Síðustu ár PC tölvunnar
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5616
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1057
- Staða: Ótengdur
Síðustu ár PC tölvunnar
http://www.engadget.com/2015/05/30/inte ... ck-review/
https://www.kickstarter.com/projects/15 ... 9-computer
Nú eru að koma fram full fledged PC tölvur í form-factor sem má líkja helst við USB lykil eða greiðslukort af stærð, "PC on a stick".
Ljóst er að þessi þróun mun aðeins halda áfram, hægt er að búa til örlitlar PC tölvur sem ná að gera allt það helsta í desktop umhverfi sem flestir þurfa. Plugga bara í skjáinn og bang, kominn með bara feykilega fína desktop tölvu.
Svo þegar skoðað er inn í nýja Apple Air þá kemur í ljóst að tölvan sjálf er bara lítið kort. Svo jú auðvitað mobile markaðurinn.
Öll merkin eru komin fram um að við getum vænst öflugra PC tölva í formi "sticks" innan 1-2 ára, og þá tala ég um "stick" sem geta gert alveg heilmikið og koðna ekki undan smá álagi.
Ég velti fyrir mér framtíð PC tölvunnar við þessi umskipti. Ljóst er að markaðshlutdeild hennar á eftir hrynja þegar fólk sér að það getur bara keypt sér $100 stick í stað $1000 atx turnvélar og gefur nærri sama umhverfi og upplifun, svo ég tali nú ekki um sparnað í rafmagni og plássi og snúrum.
Pjúralistarnir auðvitað mótmæla og segja þessi stick ómöguleg, ekki sé hægt að keyra nýjustu leikina á þessu. En fyrir hin 90% eru þessi stick nóg, hin 90% eru ekki að sækjast eftir þessu hraðasta og öflugasta. Þó má segja að mikið af þessum 90% séu nú þegar farin í annað en PC tölvur, enda fáir sem eru með PC tölvur í sínu nærumhverfi lengur, heima og í vinnu.
Eftir situr örsmár markaður fyrir hardcore PC geeka og PC gamera, sem jú vissulega telur í milljónum eða tugmilljónum, en í stóra samhenginu er það örsmár markaður. Stærð markaðar ræður öllu um framþróun, ef þetta er lítill markaður þá verða fjárfestingar litlar og þá sjáum við fram á mjög litla framþróun. Margir munu einfaldlega hætta að horfa á þennan markað.
Mobile markaður sem telur í milljörðum manna mun ætíð hafa forgang í fjárfestingum og framþróun, og við erum komin á það stig að mobile markaðurinn er að fara taka yfir PC markaðinn í næstum heild sinni.
Dauða PC tölvunnar hefur verið spáð margoft, en ég held að vandamálið sé að hingað til hefur ekkert getað leyst hana almennilega af hólmi, fyrir utan jú laptop tölvur. En núna erum við að sjá eitthvað sem getur valdið mikið "disruptioni" í PC geiranum, og það á eftir að hafa áhrif á allt PC ecosystemið.
*-*
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Skemmtileg vangavelta.
Ég held að það sem er löngu búið að eiga sér stað með cloud geymslu fyrir gögn , vinnustöðvar/virtual vélar af cloud , muni eiga sér stað á sambærilegan máta í leikjaheiminum.
Hvað er langt þangað til að þú getur keypt þér aðgang að stream þjónustu fyrir tölvuleikjaspilun yfir netið með 0 input lag ?
Dýrt hw yrði sama og óþarfi fyrir 90% af fólki.
Hvað er langt þangað til að allt sem heitir vélbúnaðarafköst fyrir hvaða vinnslu sem er verður bara vöruflokkur sem þú getur keypt á netinu ódýrt ?

Nörd
-
- Gúrú
- Póstar: 583
- Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
- Reputation: 80
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Það er alveg ljóst að það verða stórar breytingar í tölvuheiminum á næstu árum. Manni finnst samt símaþróunin líklegri en "PC on a stick" dæmið.
Öflugustu símarnir í dag er betri en 8-10 ára fullsize borðtölvur og þróun í allri afþreyingu hefur bent á síma/spjaldtölvur seinustu ár, sama hvort það er samfélagsmiðlar, fréttir, tónlist eða bíómyndir.
