Síða 80 af 93

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 20. Feb 2024 18:45
af jonfr1900
jardel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði: Eru en líkur á gosi í byrjun mars fyrir norðan Grindavík Jón?


Það getur komið eldgos hvar sem er eftir kvikuganginum sem myndaðist þann 10. Nóvember 2023.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 21. Feb 2024 20:49
af jonfr1900
Samkvæmt GPS mælinum. Þá er þenslan kominn á sama stað og fyrir síðasta eldgos.

NORV-plate-90d-svd-21.02.2024-at-2048utc.png
NORV-plate-90d-svd-21.02.2024-at-2048utc.png (130.58 KiB) Skoðað 2594 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 21. Feb 2024 22:22
af ragnarok
rauðu lóðréttu línurnar eru gos og samkvæmt þessu grafi þurfti NORV að rísa 8-9,5cm hærra en gos á undan seinustu 2 skipti

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 21. Feb 2024 22:35
af jonfr1900
ragnarok skrifaði:rauðu lóðréttu línurnar eru gos og samkvæmt þessu grafi þurfti NORV að rísa 8-9,5cm hærra en gos á undan seinustu 2 skipti


Þessi aukna þensla, þó svo að það séu smágos þarna í milli, bendir sterklega til þess að stórt eldgos sé á leiðinni. Hvenær það gerist er ekki hægt að segja til um en það er alveg augljóst að þrýstingurinn í Svartsengi getur ekki haldið áfram að aukast endalaust.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 22. Feb 2024 07:04
af Kópacabana
Stutt klippa frá mér, var fyrst núna í vikunni að fara yfir videoin sem ég tók þau skipti sem ég kíkti þangað. Er að klippa til lengra, betra video en skellti smá klippu inná YT í gamni.


Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 22. Feb 2024 13:35
af jonfr1900
Þenslan tók stökk síðasta sólarhring og er því núna að verða eða kominn jafn hátt og fyrir eldgosið 8. Febrúar.

SENG-plate_since-20200101-svd-22.02.2024-at-1309utc.png
SENG-plate_since-20200101-svd-22.02.2024-at-1309utc.png (169.73 KiB) Skoðað 2362 sinnum


SKSH-plate-year-svd-22.02.2024-at-1310utc.png
SKSH-plate-year-svd-22.02.2024-at-1310utc.png (145.71 KiB) Skoðað 2362 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 22. Feb 2024 15:52
af GuðjónR

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 22. Feb 2024 16:31
af jonfr1900
Það er hætta á því að næsta vika verði mjög erfið í Grindavík. Sérstaklega ef að það gýs á ný í syðri hluta kvikugangsins sem myndaðist þann 10. Nóvember 2023.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 22. Feb 2024 19:19
af jonfr1900
Frétt um það sem eldgosin á Reykjanesi eru að kenna jarðvísindamönnum.

Iceland’s Recent Volcanic Eruptions Are Unleashing Deep Secrets

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fim 22. Feb 2024 22:02
af jonfr1900
Það er ekki sniðugt að vera í Grindavík. Þar sem eldgos getur hafist hvenær sem er.

Ekki skyn­sam­legt að gista í bænum enda styttist í eld­gos (Vísir.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 18:07
af jonfr1900
Veðurstofan var að gefa út þessa mynd sem sýnir kvikusöfnun í Svartsengi áður en eldgos verður.

Mynd

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 21:26
af jardel
jonfr1900 skrifaði:Veðurstofan var að gefa út þessa mynd sem sýnir kvikusöfnun í Svartsengi áður en eldgos verður.

Mynd



Jón erum við ekki að tala um mun stærra gos en hin litlu gos sem hafa verið?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 21:34
af appel
jardel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Veðurstofan var að gefa út þessa mynd sem sýnir kvikusöfnun í Svartsengi áður en eldgos verður.

Mynd



Jón erum við ekki að tala um mun stærra gos en hin litlu gos sem hafa verið?


Einsog trendið sé að það dragi úr kraftinum með hverju gosi. Núverandi uppsöfnun sé kraftminni en fyrri.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 22:26
af jonfr1900
Svo að ég svari tveimur hérna. Þá sýnist mér, miðað við síðustu eldgos að eldstöðin sé að safna upp í stórt eldgos, þar sem kvikukerfið undir Svartsengi tæmist að mestu leiti. Ég óttast að rennsli kviku sem kemur þá upp gæti orðið um eða yfir 3000m3/sek miðað við að atburðinn þann 10. Nóvember 2023, þá fór rennsli kviku í kvikuganginum upp í 7400m3/sek sem er hreinlega ótrúlega mikið magn af kviku á skömmum tíma. Það er ennþá möguleiki að annar slíkur atburður muni eiga sér stað, kannski ekki alveg svo stór en nærri því að mínu áliti.

Það er fjallað um það hérna um atburðinn þann 10. Nóvember 2023.

Fracturing and tectonic stress drives ultrarapid magma flow into dikes (Science)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 22:32
af jonfr1900
Hérna er myndband sem sýnir hversu mikið land hefur sigið í Grindavík.

