Síða 1 af 1
					
				Paypal
				Sent: Fös 21. Júl 2017 14:36
				af siggi83
				Ég fékk greitt inn á paypal um daginn fyrir skjákort sem ég seldi á netinu en nú get ég ekki tekið út peninginn nema að eiga bandarískan bankareikning. 
Hefur einhver hér fundið út hvernig á að millifæra af Paypal til Íslands?
			 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Fös 21. Júl 2017 14:38
				af mainman
				Getur flutt peninginn yfir á Visakort, það er ekki hægt að flytja yfir á mastercard, ef þú ert með mastercard skráð þarna hjá þeim þá færðu alltaf meldingu um að linka við amerískan reikning.
Getur notað t.d. eins og öll þessi fyrirframgreiddu visakort, svarta kortið oþh.
Gangi þér vel.
Kv.
			 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Fös 21. Júl 2017 14:51
				af siggi83
				Er í Íslandsbanka. Getur maður fengið Visa án þess að vera í Arion, Landsbanka eða Sparisjóðnum?
			 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Fös 21. Júl 2017 14:53
				af worghal
				það ættu allir bankar að bjóða upp á fyrirframgreitt kreditkort, ég hef sent frá paypal á fyrirframgreitt og það gekk bara helvíti vel.
			 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Fös 21. Júl 2017 18:58
				af gutti
				ég er í paypal með fyrirfram kreditkort frá mastercards ekkert vesen
			 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Fös 21. Júl 2017 20:56
				af loner
				Ég breytti úr Visa kredit í Visa debit, fyrir þó nokkru.
			 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Lau 22. Júl 2017 00:39
				af razrosk
				er með mastercard líka og það virkaði bara vel....
			 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Lau 22. Júl 2017 17:59
				af mainman
				razrosk skrifaði:er með mastercard líka og það virkaði bara vel....
Ekkert mál að borga með mastercard, getur bara ekki fengið greitt inn á það.
Ég hringdi í paypal fyrir nokkrum vikum og talaði við support line þar því ég var einmitt að reyna að ná út pening og þá sögðu þau mér að þetta væri ekki hægt með mastercard, ég skráði þá visakortið hjá konunni þarna og þá virkaði allt.
 
			
					
				Re: Paypal
				Sent: Mið 26. Júl 2017 14:54
				af siggi83
				Já fékk mér VISA og þetta virkar núna.