Ég sé mun frekar fyrir mér einhvers konar dokku fyrir síma, sem gefur þér samband við peripherals, eða stærri skjá, lyklaborð, o.s.fr. til að byrja með, og svo verður þetta eflaust þráðlaust einhvern tímann síðar.
Svo er líka spurning hvort að mainframe pælingin gæti jafnvel komið einhvers staðar sem millistig, því að streaming á leikjum (og eflaust öðru high-end multimedia) er ekki tilbúið í dag, ekki locally og hvað þá yfir internetið. Steamboxið er allavega að gæla við þessa pælingu.
En það er allavega eitthvað stórt byrjað að gerast.

Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.
-
- Vaktari
- Póstar: 2487
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Reputation: 236
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Hannesinn skrifaði:Það er alveg ljóst að það verða stórar breytingar í tölvuheiminum á næstu árum. Manni finnst samt símaþróunin líklegri en "PC on a stick" dæmið.
Öflugustu símarnir í dag er betri en 8-10 ára fullsize borðtölvur og þróun í allri afþreyingu hefur bent á síma/spjaldtölvur seinustu ár, sama hvort það er samfélagsmiðlar, fréttir, tónlist eða bíómyndir.
Ég sé mun frekar fyrir mér einhvers konar dokku fyrir síma, sem gefur þér samband við peripherals, eða stærri skjá, lyklaborð, o.s.fr. til að byrja með, og svo verður þetta eflaust þráðlaust einhvern tímann síðar.
Svo er líka spurning hvort að mainframe pælingin gæti jafnvel komið einhvers staðar sem millistig, því að streaming á leikjum (og eflaust öðru high-end multimedia) er ekki tilbúið í dag, ekki locally og hvað þá yfir internetið. Steamboxið er allavega að gæla við þessa pælingu.
En það er allavega eitthvað stórt byrjað að gerast.
Svipað og Microsoft eru að gera með Windows Phone 10, fídus sem kallast Continuum
Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Hvernig verður það þegar fólk er bara komið með litla tengipunkta í hendurnar og allt cpu powereið er í skýinu eða blackbox leikjatölvum?
Ég held að þetta sé ekki góð þróun, þetta "lokar" tölvuheiminum svolítið...

- Stjórnandi
- Póstar: 16589
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2140
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Athyglisverðar pælingar, símarnir stækka og tölvurnar minnka. Stream möguleikarnir verða meiri og meiri, ætli þetta verði ekki í þannig að þú kaupir þér"stream" aðgang að cross-platform ofurleikajvél og spilar svo remote. Verður þá með einhverskonar endastöð heima hjá þér, jafnvel eitthvað sem verður innbyggt í LCD skjáinn og TV.
Menn eru þegar farnir að fikta við þetta:
http://www.nvidia.com/object/cloud-gaming.html

- Póstar: 573
- Skráði sig: Sun 04. Mar 2007 14:19
- Reputation: 25
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Ja veistu mér finnst mjög jákvæð þróun að geta spilað hvaða leik sem er á næstum hvaða vél sem er í gegnum eitthverja áskriftarleið eins og þetta verður sennilega, þótt að það gæti drepið nörda tölvu markaðinn sem ég hef svo gaman af í dag!
-
- Vaktari
- Póstar: 2601
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 486
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Þetta verður athyglisverð þróun. Mörg platform eiga eftir að koma fram, mörg eiga eftir að deyja hratt.
En ég tel það vera rangt að segja að pc tölvan eigi 1-2 ár eftir ólifuð. Það er gróflega vanmetið getu PC tölvunnar.
Nú eru SMART tv´s og computer on a stick búið að vera til(android) í þó nokkur ár, þetta nýtist vel við ýmislegt en alls ekki allt.
Ég skal glaður éta þessi orð ofaní mig 2017, en ég hef ekki áhyggjur af því.

