Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Allt utan efnis

Höfundur
playman
Vaktari
Póstar: 2000
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 72
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Er maðurinn alveg búinn að tapa sér?

Pósturaf playman » Fös 08. Feb 2013 15:30

Reykingar bann í heilu bæjarfélagi?
Skil það og virði það að banna reykingar á lóðum stofnanna, en mér fynst það aðeins of langt gengið að banna það í öllu bæjarfélaginnu

Hvað fynst ykkur?

http://eyjan.pressan.is/frettir/2013/02 ... -kopavogs/


EDIT: 'N' bætt í titli *ManiO*


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9


Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf Cascade » Fös 08. Feb 2013 15:40

Frábært algjörlega

Ótrúlegt hvað reykingarfólk finnst sjálfsagt að umhverfið í heild sinni séu ruslatunnur fyrir stubbana



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2495
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 117
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf svanur08 » Fös 08. Feb 2013 15:48

Já þetta er bara út í hött, það er alltaf verið að banna meira og meira í þessum heimi, á endanum má ekkert og ekkert frelsi.


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7157
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1045
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf rapport » Fös 08. Feb 2013 15:54

http://www.smh.com.au/travel/travel-new ... -pmpt.html

Reykingabann utandyra á opinberum stöðum t.d. úti á gangstétt meikar perfect sens og ætti að framfylgja.

Líka að banna reykingar inni á heimilum ef börn búa þar = barnaverndarmál annars.

Það er skelfilegt þegar krakkar hætta að umgangast nágranna og vini vegna reykingalyktar eða að maður finnur á lyktinni hvar barnið manns hefur verið yfir daginn.

Ég er hættur að fá samviskubit yfir því að segja við mín börn að fara ekki inn á heimili þar sem reykt er inni, það er ógeðslegt og það er ekki mín samviska sem er tjörguð.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf Viktor » Fös 08. Feb 2013 15:57

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara að skoða hvort hægt sé að setja í lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar bann við reykingum utanhúss við stofnanir í Kópavogi, eins og t.d. heilsugæslu, söfn og sundlaugar.


Finnst ekkert sjálfsagðara.

Frábært framtak!

svanur08 skrifaði:Já þetta er bara út í hött, það er alltaf verið að banna meira og meira í þessum heimi, á endanum má ekkert og ekkert frelsi.

Mér finnst meira frelsi fólgið í því að geta farið inn á heilsugæslustöð og andað að mér frísku lofti frekar en sígarettulykt.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf GuðjónR » Fös 08. Feb 2013 16:03

Mér finnst þetta flott.



Skjámynd

Jon1
Geek
Póstar: 843
Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
Reputation: 15
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf Jon1 » Fös 08. Feb 2013 16:05

við svona stofnanir þá er þetta flott ! en þetta er að nálgast forræðis hyggju


i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64


Höfundur
playman
Vaktari
Póstar: 2000
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 72
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf playman » Fös 08. Feb 2013 16:09

Sallarólegur skrifaði:
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara að skoða hvort hægt sé að setja í lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar bann við reykingum utanhúss við stofnanir í Kópavogi, eins og t.d. heilsugæslu, söfn og sundlaugar.


Finnst ekkert sjálfsagðara.

Frábært framtak!

svanur08 skrifaði:Já þetta er bara út í hött, það er alltaf verið að banna meira og meira í þessum heimi, á endanum má ekkert og ekkert frelsi.

Mér finnst meira frelsi fólgið í því að geta farið inn á heilsugæslustöð og andað að mér frísku lofti frekar en sígarettulykt.


Ekki gleyma þessu
Jafnframt að athuga hvort möguleiki er á að banna alfarið reykingar í landi Kópavogs.

Þarna fynst mér þeir/hann vera að ganga of lángt.

Að banna reykingar utanhúss við stofnanir í Kópavogi, eins og t.d. heilsugæslu, söfn og sundlaugar fynst mér í raun ekkert athugavert.


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf GuðjónR » Fös 08. Feb 2013 16:13

Ef fólk vill reykja þá á fólk að fá að reykja. Að sama skapi ef ég vil ekki fá reykinn á mig þá á ég ekki að þurfa þess, hvort sem það er inni á veitingastaðnum eða á tröppunum fyrir utan hann.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf tlord » Fös 08. Feb 2013 16:17

þessi viðbjóður ætti auðvitað að hverfa. þe tóbak

bara spurning um hvað á að ganga langt..



