Síða 1 af 1

Stíflusnákur?

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:06
af Pandemic
Er að velta fyrir mér hvort það sé hægt að kaupa einhverstaðar "plumbers snake" á Íslandi og hvað heitir þetta á íslensku?
Bý í frekar gömlu húsi þar sem lagnirnar eiga til að stíflast t.d í sturtunni og það er rándýrt að fá pípara til að koma með svona græju og ég hef séð þær í bandaríkjunum fara á 20-30 dollara.

Mynd

Re: Stíflusnákur?

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:31
af Xberg
Getur fengið svona (svipað) í piparadeildinni í Byko.

Re: Stíflusnákur?

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:35
af Nitruz
Stærri tækin sem stífluþjónustur nota er kallað snígill, gæti verið að þetta sé bara barna snígill hehe

Re: Stíflusnákur?

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:39
af urban
http://www.sindri.is/is/rafmagnsverkfae ... kshreinsir
Reyndar töluvert dýrari græju en þú varst að spá í

Re: Stíflusnákur?

Sent: Þri 21. Jan 2014 08:49
af playman
Sá einhverntíman svona í verkfæralagernum, og það var ekkert svo dýrt.

Re: Stíflusnákur?

Sent: Þri 21. Jan 2014 09:51
af aggibeip
Getur notað svona til að hengja upp gardínur, man ekki hvað það heitir, þetta er basically bara gúmíhúðaður gormur. Klippir endann á honum tekur gúmíið af ca 5cm og opnar gorminn á endanum. Síðan treður þú honum bara í draslið, snýrð honum og halar honum út með öllu ógeðinu :happy

Ez =D>

Re: Stíflusnákur?

Sent: Mán 02. Mar 2026 15:59
af Climbatiz
necro thread...

so ég var að heyra um þessa snáka... hringdi í pípulagningaþjónustu og þeir vildu 30þús fyrir einfalda stíflu útaf hári... put your thinking caps on fellas:

ef einhver hefur einhverntímann sömu svör þá fann ég nokkra valmöguleika undir 5þús :Þ

Í BYKO:

Lux Stíflugormur 3mtr
"3 metra stíflugormur til að losa stíflur úr rörum frá 10-30mm í þvermál." - 2600kr

Stífluþráður
"Stíflulosari fyrir vaska og frárennslislagnir. Hentar til hreinsunar pípa án efna. Lengd 52 cm. Skaftþvermál 32 mm. Fyrir pípustærðir 32–50 mm" - 1500kr

Í Húsasmiðjunni:

Stíflubarki 300cm
"" - 2900kr

Stíflubarki 500cm
"" - 4900kr

aldrei heyrt um þessi orð, virðist ekki vera algengt á Íslensku :Þ