Sem stendur hef ég litlar áhyggjur af high end PC tölvum. Framleiðendur gætu allir farið yfir í pc on a stick en þeir sem væru með venjulegu high end tölvurnar mundu bæði vera taldir betri útaf breiðari vörulínu og því að vera með puttana í því nýjasta/besta. Svo má ekki gleyma því að þeir sem eiga high end tölvurnar eru líklegri til að vera spurðir af ættingjum og vinum hvað eigi að kaupa.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16589
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2140
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
PC tölvan eins og við þekkjum hana er búin að vera ótrúlega lífsseig, 198ogeitthvað komu fyrstu kassarnir á markað og þetta er nánast eins.
Þegar ég keypti fyrsta iMacinn 2008 þá var ég bara búinn að fá leið af þessum hlunkakössum og snúruveseni út um allt.
Og með húsið fullt af börnum þá var engin tími lengur fyrir svona grúsk.
Það eru samt skemmtilegar nýjungar, t.d. allar þessar smátölvur sem eru að koma, sticks, tölvur innbyggðar í skjái (eins og iMac).
Örþunnar laptops eins og Yoga3Pro og Macbook, spjaldtölvur og öflugir snjallsímar og úr.
Ég held samt að gömlu góðu kassarnir eigi fullt eftir, þeir sem framleiða hardware eru örugglega ekki tilbúnir að leggja árar í bát og hætta.
Það er og verður markaður fyrir kassana áfram, hugsalega í breyttri mynd, þ.e. nettari setup. En á endanum munu þeir hverfa, en það verður örugglega ekki næstu tíu árin.

- Besserwisser
- Póstar: 3082
- Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
- Reputation: 48
- Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Það verður gaman að skoða þennan þráð árið 2020 og sjá hvar við stöndum þá, ég er enþá jafn sannfærður og ég var fyrir 3 árum um að Apple myndi deyja út/minnka verulega og Android myndi hrapa gersamlega niður í markaðshlutdeild, ég sagði þá að þetta myndi taka kanski 5 ár en þetta tekur eitthvað lengri tíma en mun samt gerast, ástæðan er einfaldlega öflugri lágwatta x86 örgjörvar, fyrirtækjarekstur og kunnugleiki við Windows.
Eftir því sem fleiri fyrirtæki fara að taka upp BYOD (Bring Your Own Device) stefnu fara fleiri spurningar að vakna upp vaðandi öryggi þeirra tækja sem fá að tengjast fyrirtækjanetinu, þar er Google ekkert svakalega vinsælt þar sem að notendaskilmálarnir gefur þeim tækjum og notendum Chrome ansi mikinn rétt sem að fyrirtæki eru ekkert endilega til í að gefa, líklegra finnst mér að Google tæki og vafrar verði einfaldlega bönnuð í fyrirtækjanetum.
Í mobile væðingu fyrirtækja varð Apple fyrir valinu og verður það eitthvað enn en á endanum munu þægindin við að hafa bara einn Microsoft aðgang og nota hann til að skrá sig inn í símann, spjaldtölvuna, eða fartölvuna hvort sem er heima eða í vinnunni ástæðan fyrir því að Apple hlutdeildin mun minnka.
Á endanum verðu það væntanlega þannig að alvöru leikir verða streamaðir eða leiknir í gegnum vafra, spurning hversu langt er í það

Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
-
- Geek
- Póstar: 837
- Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
- Reputation: 146
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Þegar að sæmileg leikjavél kemst fyrir í svona stick, hvað verður þá hægt að gera með fullblown turn
Verðlöggur alltaf velkomnar.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3082
- Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
- Reputation: 48
- Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
beatmaster skrifaði:Það verður gaman að skoða þennan þráð árið 2020 og sjá hvar við stöndum þá, ég er enþá jafn sannfærður og ég var fyrir 3 árum um að Apple myndi deyja út/minnka verulega og Android myndi hrapa gersamlega niður í markaðshlutdeild, ég sagði þá að þetta myndi taka kanski 5 ár en þetta tekur eitthvað lengri tíma en mun samt gerast, ástæðan er einfaldlega öflugri lágwatta x86 örgjörvar, fyrirtækjarekstur og kunnugleiki við Windows.
