Síða 16 af 20

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 26. Ágú 2022 10:51
af appel

Frekar stytta vinnudaginn í 7 klst frekar en stytta vinnuviku úr 5 í 4, þá þyrfti að lengja hvern vinnudag í hvað 9 klst?

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 26. Ágú 2022 10:52
af appel
Viktor skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
freysio skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Hvernig er það... hvað var gengið þegar hann var einkavæddur fyrra og seinna?

79 og 117 ef ég man rétt.
Annars þá fannst mér skrítið að heyra að hagvöxtur sem stefndi í 6.5% væri ein af ástæðum vaxtahækkunar, er kannski betra að hafa kreppu? #-o

Svo sem ekki betra að hafa kreppu. Eins og ég sé þetta er þó betra að reyna kæla hagkerfið í stað þess að leyfa öllu að fara í bál og brand.

Já og nei...

Villi er mikið fyrir það að cherry picka tölur sem henta honum hverju sinni. Hér er ástæðan:
https://www.globalpropertyguide.com/Eur ... e-10-years

Er þetta mælt í dollurum eða evrum, eða miðað við gjaldmiðil hvers lands fyrir sig? Erfitt að meta svona.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 26. Ágú 2022 15:29
af rapport
Önnur skýrsla sem er ekki alveg í takt við allt sem fyrr hefur komið

https://www.mckinsey.com/featured-insig ... Lwhqwg3ivo

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 26. Ágú 2022 15:58
af depill
appel skrifaði:

Frekar stytta vinnudaginn í 7 klst frekar en stytta vinnuviku úr 5 í 4, þá þyrfti að lengja hvern vinnudag í hvað 9 klst?

Kemur fram að VR villa stytta vinnuvikuna í 32 klukkustundir, enn halda vinnudeginum í 8 klukkustundir og 30 daga orlof. Það er 25% launahækkun, þetta fróðlegur vetur.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 08. Feb 2023 08:54
af Hjaltiatla
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýri­vexti um 0,5 prósentur

https://www.visir.is/g/20232375123d/ellefta-haekkunin-i-rod-sedlabankinn-haekkar-styri-vexti-um-0-5-prosentur

Þessar aðgerðir virðast hafa heppnast að kæla fasteignarmarkaðinn , en verðbólgan er samt í 9,9% :thumbsd

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 08. Feb 2023 09:06
af appel
Hjaltiatla skrifaði:
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýri­vexti um 0,5 prósentur

https://www.visir.is/g/20232375123d/ellefta-haekkunin-i-rod-sedlabankinn-haekkar-styri-vexti-um-0-5-prosentur

Þessar aðgerðir virðast hafa heppnast að kæla fasteignarmarkaðinn , en verðbólgan er samt í 9,9% :thumbsd

Held að fasteignamarkaðurinn hafi byrjað að róast löngu áður en SÍ byrjaði að hækka vexti, aðallega útaf covid.
Það má spyrja sig afhverju SÍ grípur ekki inn í þegar ölæði er á öllum, heldur bara svona 7 um morguninn þegar partíð er búið?
Hví grípur SÍ ekki inn í þegar húsnæðisverð hækkar um 5% milli mánaða, en hækkar svo vexti þegar húsnæðisverð er tekið að lækka?
Finnst vera arfaslök peningastjórn hérna á landinu, aldrei gert ráð fyrir samdrætti, niðursveiflu eða neinu, bara alltaf hugsað sem svo að partíið taki engan endi og línan liggi alltaf beint upp.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 08. Feb 2023 09:09
af vesley
Hjaltiatla skrifaði:
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýri­vexti um 0,5 prósentur

https://www.visir.is/g/20232375123d/ellefta-haekkunin-i-rod-sedlabankinn-haekkar-styri-vexti-um-0-5-prosentur

Þessar aðgerðir virðast hafa heppnast að kæla fasteignarmarkaðinn , en verðbólgan er samt í 9,9% :thumbsd

Blessunarlega hægði fasteignamarkaðurinn á sér hvað varðar verðbólgu, er mjög forvitinn að sjá hvernig sá markaður mun taka við sér aftur þegar slakað er á reglum.

Spilar inn auknar álögur ríkis og bæjarfélaga.
Spurning líka hvort hægt væri að koma af stað regluverki sem varðar gríðarlegan hagnað innflutningsaðila á verðbólgutímum, jafnvel þegar reynt er að fela sig á bakvið verðhækkanir erlendis sem eiga sér ekki stað.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 08. Feb 2023 10:05
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýri­vexti um 0,5 prósentur

https://www.visir.is/g/20232375123d/ellefta-haekkunin-i-rod-sedlabankinn-haekkar-styri-vexti-um-0-5-prosentur

Þessar aðgerðir virðast hafa heppnast að kæla fasteignarmarkaðinn , en verðbólgan er samt í 9,9% :thumbsd

True...

