Síða 1 af 1

Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 23:12
af rapport
Svona til að stofna einn þráð sem gæti talist skemmtilegur til seinni tíma lesningar...

Hvaða atriði spáið þið að muni koma í áramótaskaupinu?

Það verða að sjálfsögðu systurnar Hlín og Malín, einnig sólmyrkvinn og afmæli Vigdísar Hauks (líklega slegið saman við einhvern sólguðs brandara tengdum SGD og BB)...

Hverju munið þið eftir semgæti ratað þarna inn?

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 23:22
af Klara
Icehot /s

Gísli Marteinn með sína visku.

Fangarnir á Kvíabryggju.

Hverjir eru það sem skrifa skaupið í ár?

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 23:24
af Tiger
Dunkin Dounuts

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 23:50
af rapport
Öll þessi hótel sem rísa í miðbænum og auðvital ferðamenn að kúka út um allt...

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 00:07
af hagur
Skaupið í ár practically skrifar sig sjálft, það er búið að vera svo mikið af rugli í gangi.

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 00:32
af nidur
Flóttamönnum?

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 01:15
af hfwf
Byltingar, ísland á em, free the nipple, löggan, dunkin donuts, komið.

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 02:10
af einarhr
nidur skrifaði:Flóttamönnum?



:thumbsd

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 06:09
af DJOli
Sigmund davíð, og kökusneiðina hans, með massífu dunkin donuts spin-offi.

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 11:58
af nidur
einarhr skrifaði:
nidur skrifaði:Flóttamönnum?



:thumbsd


Húmorinn í áramótaskaupinu er alltaf að verða svartari, þeir eiga pottþétt eftir að grínast með flóttafólk.

Ekki eitthvað sem ég var að leggja til.

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 15:03
af rapport
nidur skrifaði:
einarhr skrifaði:
nidur skrifaði:Flóttamönnum?



:thumbsd


Húmorinn í áramótaskaupinu er alltaf að verða svartari, þeir eiga pottþétt eftir að grínast með flóttafólk.

Ekki eitthvað sem ég var að leggja til.


Ef það verður ekki flóttamannabrandari þá kæmi það mér virkilega á óvart... bara spurning um hversu svartur hann verður, hvort hann verður skot á okkur sem viljum "fylla landið af útlendingum" eða þá sem "vilja bara borða svið og drekka kókókmjólk".

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 16:31
af hakkarin
Vinstri ófögnuðurinn sem að býr þetta skaup til á eftir að ráðast á sjallana og framsókn eins og þeir gera alltaf í sínu ófyndna skaupi. Þessi skaup eru í sjálfum sér bara dulbúin áróður gegn þeim sem höfundunum líkar ílla við og síðan falið sig á bakvið það að þetta sé bara grín. Væri kanski allt í lagi ef að það væri ráðist jafnt á alla en þessi skaup eru svo laaaaaaaaangt frá því að vera hlutlaus að maður nennir ekkert að horfa á þau (svona fyrir utan það að þau eru ekki fyndinn). Gerði það einu sinni alltaf en hætti fyrir sirka 2 árum eftir að ég gafst upp.

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 16:53
af Klara
hakkarin skrifaði:Vinstri ófögnuðurinn sem að býr þetta skaup til á eftir að ráðast á sjallana og framsókn eins og þeir gera alltaf í sínu ófyndna skaupi. Þessi skaup eru í sjálfum sér bara dulbúin áróður gegn þeim sem höfundunum líkar ílla við og síðan falið sig á bakvið það að þetta sé bara grín. Væri kanski allt í lagi ef að það væri ráðist jafnt á alla en þessi skaup eru svo laaaaaaaaangt frá því að vera hlutlaus að maður nennir ekkert að horfa á þau (svona fyrir utan það að þau eru ekki fyndinn). Gerði það einu sinni alltaf en hætti fyrir sirka 2 árum eftir að ég gafst upp.


Skaupin eru ekki fyndin nei en viðfangsefnið á ekki að skipta neinu máli. Sumir kýla upp og aðrir kýla niður eða til hliðar. Grín getur verið ádeila.

Var einhver búinn að segja Sveinn Andri ?