Eftir því sem fleiri fyrirtæki fara að taka upp BYOD (Bring Your Own Device) stefnu fara fleiri spurningar að vakna upp vaðandi öryggi þeirra tækja sem fá að tengjast fyrirtækjanetinu, þar er Google ekkert svakalega vinsælt þar sem að notendaskilmálarnir gefur þeim tækjum og notendum Chrome ansi mikinn rétt sem að fyrirtæki eru ekkert endilega til í að gefa, líklegra finnst mér að Google tæki og vafrar verði einfaldlega bönnuð í fyrirtækjanetum.
Í mobile væðingu fyrirtækja varð Apple fyrir valinu og verður það eitthvað enn en á endanum munu þægindin við að hafa bara einn Microsoft aðgang og nota hann til að skrá sig inn í símann, spjaldtölvuna, eða fartölvuna hvort sem er heima eða í vinnunni ástæðan fyrir því að Apple hlutdeildin mun minnka.
Á endanum verðu það væntanlega þannig að alvöru leikir verða streamaðir eða leiknir í gegnum vafra, spurning hversu langt er í það
Gaman að skoða þessar pælingar tæpum 10 árum seinna.
Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2859
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Reputation: 217
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
beatmaster skrifaði:Gaman að skoða þessar pælingar tæpum 10 árum seinna.
Ekki langt í að Iris gpu architectúrinn verði með fleiri hundrað EU einingar, er minnir mig rétt um 100... hvað gerir nvidia þá... Kórea og Taiwan í kínabrasi og Trúmp að efla USA innviði. Verður þá þörf á ATX turnkössum ?
Nú er bara að ná niður orkunotkuninni og nýta hana betur sbr amd
Síðast breytt af CendenZ á Fim 21. Nóv 2024 17:18, breytt samtals 1 sinni.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16589
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2140
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Skjákortin aldrei verið stærri...
Reyndar er Mac mini M4 Pro sæmilega öflugur miðað við stærð...
Reyndar er Mac mini M4 Pro sæmilega öflugur miðað við stærð...
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
GuðjónR skrifaði:Skjákortin aldrei verið stærri...
Reyndar er Mac mini M4 Pro sæmilega öflugur miðað við stærð...
Kva… þetta er rétt upp í nös á ketti…
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5616
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1057
- Staða: Ótengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Ljóst að BYOD var algjört rugl, bara security fallacy.
ATX er algjörlega úrelt fyrirbæri miðað við tækniframþróanir. AT kom fram snemma á 1980's og stuttu seinna ATX, sem við lifum við í dag.Einhver að segja mér að það sé "modern technology"? Skjákort á stærð við handtösku eru ekki vænleg framtíðarþróun, eitthvað afbrigði til stutts tíma.
Form factor skiptir nefnilega máli.
Massinn hefur algjörlega færst í mobile tæki, PC gæjar einsog við erum bara einsog bílanördarnir með klassísku bílana sína.
Já, stórt flott skjákort, er að hugsa um þetta í samanburði við bílaáhugamálin:

ITX er til, en hefur sína kosti og galla. Nettur Micro-ATX kassi finnst mér vera sweet-spot í dag. Mjög fáir nota meira heldur en eitt PCI-E tengi á móðurborðinu.
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
appel skrifaði:Ljóst að BYOD var algjört rugl, bara security fallacy.
Held að það styttist í að vinnustaðir skaffi skrifstofufólkinu sínu bara Office E3 leyfi + nokkur öpp + android síma + dokku/port replicator, mús, lyklaborð og tvo 27" 1440p skjái...
Að sjá hvernig Android er farið að fúnkera í dokkum er geggjað og hvernig Office umhverfið er orðið brúkanlegra...
Í raun gæti basic skrifstofu-worker, kennari, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur ofl. ofl gert flest sitt á "work prófíl" í Samsung síma þar sem allt er managed og undir control...
Ef fyrirtæki fara að gera þetta þá geta þau jafnvel sleppt því að setja upp netinnviði og allir nota bara 5G í símanum...
Held að BYOD sé alls ekki dautt, það er yfirvofandi að einhver mani sig upp í að taka þetta skref og hætta að splæsa dýrum tölvum og netinnviðum á alla starfsmenn.