En þetta er samt svo sturlað ástand, ríki og sveitarfélög ganga á undan með feitum gjaldskrárhækkunum í byrjun árs sem að sjálfsögðu eykur verðbólgu og þá kemur ríksisstofnun sem hækkar vexti til að kæla verbólgu sem ríkið sjálft er að kynda undir :face :face :face

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 10. Feb 2023 09:54
af Hjaltiatla
Gæti verið að Íslenska krónan sé partur af vandamálinu ? Maður spyr sig.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 10. Feb 2023 10:11
af C2H5OH
GuðjónR skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýri­vexti um 0,5 prósentur

https://www.visir.is/g/20232375123d/ellefta-haekkunin-i-rod-sedlabankinn-haekkar-styri-vexti-um-0-5-prosentur

Þessar aðgerðir virðast hafa heppnast að kæla fasteignarmarkaðinn , en verðbólgan er samt í 9,9% :thumbsd

True...

En þetta er samt svo sturlað ástand, ríki og sveitarfélög ganga á undan með feitum gjaldskrárhækkunum í byrjun árs sem að sjálfsögðu eykur verðbólgu og þá kemur ríksisstofnun sem hækkar vexti til að kæla verbólgu sem ríkið sjálft er að kynda undir :face :face :face

Svo finnst mér lítið talað um að flest öll fyrirtæki (Hagar, Festi, allar bankastofnarir o.s.frv) á íslandi eru að skila öllum hækkunum beint út í verðlagið og segja að þetta verði svo erfitt ár í rekstri og þau eigi svo bátt, á sama tíma og þau skila methagnaði ársfjórðung eftir ársfjórðung með öðrum eins arðgreiðslum... Ríkið og kjarasamingar eru ekki einu sem sjá um að viðhalda verðbólgunni

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 10:24
af Mossi__
Jæja strákar.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 10:44
af depill
C2H5OH skrifaði:
Svo finnst mér lítið talað um að flest öll fyrirtæki (Hagar, Festi, allar bankastofnarir o.s.frv) á íslandi eru að skila öllum hækkunum beint út í verðlagið og segja að þetta verði svo erfitt ár í rekstri og þau eigi svo bátt, á sama tíma og þau skila methagnaði ársfjórðung eftir ársfjórðung með öðrum eins arðgreiðslum... Ríkið og kjarasamingar eru ekki einu sem sjá um að viðhalda verðbólgunni

Enn þá þarf fólk líka að verðlauna og refsa eftir verðhækkunum. Verslið frekar af litlum sjálfstæðum veitingastöðum, heldur enn stærri ef þeir hafa verið að hækka verðin.

Hringdu hefur eitt ekki verið að hækka verðin hjá sér í fjarskiptum. Segið upp sjónvarpsáskriftum sem hafa verið að hækka langt umfram verðbólgu.

Sýnist samkvæmt ASÍ Bónus vera að halda mest aftan af sér. Verslið Úkraínskan kjúkling þangað til allavega í enda Maí í stað innlenda sem hefur verið að hækka. Reynið að versla Privata Label meira.

Þetta hættir ekkert fyrr enn að neytendur fara að standa saman og fyrirtækin neyðast til að lækka verðlag og éta inní framlegðina hjá sér.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 13:00
af conzole
Hjaltiatla skrifaði:
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýri­vexti um 0,5 prósentur

https://www.visir.is/g/20232375123d/ellefta-haekkunin-i-rod-sedlabankinn-haekkar-styri-vexti-um-0-5-prosentur

Þessar aðgerðir virðast hafa heppnast að kæla fasteignarmarkaðinn , en verðbólgan er samt í 9,9% :thumbsd

Eitt að kæla hann og annað að setja hann í stopp.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 17:35
af nidur
Krónan styrkist mikið, fyrirsögnin.
https://www.vb.is/frettir/kronan-styrkt ... labankans/

Lækkaði um 70 aura í hvað 3 klst.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 17:36
af GuðjónR
Er ekki alveg að átta mig á þessu, búinn að heyra marga erlenda sérfræðinga tala um fall þeirra banka sem eru að hrynja þessa dagana megi að sumu leyti rekja til hækkunar stýrivaxa viðkomandi Seðlabanka.
Tökum einfalt dæmi, segjum ef allir sem eru með óverðtryggða vexti íbúðalána á Íslandi hefðu fest vextina í 4% korter í stýrivaxtahækkanir og núna eru stýrivextirnir komnir í 7.5% gefur þá ekki auga leið að bankarnir eru farnir að tapa á þessum lánum? Svo halda menn áfram að hækka vexti.

Ég veit að rökin eru að slá á verðbólgu, en partur af rekstrarostnaði fyrirtækja er vaxtakostnaður og ef hann hækkar þá hækka fyrirtækin vörur og þjóustu sem aftur hækkar verðlag. Er eini tilgangurinn stýrivaxtahækkunum að fólk eigi engan afgang eftir vaxtagreiðslur svo það komist ekki í táslumyndatökur á Tene? Ég er að reyna að skilja þetta.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 17:52
af hagur
Jamm líklegast. Þessar stýrivaxtahækkanir bíta mikið fastar núna þar sem að margir eru komnir í óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum, eða föstum vöxtum sem losna fljótlega.