New Photo Tour Footage And The Uncertain Future of Grindavik (YouTube)

Landsig Grindavík - fyrir sig - mynd 2022 - Just Icelandic.png
Landsig Grindavík - fyrir sig - mynd 2022 - Just Icelandic.png (2.59 MiB) Skoðað 1777 sinnum


Landsig Grindavík - eftir sig - mynd 2024 - Just Icelandic.png
Landsig Grindavík - eftir sig - mynd 2024 - Just Icelandic.png (2.78 MiB) Skoðað 1777 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 22:52
af Moldvarpan

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 23:23
af rapport
jonfr1900 skrifaði:Hérna er myndband sem sýnir hversu mikið land hefur sigið í Grindavík.

New Photo Tour Footage And The Uncertain Future of Grindavik (YouTube)

Landsig Grindavík - fyrir sig - mynd 2022 - Just Icelandic.png

Landsig Grindavík - eftir sig - mynd 2024 - Just Icelandic.png


Er þetta sig?

Er vatnsyfirborðið ekki bara hærra vegna leysinga?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Fös 23. Feb 2024 23:30
af jonfr1900
rapport skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Hérna er myndband sem sýnir hversu mikið land hefur sigið í Grindavík.

New Photo Tour Footage And The Uncertain Future of Grindavik (YouTube)

Landsig Grindavík - fyrir sig - mynd 2022 - Just Icelandic.png

Landsig Grindavík - eftir sig - mynd 2024 - Just Icelandic.png


Er þetta sig?

Er vatnsyfirborðið ekki bara hærra vegna leysinga?


Ég held að land hafi lækkað þarna um 20 til 50 sm eða jafnvel meira í þessum hræingum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 24. Feb 2024 00:45
af jonfr1900
Það er voðalega þægilegt að kenna jarðhræringum um það að flugfélagið sé að fara á hausinn.

Milljarðatjón vegna um­fjöllunar um jarð­hræringar við Grinda­vík (Vísir.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 24. Feb 2024 14:19
af jonfr1900
Þenslan í Svartsengi er búin að ná sömu stöðu og fyrir eldgosið 8. Febrúar. Þetta er hraðasta þensla sem ég hef séð á þessu svæði síðan þetta hófst þann 10. Nóvember 2023.

SENG-plate_since-20200101-svd-24.02.2024-at-1359utc.png
SENG-plate_since-20200101-svd-24.02.2024-at-1359utc.png (172.73 KiB) Skoðað 1196 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 24. Feb 2024 16:09
af jardel
jonfr1900 skrifaði:Þenslan í Svartsengi er búin að ná sömu stöðu og fyrir eldgosið 8. Febrúar. Þetta er hraðasta þensla sem ég hef séð á þessu svæði síðan þetta hófst þann 10. Nóvember 2023.

SENG-plate_since-20200101-svd-24.02.2024-at-1359utc.png


Miðað við þetta er þá ekki bara klukkutíma spursmál í gos?
Merkilegt að visir og mbl eru ekki að tala um þetta.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Lau 24. Feb 2024 16:16
af jonfr1900
jardel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Þenslan í Svartsengi er búin að ná sömu stöðu og fyrir eldgosið 8. Febrúar. Þetta er hraðasta þensla sem ég hef séð á þessu svæði síðan þetta hófst þann 10. Nóvember 2023.

SENG-plate_since-20200101-svd-24.02.2024-at-1359utc.png


Miðað við þetta er þá ekki bara klukkutíma spursmál í gos?
Merkilegt að visir og mbl eru ekki að tala um þetta.


Þetta getur tekið upp undir átta daga frá því að hámarksþenslu er náð þangað til að eldgos hefst. Miðað við stöðuna þá er það ekki líklegt. Það gæti hafist eldgos í kvöld eða á næstu klukkutímum en það er engin leið til þess að vera viss.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 25. Feb 2024 16:31
af jonfr1900
Þenslan er núna orðin meiri en fyrir eldgosið 8. Febrúar. Þetta er að gerast mun hraðar en síðast og það er ennþá hætta á stóru eldgosi á þessu svæði.

SKSH-plate-year-svd-25.02.2024-at-1529utc.png
SKSH-plate-year-svd-25.02.2024-at-1529utc.png (146.33 KiB) Skoðað 956 sinnum


SENG-plate_since-20200101-svd-25.02.2024-at-1300utc.png
SENG-plate_since-20200101-svd-25.02.2024-at-1300utc.png (169.41 KiB) Skoðað 956 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 25. Feb 2024 19:37
af jonfr1900
Það er verið að tilkynna (þó ekki í fjölmiðlum ennþá) um mikla brennisteinsmóðu á Reykjanesinu. Mjög líklega er hérna um að ræða mikla afgösun á kvikunni sem er í Svartsengi. Þetta eru ekki góðar fréttir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 25. Feb 2024 21:31
af brain
sé á https://loftgaedi.is/ að Þorlákshöfn er með hækkuð SO2 og No2 gildi.