Síða 1 af 1
					
				(Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
				Sent: Lau 13. Feb 2021 17:07
				af Dazy crazy
				Góðan og blessaðan daginn.
Pabbi spurði hvernig fartölvu hann ætti að kaupa sem þolir hnjask og er þokkalega öflug í myndbandsvinnslu. Ég er ekki lengur eins sleipur á svellinu og ég var en ég sagði honum að kaupa Lenovo umfram annað þar sem ég hef mjög góða reynslu af þeim.
Hann býr í Noregi og fann síðu sem selur refurbished vélar og mér líst þokkalega á þær en datt í hug að spyrja hér hvaða vél af þessum menn myndu helst mæla með. 
https://www.pcdeal.no/pc-nettbrett/pc-baerbar/lenovoKv. Dagur
 
			
					
				Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
				Sent: Lau 13. Feb 2021 17:24
				af rapport
				Myndvinnsla er líklega best á Apple
			 
			
					
				Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
				Sent: Lau 13. Feb 2021 18:18
				af mjolkurdreytill
				Hann gæti farið í öflugri tölvur frá Thinkpad eins og W540, W541 eða P51 sem eru til sölu þarna. Sýnist þær allar koma með i7 quad core og 16 gb vinnsluminni. Thinkpad er líka með TP útgáfur eins og T540P og T460P. Dell og HP eru líklegast með sambærilegar útgáfur.
Eldri gerðirnar eru líklegast bara með VGA porti út ef hann ætlar að nota aukaskjá.
En þessar tölvur eru ekki léttar, nær þremur kg líklegast. Sterklega byggðar og ættu að þola hnjask.
P.S. 40 týpurnar frá Lenovo koma með  mús/snertifleti sem margir myndu lýsa sem ekki þeim vinsælasta. Góðu fréttirnar eru þær að það er frekar auðvelt að skipta um músina sjálfur.
			 
			
					
				Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
				Sent: Lau 13. Feb 2021 22:26
				af Dazy crazy
				Takk fyrir svörin, við skoðum þetta betur  

 
			
					
				Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
				Sent: Sun 14. Feb 2021 01:15
				af einarn
				mjolkurdreytill skrifaði:Eldri gerðirnar eru líklegast bara með VGA porti út ef hann ætlar að nota aukaskjá.
Held að flest Thinkpad módel séu með mini dp. Er sjálfur með 431s og það er þannig á henni.
 
			
					
				Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
				Sent: Sun 14. Feb 2021 11:01
				af mjolkurdreytill
				einarn skrifaði:mjolkurdreytill skrifaði:Eldri gerðirnar eru líklegast bara með VGA porti út ef hann ætlar að nota aukaskjá.
Held að flest Thinkpad módel séu með mini dp. Er sjálfur með 431s og það er þannig á henni.
 
Það er líklegast rétt hjá þér. Mér hefur einhvern veginn alltaf tekist að láta þessa mDP útganga fara framhjá mér.
W540/1 og T550 koma þá einnig með VGA útgangi en P50 og yngri módelin eru einnig með HDMI útgangi.
 
			
					
				Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
				Sent: Sun 14. Feb 2021 15:14
				af Dazy crazy
				Hann fer líklega í W540 fyrir skjástærðina og kaupir svo dokku seinna ef hann vantar hdmi eða dvi skjátengi