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 17:47
af steinarorri
hakkarin skrifaði:Vinstri ófögnuðurinn


Vissirðu að það er hægt að lýsa fólki öðruvísi en hægri og vinstri sinnuðu?
Ef maður er vinstri sinnaður verður maður sjálfkrafa ófögnuður eða þarf maður að gera e-ð sérstakt til að fá þá nafnbót?
----

En annars tel ég jú líklegt að gert verði e-ð grín að flóttamannavandanum, og dunkin, bankasölu, verkföllum

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 18:37
af rapport
Klara skrifaði:Var einhver búinn að segja Sveinn Andri ?


Úff... og náttúrulega Biggi lögga og löggan á Twitter (aftur).

Endalok Sérstyaks saksóknara... og Sinnum í Ármúla, Sjúkratryggingagaurinn sem hreinlega meikaði engan sens í því skíta máli með sjúkrahótelið.

Spítalinn kemur svo náttúrulega alltaf og ég tel svona 50% líkur á að Kári Stefánsson komi, vegna þessa jáeindaskanna sem á að kaupa.

Höfundaréttamálið vegna Bónuss gríssins, maybe...

Villi Vill og ránið á rigerðinni (hugsanlega sett upp í Harry Potter stíl... hann er með þannig gleraugu...)

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 01:14
af Klara
Ég veit ekki af hverju mér datt ekki Biggi lögga í hug, eins ógeðslega mikið og hann er búinn að vera í fjölmiðlum undanfarið!

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 13:57
af jericho
Flugvallamálið, borgin vs. ríki

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 14:45
af Minuz1
commentakerfið á visir.is og dv.is......aftur

skattur á leg

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 23:51
af Stuffz
skoðanakönnunum?

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Mán 23. Nóv 2015 10:32
af hagur
hakkarin skrifaði:Vinstri ófögnuðurinn sem að býr þetta skaup til á eftir að ráðast á sjallana og framsókn eins og þeir gera alltaf í sínu ófyndna skaupi. Þessi skaup eru í sjálfum sér bara dulbúin áróður gegn þeim sem höfundunum líkar ílla við og síðan falið sig á bakvið það að þetta sé bara grín. Væri kanski allt í lagi ef að það væri ráðist jafnt á alla en þessi skaup eru svo laaaaaaaaangt frá því að vera hlutlaus að maður nennir ekkert að horfa á þau (svona fyrir utan það að þau eru ekki fyndinn). Gerði það einu sinni alltaf en hætti fyrir sirka 2 árum eftir að ég gafst upp.


Vá hvað þú ert með mikil sjalla-gleraugu. Reyndu nú að horfa á eitthvað án þess að hugsa um hægri v.s vinstri. Man t.d ekki betur en að Steingrímur og Jóhanna hafi fengið all svakalega á baukinn undanfarin ár, sérstaklega þegar þau voru í ríkisstjórn.

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Mán 23. Nóv 2015 12:35
af demaNtur
Með þessu áframhaldi hjá "hakkarin" og "hagur" verður þessi þráður sennilega tekinn fyrir í skaupinu :snobbylaugh

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Mán 23. Nóv 2015 18:06
af biturk
Vonandi verður húmor í því þetta árið en ekki bara ógeðslegt níð eins og í fyrra

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Fös 04. Des 2015 14:41
af Klara
Stundin fyrir að hlaupa á sig allavega tvisvar á árinu í von um að skúbba!

Fyrst með Icehot og núna með fréttina af þingmanninum og sonum hennar.

http://www.dv.is/frettir/2015/12/3/stun ... entutgafu/

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Þri 15. Des 2015 01:37
af demaNtur
Almar í kassanum, mögulega eitthvað tengt albanísku fjölskyldunni?

Re: Hvaða atriði verður gert grín að í áramótaskaupinu?

Sent: Þri 15. Des 2015 09:37
af rapport
biturk skrifaði:Vonandi verður húmor í því þetta árið en ekki bara ógeðslegt níð eins og í fyrra


Vá! "'ógeðslegt níð"... minnir að það hafi bara verið að rifja upp atburði ársins, lítið "nítt" í því.