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2495
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 117
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf svanur08 » Fös 08. Feb 2013 16:21

Að sjálfsögðu vill maður ekki anda af sér þessum reyk þegar maður reykir ekki sjálfur þess vegna tek í bara tóbak í nefið ;) en þetta allt slæmt þetta tóbak.


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR


Höfundur
playman
Vaktari
Póstar: 2000
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 72
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf playman » Fös 08. Feb 2013 16:23

GuðjónR skrifaði:Ef fólk vill reykja þá á fólk að fá að reykja. Að sama skapi ef ég vil ekki fá reykinn á mig þá á ég ekki að þurfa þess, hvort sem það er inni á veitingastaðnum eða á tröppunum fyrir utan hann.

Það er auðvitað rétt, en ætti veitingar staðurinn þá ekki að sjá um að kúnnin geti labbað inn án Þess að labba í gegnum reykin?
Of oft hef ég séð að stubba húsin séu staðsett við útidyrahurðina, og reykingar fólk safnast ævinlega alltaf þar sem þau eru, væri
þá ekki ráð að færa stubba húsin frá hurðinni og merkja svæði sem er ætlað reykingum?


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf beggi90 » Fös 08. Feb 2013 16:25

Var sammála þangað til :
Jafnframt að athuga hvort möguleiki er á að banna alfarið reykingar í landi Kópavogs.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf GuðjónR » Fös 08. Feb 2013 16:26

playman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ef fólk vill reykja þá á fólk að fá að reykja. Að sama skapi ef ég vil ekki fá reykinn á mig þá á ég ekki að þurfa þess, hvort sem það er inni á veitingastaðnum eða á tröppunum fyrir utan hann.

Það er auðvitað rétt, en ætti veitingar staðurinn þá ekki að sjá um að kúnnin geti labbað inn án Þess að labba í gegnum reykin?
Of oft hef ég séð að stubba húsin séu staðsett við útidyrahurðina, og reykingar fólk safnast ævinlega alltaf þar sem þau eru, væri
þá ekki ráð að færa stubba húsin frá hurðinni og merkja svæði sem er ætlað reykingum?


Það getur verið erfitt, t.d. á Laugaveginum eð í Kringlunni? Getur fólk ekki bara reykt heima hjá sér eða sleppt þessum ósið?
Ég man bara ekki eftir því að hafa farið í Kringluna án þess að labba í gegnum þessa viðbjóðslegu stybbu.



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 57
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf Xovius » Fös 08. Feb 2013 16:32

playman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ef fólk vill reykja þá á fólk að fá að reykja. Að sama skapi ef ég vil ekki fá reykinn á mig þá á ég ekki að þurfa þess, hvort sem það er inni á veitingastaðnum eða á tröppunum fyrir utan hann.

Það er auðvitað rétt, en ætti veitingar staðurinn þá ekki að sjá um að kúnnin geti labbað inn án Þess að labba í gegnum reykin?
Of oft hef ég séð að stubba húsin séu staðsett við útidyrahurðina, og reykingar fólk safnast ævinlega alltaf þar sem þau eru, væri
þá ekki ráð að færa stubba húsin frá hurðinni og merkja svæði sem er ætlað reykingum?


Þetta er nú bara einmitt það sem verið er að gera. 'Veitingastaðurinn' (bærinn) er að sjá til þess að fólk geti labbað inn án þess að labba í gegnum reyk þegar það fer inn í byggingar bæarins.




Daniels
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Sun 14. Okt 2012 12:08
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf Daniels » Fös 08. Feb 2013 16:40

Snillingur þessi maður. Myndi kjósa hann án þess að líta á hina bara útaf þessu.

Get ekki beðið eftir því þegar reykingar verða alfarið bannaðar og þvílíkt há sekt við þá sem kaupa sígarettur erlendis og koma með til landsins.




shawks
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Mán 12. Sep 2011 18:25
Reputation: 10
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf shawks » Fös 08. Feb 2013 16:46

rapport skrifaði:http://www.smh.com.au/travel/travel-news/singapore-sticks-to-ban-on-chewing-gum-20100305-pmpt.html

Reykingabann utandyra á opinberum stöðum t.d. úti á gangstétt meikar perfect sens og ætti að framfylgja.

