allt land sem allir þjónustuaðilar geta fengið aðgang að. Svo bíður síminn líka uppá tengingar gegnum kerfi Tengirs, Gagnaveitu Reykjavíkur o.fl.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 22. Feb 2022 20:47
af pukinn
Er engin leið til að skrá mac addressu á router (fyrir gagnaveitu ljós) utan oppnunar tíma Hringdu?
Endurræstu og endurræsti en fékk alltaf bara 10.xxx ip tölu.
Einu sinni var hægt að logga sig inn á self service síðu...

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 22. Feb 2022 21:13
af Aroniz
pukinn skrifaði:Er engin leið til að skrá mac addressu á router (fyrir gagnaveitu ljós) utan oppnunar tíma Hringdu?
Endurræstu og endurræsti en fékk alltaf bara 10.xxx ip tölu.
Einu sinni var hægt að logga sig inn á self service síðu...


Getur prófað facebook spjallið hjá þeim.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 22. Feb 2022 23:26
af HringduEgill
pukinn skrifaði:Er engin leið til að skrá mac addressu á router (fyrir gagnaveitu ljós) utan oppnunar tíma Hringdu?
Endurræstu og endurræsti en fékk alltaf bara 10.xxx ip tölu.
Einu sinni var hægt að logga sig inn á self service síðu...


Getur sent mér línu hérna með kt og ég græja það.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 23. Feb 2022 00:14
af pukinn
HringduEgill skrifaði:
pukinn skrifaði:Er engin leið til að skrá mac addressu á router (fyrir gagnaveitu ljós) utan oppnunar tíma Hringdu?
Endurræstu og endurræsti en fékk alltaf bara 10.xxx ip tölu.
Einu sinni var hægt að logga sig inn á self service síðu...


Getur sent mér línu hérna með kt og ég græja það.

Takk, ég henti á þig skilaboðum.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 23. Feb 2022 06:27
af Climbatiz
prufaðu front01.gagnaveita.is

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 23. Feb 2022 10:18
af Daz
EinarGisla skrifaði:
Daz skrifaði:
hannesstef skrifaði:Hvaða gerð af routerum eruð þið með?

Stefnið þið eitthvað á það að setja upp ljósleiðara á svæðum sem Síminn býður ekki upp á fyrir fólk að tengjast við. Veit til dæmis að á svæðinu mínu er ljósleiðari í jörð en Síminn telur víst ekki vera nægan markað hjá mér til að bjóða upp á ljósleiðarann


Býður síminn upp á nettengingar í gegnum ljósleiðara? Er það ekki bara Vodafone (og Gagnaveitan)..



Já, míla rekur ljósleiðarakerfi um allt land sem allir þjónustuaðilar geta fengið aðgang að. Svo bíður síminn líka uppá tengingar gegnum kerfi Tengirs, Gagnaveitu Reykjavíkur o.fl.

Þetta er svar við 11 ára gamalli spurningu :megasmile

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 23. Feb 2022 16:56
af kjartanbj
Climbatiz skrifaði:prufaðu front01.gagnaveita.is


Nokkur ár síðan þeir fjarlægðu þann möguleika og gerðu notendum erfiðara fyrir , skil ekki afhverju þessu var breytt , mjög stórt skref afturábak, bilar eitthvað hjá manni kannski kl 11 um kvöld og maður ætlar að skipta um router til að redda sér og þá er ekkert hægt að gera nema spoofa mac addressu ef routerin bíður uppá það

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 23. Feb 2022 17:03
af Climbatiz
kjartanbj skrifaði:
Climbatiz skrifaði:prufaðu front01.gagnaveita.is


Nokkur ár síðan þeir fjarlægðu þann möguleika og gerðu notendum erfiðara fyrir , skil ekki afhverju þessu var breytt , mjög stórt skref afturábak, bilar eitthvað hjá manni kannski kl 11 um kvöld og maður ætlar að skipta um router til að redda sér og þá er ekkert hægt að gera nema spoofa mac addressu ef routerin bíður uppá það


hún virkar ennþá hjá mér, þó ekki alveg 100%, virkar til að setja upp nýjann router, samt ekki til að taka út gamlann

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 28. Feb 2022 11:41
af gnarr
Daz skrifaði:
EinarGisla skrifaði:
Daz skrifaði:
hannesstef skrifaði:Hvaða gerð af routerum eruð þið með?

Stefnið þið eitthvað á það að setja upp ljósleiðara á svæðum sem Síminn býður ekki upp á fyrir fólk að tengjast við. Veit til dæmis að á svæðinu mínu er ljósleiðari í jörð en Síminn telur víst ekki vera nægan markað hjá mér til að bjóða upp á ljósleiðarann


Býður síminn upp á nettengingar í gegnum ljósleiðara? Er það ekki bara Vodafone (og Gagnaveitan)..



Já, míla rekur ljósleiðarakerfi um allt land sem allir þjónustuaðilar geta fengið aðgang að. Svo bíður síminn líka uppá tengingar gegnum kerfi Tengirs, Gagnaveitu Reykjavíkur o.fl.

Þetta er svar við 11 ára gamalli spurningu :megasmile



Þú fékkst allavega svar á endanum :japsmile

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 15. Júl 2022 22:10
af Maradona
Nú er ég með 1000 Mbps tengingu hjá Hringdu en speed test í snúrutengdu Apple Tv sýnir aldrei meira en 100 Mbps, er þetta ekki eitthvað óeðlilegt?

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 15. Júl 2022 23:29
af kjartanbj
Maradona skrifaði:Nú er ég með 1000 Mbps tengingu hjá Hringdu en speed test í snúrutengdu Apple Tv sýnir aldrei meira en 100 Mbps, er þetta ekki eitthvað óeðlilegt?