-
- Kóngur
- Póstar: 6421
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 474
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Tengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
rapport skrifaði:appel skrifaði:Ljóst að BYOD var algjört rugl, bara security fallacy.
Held að það styttist í að vinnustaðir skaffi skrifstofufólkinu sínu bara Office E3 leyfi + nokkur öpp + android síma + dokku/port replicator, mús, lyklaborð og tvo 27" 1440p skjái...
Að sjá hvernig Android er farið að fúnkera í dokkum er geggjað og hvernig Office umhverfið er orðið brúkanlegra...
Í raun gæti basic skrifstofu-worker, kennari, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur ofl. ofl gert flest sitt á "work prófíl" í Samsung síma þar sem allt er managed og undir control...
Ef fyrirtæki fara að gera þetta þá geta þau jafnvel sleppt því að setja upp netinnviði og allir nota bara 5G í símanum...
Held að BYOD sé alls ekki dautt, það er yfirvofandi að einhver mani sig upp í að taka þetta skref og hætta að splæsa dýrum tölvum og netinnviðum á alla starfsmenn.
bara ef að samsung Dex mundi styðja tvo skjái, eins og er geturu bara verið með einn skjá, ef það eru fleyri en einn tengdur þá fer það í replication.
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
Svo ég komi inn á einföldun á skrifstofubúnaði og álíka þá er annað sem ég er að sjá sem ég er að elska. Ég er í ástandsgreiningum og með mikið af sérhæfðum búnaði. Fleiri og fleiri framleiðendur eru að sjá að þeir geta sparað sér hellings pening í R&D með því að nota bara síma í staðinn fyrir einhverja sérsmíðaða tölvu sem þeir þurfa svo að smíða eitthvað flott case utan um og svo stýrikerfi í hana. Farsímar höndla alveg helling af úrvinnslugetu miðað við hvað er oft í mörgum industrial tölvum og í staðinn geta þeir lagt R&D budget í capabilities á hugbúnaði og meiri gagnaúrvinnslu. Ágóðinn er betri hugbúnaður sem getur gefið manni mikið meiri gögn fyrir "afgangs" budgetið.
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
worghal skrifaði:bara ef að samsung Dex mundi styðja tvo skjái, eins og er geturu bara verið með einn skjá, ef það eru fleyri en einn tengdur þá fer það í replication.
Er þetta ekki hægt í gegnum dokku?
Minnir að vinnufélagi minn hafi tengt símann sinn við dokkuna hjá mér (innbyggð í HP skjá) og að hann hafi fengið upp extended desktop á báða skjáina sem ég er með í vinnunni...
Hef ekki verið að kaupa mér fancy síma í gegnum tíðina, er með S10 lite frá 2020, hef ekki séð tilganginn í því fyrr en ég sá þessa virkni.
-
- Kóngur
- Póstar: 6421
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 474
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Tengdur
Re: Síðustu ár PC tölvunnar
rapport skrifaði:worghal skrifaði:bara ef að samsung Dex mundi styðja tvo skjái, eins og er geturu bara verið með einn skjá, ef það eru fleyri en einn tengdur þá fer það í replication.
Er þetta ekki hægt í gegnum dokku?
Minnir að vinnufélagi minn hafi tengt símann sinn við dokkuna hjá mér (innbyggð í HP skjá) og að hann hafi fengið upp extended desktop á báða skjáina sem ég er með í vinnunni...
Hef ekki verið að kaupa mér fancy síma í gegnum tíðina, er með S10 lite frá 2020, hef ekki séð tilganginn í því fyrr en ég sá þessa virkni.
öll setup sem ég hef prufað með minn samsung síma hafa bara verið með duplication þegar það eru tveir skjáir. upplausnin er samt öll að koma til.
samsung forum 1. okt. 2024 skrifaði:As far as I know dual monitor does not support.
You can try mirroring, phone/tablet display mirrored on one monitor and Dex on the other.
However, you can’t move windows from a monitor to another. They’ll just work separately.
Síðast breytt af worghal á Lau 23. Nóv 2024 11:17, breytt samtals 1 sinni.