Líka að banna reykingar inni á heimilum ef börn búa þar = barnaverndarmál annars.

Það er skelfilegt þegar krakkar hætta að umgangast nágranna og vini vegna reykingalyktar eða að maður finnur á lyktinni hvar barnið manns hefur verið yfir daginn.

Ég er hættur að fá samviskubit yfir því að segja við mín börn að fara ekki inn á heimili þar sem reykt er inni, það er ógeðslegt og það er ekki mín samviska sem er tjörguð.



1. Sammála.
2. Til að framfylgja þessu verður þú að vera tilbúinn að hleypa inn á gafl hjá þér opinberum eftirlitsmönnum (Stubbavakt Ríkisins, t.d) með tilheyrandi frekjugangi og valdníðslu.


"Time is a drug. Too much of it kills you."

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5547
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1035
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf appel » Fös 08. Feb 2013 17:34

Það eru mörg sjónarmið sem togast á:

1. Reykingar eru óhollar fyrir þig, og því þarf að banna. (passa upp á þig, forræðishyggja)
2. Reykingar valda sjúkdómum sem heilbrigðiskerfið þarf að kljást við með miklum tilkostnaði. (spara peninga fyrir samfélagið)
3. Stubbar um allt. (hreinlætismál)
4. Óbeinar reykingar. (þú skaðar aðra)


Mitt álit er:
1. Reykingar er viðbjóðslegar, en þér á að vera frjálst að reykja viljir þú það.
2. Álagning á sígarettur þarf að vera í samræmi við kostnað sem fellur á heilbrigðiskerfið vegna þeirra.
3. Mætti sekta þig ef þú ert sóði.
4. Þetta er stærsti faktorinn finnst mér. Þú ert frjáls svo lengi sem þú gengur ekki á frelsi annarra. Þegar þú ert að spúa reyk í lungum á öðrum sem vill hann ekki þá á að banna þér að spúa reyk, hvar sem það er. Mér finnst að reykingar ættu að banna allsstaðar þar sem einhverjir geta orðið fyrir barðinum á reyknum.

Á heimili gætu verið börn, en fullorðið fólk tekur ekki tillit til þeirra og reykir inni. Hvor rétturinn er veigameiri, réttur fullorðins einstaklings til að reykja inni hjá sér eða réttur barnsins til að njóta æsku sinnar án óbeinna reykinga og sjúkdómsvandamálum sem því fylgir? Í raun er það barnaníð að reykja í kringum börn, rétt einsog að ganga í skrokk á börnum og senda þau á sjúkrahús. Fólk ætti að missa forræðið.

Reykingafólk er svo sjálfhverfult að það hugsar bara um sjálft sig og sína fíkn. Margir í fjölbýlum kannast við það þegar nágranninn fer út á svalir og reykir þar, en svo blæs vindurinn reyknum inn í opinn glugga á næstu íbúð. Sígarettufnykurinn fyllir íbúðina, og ekki ert hægt að lofta út! Þú gætir verið að reykja á göngustíg og svo kemur skokkari sem hleypur framhjá þér, þá andar hann að sér sígarettureyk. Ég hef oft orðið fyrir því... og þetta er viðbjóðslegt.

Reykurinn fer alltaf eitthvert, hann gufar bara ekki upp í ekkertið þegar þú blæst honum frá þér, og sumir verða fyrir honum.

En að mínu mati, ef þú ert staddur einhversstaðar úti í sveit, ekki sála í kringum þig í kílómeters radíus, þá er engin ástæða að banna þér að kveikja í einni rettu.

Ástandið hefur batnað mikið á síðustu 1-2 áratugum. Búið að banna reykingar INNI í íþróttahúsum (það var virkilega mikið reykt í hléi í leikjum), búið að banna reykingar á vinnustöðum (gætuð þið ímyndað ykkur ef fólk reykti INNI í vinnunni í dag?), búið að banna reykingar á skemmtistöðum (THANK YOU GOD!!). Öll skrefin voru rétt skref, og ég held að það verði aldrei stigið rangt skref í þeirri viðleitni að útrýma óbeinum reykingum.


Einföld lausn væri að skylda reykingamann að slökkva í ef hann er beðinn um það, hvar sem er og hvenær sem er. Geri hann það ekki er hægt að kæra fyrir ígildi líkamsárásar (með reyk!).