Hvaða Apple Tv er þetta? er Ethernet portið ekki bara 100Mbit max ? gæti líka verið snúran sem er ekki gigabit eða einhver annar flöskuháls

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 15. Júl 2022 23:30
af kjartanbj
Ég er td með gamalt 3rd gen Apple TV og það er bara með 100Mbit ethernet

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 16. Júl 2022 00:20
af HringduEgill
Maradona skrifaði:Nú er ég með 1000 Mbps tengingu hjá Hringdu en speed test í snúrutengdu Apple Tv sýnir aldrei meira en 100 Mbps, er þetta ekki eitthvað óeðlilegt?


Hæ! Þetta hljómar eins og gamalt Apple TV eða þá
að snúran ræður ekki við meira en 100 Mbit.

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 16. Júl 2022 01:36
af Maradona
Sælir drengir, gamalt Apple TV hljómar eins og ástæðan. Takk fyrir skjót svör :)

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 25. Júl 2022 08:46
af Climbatiz
eitthvað vesen með hraða, hvert speedtest á eftir öðru bæði á wired tengingu á desktop og laptop næ bara um 250mbit hraða upp og niður, það var fínn hraði (800mbit) bara fyrir svona viku síðan, restartaði routerinn áðan og gerði annað speedtest og náði 400mbit up/down en svo datt það aftur niðrí 250mbit, hef prufað að slökkva á öllum file sharing og prufa aftur en næ ekkert betri hraða, er með QoS disabled í network á báðum vélum en get ekki disableað í router (þó er stillt allt það hraðasta í öllum flokkum), veit eiginlega ekki hvað annað ég get gert

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 25. Júl 2022 18:29
af HringduEgill
Climbatiz skrifaði:eitthvað vesen með hraða, hvert speedtest á eftir öðru bæði á wired tengingu á desktop og laptop næ bara um 250mbit hraða upp og niður, það var fínn hraði (800mbit) bara fyrir svona viku síðan, restartaði routerinn áðan og gerði annað speedtest og náði 400mbit up/down en svo datt það aftur niðrí 250mbit, hef prufað að slökkva á öllum file sharing og prufa aftur en næ ekkert betri hraða, er með QoS disabled í network á báðum vélum en get ekki disableað í router (þó er stillt allt það hraðasta í öllum flokkum), veit eiginlega ekki hvað annað ég get gert


Ef þú sendir mér línu get ég skoðað þetta með þér.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 30. Ágú 2022 21:27
af Maradona
Nú er ég að flytja á morgun og ekkert pælt í að flytja netið á milli heimilisfanga. Hvernig flytur maður ljósleiðarann á milli og hvað tekur slíkt langan tíma?

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 30. Ágú 2022 21:33
af SundeR
Maradona skrifaði:Nú er ég að flytja á morgun og ekkert pælt í að flytja netið á milli heimilisfanga. Hvernig flytur maður ljósleiðarann á milli og hvað tekur slíkt langan tíma?


Heyrir í fjarskiptafyrirtækinu og tilkynnir flutning á netinu.

Ef það er Ljósleiðarabox á nýja staðnum sem er tengt og hefur nýlega verið í notkun er oft hægt að græja þetta samdægurs, annars nokkrir virkir dagar.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 31. Ágú 2022 23:49
af GeiR
Góða kvöldið

Kl 23:30 þá fór netið af hérna heima.

Restarta router eða ljósleiðaraboxi hjálpaði ekkert

Einhver annar hér sem er netlaus ?

Kv Geir

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 01. Sep 2022 00:41
af Black
GeiR skrifaði:Góða kvöldið

Kl 23:30 þá fór netið af hérna heima.

Restarta router eða ljósleiðaraboxi hjálpaði ekkert

Einhver annar hér sem er netlaus ?

Kv Geir


Ekkert vesen hjá mér í kvöld, er í Reykjavík :D

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 01. Sep 2022 08:00
af HringduEgill
GeiR skrifaði:Góða kvöldið

Kl 23:30 þá fór netið af hérna heima.

Restarta router eða ljósleiðaraboxi hjálpaði ekkert

Einhver annar hér sem er netlaus ?

Kv Geir


Sælir. Sendu mér endilega skilaboð með kennitölu
svo ég geti skoðað!

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 02. Sep 2022 19:44
af GeiR
HringduEgill skrifaði:
GeiR skrifaði:Góða kvöldið

Kl 23:30 þá fór netið af hérna heima.

Restarta router eða ljósleiðaraboxi hjálpaði ekkert

Einhver annar hér sem er netlaus ?

Kv Geir


Sælir. Sendu mér endilega skilaboð með kennitölu
svo ég geti skoðað!



Takk kærlega fyrir frábæra þjónustu :D

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 06. Sep 2022 22:00
af DJOli
Einhver bilun í gangi?
Búinn að prófa að flusha dns, skipta um dns og restarta router.

Tracing route to mbl.is [92.43.192.120]
over a maximum of 30 hops:

1 <1 ms <1 ms <1 ms 192.168.1.1
2 61 ms 57 ms 54 ms 204-96-22-46.internal.hringdu.is [46.22.96.204]
3 82 ms 100 ms 109 ms 203-96-22-46.internal.hringdu.is [46.22.96.203]
4 110 ms 107 ms 93 ms 202-96-22-46.internal.hringdu.is [46.22.96.202]
5 111 ms 109 ms 107 ms MULI-IXP-NOVA.c.is [185.1.200.5]
6 104 ms 102 ms * 213.181.116.244
7 * 111 ms 99 ms secure.mbl.is [92.43.192.120]

Trace complete.

Er að fá 80-110ms og undir 10mb/s í dl / undir 3mb/s í ul við alla speedtest servera á Íslandi.