Fartölvukaup í USA

Allt utan efnis

Höfundur
robbi553
Nörd
Póstar: 130
Skráði sig: Þri 24. Maí 2016 20:21
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Fartölvukaup í USA

Pósturaf robbi553 » Fös 10. Feb 2017 19:20

Nú er ég í smá pælingum, er nefnilega að fara til Orlando FL eftir smá tíma og plana að kaupa mér fartölvu. Einhverjir hafa sagt mér að taka aðra ónýta með og henda henni fyrir utan til þess að borga ekkert af nýu. En hvaða gjöld borgar maður og hversu há eru þau?



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1246
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 374
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup í USA

Pósturaf Njall_L » Fös 10. Feb 2017 19:30

Enginn tollur á tölvuvörum svo þú ættir bara að borga vsk


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup í USA

Pósturaf hfwf » Fös 10. Feb 2017 19:38

Mátt koma með gjaldfrjálsa vöru inn í landi að upphæð 80þús, allt eftir það þarf að borga ef ég man rétt.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Tengdur

Re: Fartölvukaup í USA

Pósturaf Klemmi » Fös 10. Feb 2017 19:45

Mátt koma með vörur heim fyrir 88þús, upphæð umfram það greiðirðu toll af :)

Lenti í bölvuðu basli kringum jólin því ég hafði beðið félaga minn um að kaupa myndavél í USA sem fór í jólagjöf. Hundleiðinlegt að lenda í því að vera tekinn með verðmæti, missir afnot af vörunni í 1-2 vikur (og þeir geta reyndar gert hana alveg upptæka) og þarft að greiða sekt.

Mæli því með því að greiða bara tollinn ef þetta eru ekki stórar upphæðir (og jafn vel þó þetta séu háar upphæðir), þar sem annars geturðu alltaf lent í því að vera stoppaður með þessa tölvu þegar þú ferð með hana til útlanda.

Hér er sýnt hvernig þetta er reiknað:
https://www.tollur.is/einstaklingar/oft ... aent-hlid/




Sam
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 302
Skráði sig: Mið 03. Des 2014 18:50
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup í USA

Pósturaf Sam » Fös 10. Feb 2017 19:51

Það hefur ekkert uppá sig að draga einhvern gamlan lappa með, tollurinn hefur ekki hugmynd um hvað þú ferð með úr landi, enda löngu hættir að skrá niður og gefa nótu fyrir myndavélum og tölvum, eins og var gert fyrir nokkrum árum.
Það eina sem þeir sjá ef þeir stoppa þig í græna hliðinu, er glæný fartölva, þú þarft að sýna Íslenska kaupnótu eða sanna á einhvern hátt að tölvan var keypt hér.
http://www.kefairport.is/A-flugvellinum ... a-Islandi/




Höfundur
robbi553
Nörd
Póstar: 130
Skráði sig: Þri 24. Maí 2016 20:21
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup í USA

Pósturaf robbi553 » Fös 10. Feb 2017 20:09

Klemmi skrifaði:Mátt koma með vörur heim fyrir 88þús, upphæð umfram það greiðirðu toll af :)

Lenti í bölvuðu basli kringum jólin því ég hafði beðið félaga minn um að kaupa myndavél í USA sem fór í jólagjöf. Hundleiðinlegt að lenda í því að vera tekinn með verðmæti, missir afnot af vörunni í 1-2 vikur (og þeir geta reyndar gert hana alveg upptæka) og þarft að greiða sekt.

Mæli því með því að greiða bara tollinn ef þetta eru ekki stórar upphæðir (og jafn vel þó þetta séu háar upphæðir), þar sem annars geturðu alltaf lent í því að vera stoppaður með þessa tölvu þegar þú ferð með hana til útlanda.

Hér er sýnt hvernig þetta er reiknað:
https://www.tollur.is/einstaklingar/oft ... aent-hlid/


Takk fyrir þetta.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Tengdur

Re: Fartölvukaup í USA

Pósturaf Klemmi » Fös 10. Feb 2017 21:22

robbi553 skrifaði:Takk fyrir þetta.


Ekki málið :)

Ég gleymdi, þó ég vilji ekki vera með neinn of mikinn hræðsluáróður en menn þurfa samt að vera meðvitaðir um, að ef þú ert stoppaður og sektin fer umfram 50þús krónur, þá fer það á sakaskrá. Ekki það versta sem þú getur fengið á sakaskránna, en samt leiðindi að þurfa að útskýra t.d. ef þú ert að sækja um vinnur næstu 3 árin af hverju þú ert ekki með hreina sakaskrá :)

S.s. ef þú ert að kaupa vörur sem eru einungis með vsk, þá ef þær eru keyptar á yfir $1600 og þú ert stoppaður, þá gætirðu lent á sakaskrá... nema tollurinn sjái aumur á þér og skrái ekki allt.