*-*


biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 4
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf biturk » Fös 08. Feb 2013 18:29

Gaman að lesa heimsku og banngleði þeirra sem hata reykingar

Margt sem fer i taugarnar á mér en ekki vill ég láta banna allt

sent úr s2


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!


SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf SteiniP » Fös 08. Feb 2013 19:12

Alveg merkilegt hvað fólk tekur því fagnandi að láta taka af sér mannréttindin.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf GuðjónR » Fös 08. Feb 2013 19:15

SteiniP skrifaði:Alveg merkilegt hvað fólk tekur því fagnandi að láta taka af sér mannréttindin.

Finnst þér mannrétindi að fá að menga fyrir öðrum?
Það er bannað að pissa og kúka í sundlaugum, finnst þér það líka skerðing á mannréttindum þínum?



Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf hfwf » Fös 08. Feb 2013 19:16

GuðjónR skrifaði:
SteiniP skrifaði:Alveg merkilegt hvað fólk tekur því fagnandi að láta taka af sér mannréttindin.

Finnst þér mannrétindi að fá að menga fyrir öðrum?
Það er bannað að pissa og kúka í sundlaugum, finnst þér það líka skerðing á mannréttindum þínum?


útúrsnúningur. Það er leyfilegt að reykja. Punktur.




SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf SteiniP » Fös 08. Feb 2013 19:30

GuðjónR skrifaði:
SteiniP skrifaði:Alveg merkilegt hvað fólk tekur því fagnandi að láta taka af sér mannréttindin.

Finnst þér mannrétindi að fá að menga fyrir öðrum?
Það er bannað að pissa og kúka í sundlaugum, finnst þér það líka skerðing á mannréttindum þínum?

Það er bannað að pissa og kúka í sundlaugum, en á þá að banna fólki að pissa og kúka allsstaðar?



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf Danni V8 » Fös 08. Feb 2013 19:35

Mér finnst alveg nóg að banna þetta á public places. AKA. banna að reykja allstaðar þar sem þeir sem ekki reykja geta ekki komist hjá því með góðu móti að vera. T.d. við innganga á búðum og skemmtistöðum.

Það var nýlega verið að breyta til á mínum vinnustað, við vorum að flytja aðstöðuna okkar í annað hús. Í gamla húsinu gat ég hvorki farið út að vinna né farið á klósettið án þess að fara framhjá reykingarkompunni og fá reykinn beint í andlitið. Núna var reykingarkompan sett úti í óupphitað rými langt frá þeim sem reykja ekki, svo þetta böggar mig ekki neitt lengur! Bara það gerði vinnustaðinn svo miklu betri í mínum augum. Núna ÞARF ég ekki að finna stybbuna sem fylgir þessu og labba í gegnum reykjarmökk til að stunda mína vinnu. En ef ég vill spjalla við reykingarfólkið og sitja með þeim inní reyk þá er það mitt val og ég veit alveg hvað fylgir því.

Svona vill ég hafa þetta allstaðar. Ég vil geta haft valið á því að vera í kringum reykingarfólk, en ekki vera tilneyddur til þess. Það er algjör vitleysa finnst mér að banna reykingar alveg.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 57
Staða: Ótengdur

Re: Er maðurinn alveg búin að tapa sér?

Pósturaf Xovius » Fös 08. Feb 2013 19:38

hfwf skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
SteiniP skrifaði:Alveg merkilegt hvað fólk tekur því fagnandi að láta taka af sér mannréttindin.

Finnst þér mannrétindi að fá að menga fyrir öðrum?
Það er bannað að pissa og kúka í sundlaugum, finnst þér það líka skerðing á mannréttindum þínum?


útúrsnúningur. Það er leyfilegt að reykja. Punktur.


Það er leyfilegt að reykja sumstaðar.
Umræðan er hinsvegar um hvort það ætti að vera leyfilegt. Ættu það ekki að vera sjálfsögð mannréttindi að fólk sem ekki vill reykja þurfi ekki að anda að sér reyk hvert sem það fer.

SteiniP skrifaði:Það er bannað að pissa og kúka í sundlaugum, en á þá að banna fólki að pissa og kúka allsstaðar?


Nei, fólk ætti hinsvegar ekki að vera að skvetta því yfir alla aðra heldur halda því fyrir sjálfann þig á þínu eigin heimili.