Þetta er samt sama meðalið og var notað áður þegar nánast allir voru með verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann. Stýrivaxtahækkanir höfðu engin áhrif á slík lán. Ég skil ekki alveg þessa hringavitleysu og rökstuðningurinn við þessar hækkanir er alltaf sá sami og árangurinn virðist lítill. Akkúrat núna er meðalið verra en sjúkdómurinn.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 18:01
af jonfr1900
Samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs þá er verðbólga á Íslandi aðeins 8,8%. Seðlabankinn notar hinsvegar ranga mælingu sem er í þessari mælingu sem notar verð á húsnæði til þess að reikna út verðbólgu.

Samræmd vísitala neysluverðs (hagstofa.is)

Á sama tíma er Vísitala neysluverðs 10,2% sem er notuð til þess að réttlæta hækkun á stýrivöxtum á Íslandi.

Vísitala neysluverðs (hagstofa.is)

Svona fávitaskapur getur aðeins endað í efnahagskreppu á Íslandi og mikilli verðbólgu. Þar sem hærri vextir draga ekki úr fjármagni þar sem hluti af hagkerfinu er í verðtryggðu lánakerfi.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Mið 22. Mar 2023 21:53
af Klemmi
https://www.visir.is/g/20232393208d/lan ... r-a-kreppu

Ég í alvöru skil ekki neitt.

Sagt að erlendir ferðamenn séu hluti af vandamálinu, sem ég hélt að væru að koma með gjaldeyri inn í landið og væru raunverulega útflutningstekjur?
Sagt að miklar framkvæmdir séu hluti af vandmálinu, en á sama tíma er hækkandi húsnæðisverð vandamálið, og eina langtíma lausnin þar er að stórauka framboð?

Verktakar í uppbyggingu húsnæðis munu líklega annað hvort minnka við sig á meðan stýrivextir eru háir, eða fleyta fjármögnunarkostnaði út í söluverðið.

Ég bara skil ekkert.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 23. Mar 2023 10:06
af jericho
hagur skrifaði:Þetta er samt sama meðalið og var notað áður þegar nánast allir voru með verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann. Stýrivaxtahækkanir höfðu engin áhrif á slík lán.

Ég er kannski úti að aka, en hefur verðbólga ekki töluverð áhrif á verðtryggð lán? Sjá t.d. útskýringu af vef Landsbankans:
"Verðtryggð lán eru bundin við vísitölu neysluverðs sem er notuð til að mæla verðbólgu. Það þýðir að höfuðstóll lánsins hækkar í takt við verðbólguna hverju sinni."

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 23. Mar 2023 10:10
af Mossi__
jericho skrifaði:

Ójú.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 23. Mar 2023 12:12
af rapport
Mossi__ skrifaði:

Hærri stýrivextir = verið að gera peninga "dýrari/verðmætari" en verðbólga = er þegar verðmæti peninga verður minna.

Þessi aðgerð mun því gagnast öllum sem eru með verðtryggð lán en hækka afborganir hjá þeim sem eru með óverðtryggð lán / breytilega vexti.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fim 23. Mar 2023 16:11
af hagur
jericho skrifaði:
hagur skrifaði:Þetta er samt sama meðalið og var notað áður þegar nánast allir voru með verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann. Stýrivaxtahækkanir höfðu engin áhrif á slík lán.

Ég er kannski úti að aka, en hefur verðbólga ekki töluverð áhrif á verðtryggð lán? Sjá t.d. útskýringu af vef Landsbankans:
"Verðtryggð lán eru bundin við vísitölu neysluverðs sem er notuð til að mæla verðbólgu. Það þýðir að höfuðstóll lánsins hækkar í takt við verðbólguna hverju sinni."

Jú, nákvæmlega það sem ég var að segja ...

Verðbólga hefur bein áhrif á verðtryggð lán. Ég sagði að stýrivaxtahækkanir höfðu engin bein áhrif á verðtryggð lán sem eru með fasta vexti út lánstímann. Stýrivaxtahækkanir hafa bein áhrif á lán sem hafa breytilega vexti sem í dag eru aðallega óverðtryggð lán.

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 24. Mar 2023 08:15
af jericho
hagur skrifaði:

#-o Þú sagðir einmitt það! Afsakaðu ruglinginn í mér ](*,)

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 24. Mar 2023 10:07

:happy

Re: Blikur á lofti í vaxtamálum

Sent: Fös 05. Maí 2023 08:17
af rapport
Ég verð að hrósa Húsó - https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... 0_prosent/

Það er svona "initiative" sem eru slagurinn við verðbólguna, þetta mun skila sér í vísitöluna og komaí veg fyrir að lánin okkar allra hækki.

Bara að fleiri fyrirtæki hugsuðu svona