Óhugnalegt hvað þetta er umfangsmikið. Hvernig þetta streymir að Grindavík og Svartsengi/Bláalóninu.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 01:35
af jonfr1900
Síðast fór að draga úr eldgosinu eftir sex tíma virkni. Núna eru komnir rúmlega sex klukkutímar síðan það byrjaði að gjósa og það er ekki farið að draga neitt úr eldgosinu sýnist mér.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 02:15
af jonfr1900
Staðan er lítið að lagast núna.
hraun - Grindavík - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0213utc.png (886.45 KiB) Skoðað 1813 sinnum
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 02:44
af jonfr1900
Ennþá fullt af krafti í eldgosinu.
gossprunga - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0241utc.png (542.83 KiB) Skoðað 1801 sinnum
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 03:03
af Diddmaster
Það sem ég sé heimafrá mér (ásbrú) virðist vera minna en áðann cirka klukkutími síðan
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 03:19
af jonfr1900
Diddmaster skrifaði:Það sem ég sé heimafrá mér (ásbrú) virðist vera minna en áðann cirka klukkutími síðan
Veðrið er að breytast og eldgosið er farið að draga sig saman í gíga. Það hefur lítið dregið úr eldgosinu.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 03:28
af jonfr1900
Það hefur myndast hættuleg hrauntjörn þarna. Þessi hrauntjörn mun tæma sig með miklum látum.
hrauntjörn varnargaður - svd 17.03.2024 at 0324utc.png (1.4 MiB) Skoðað 1775 sinnum
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 04:11
af jonfr1900
Staðan klukkan 04:05. Það hefur lokast fyrir eldgosið á hluta sprungunnar eða dregið úr því. Samt hefur svo til ekkert dregið úr hraunflæði sýnist mér.
gosspruna - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0405utc.png (251.49 KiB) Skoðað 1756 sinnum
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 11:52
af jardel
Þetta eldgos var ekki merkilegt né lamglíft
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 12:52
af zetor
jardel skrifaði:Þetta eldgos var ekki merkilegt né lamglíft
Því er ekki lokið og Þetta er einmitt mjög merkilegt gos.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 13:28
af jardel
jonfr1900 skrifaði:Staðan klukkan 04:05. Það hefur lokast fyrir eldgosið á hluta sprungunnar eða dregið úr því. Samt hefur svo til ekkert dregið úr hraunflæði sýnist mér.
gosspruna - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0405utc.png
Jón heldur þú að ekkert meira muni gerast í þessu? Heyrði i fréttum að þetta muni bara lognast út með kvöldinu?
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 13:34
af jonfr1900
jardel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Staðan klukkan 04:05. Það hefur lokast fyrir eldgosið á hluta sprungunnar eða dregið úr því. Samt hefur svo til ekkert dregið úr hraunflæði sýnist mér.
gosspruna - mbl.is - svd 17.03.2024 at 0405utc.png
Jón heldur þú að ekkert meira muni gerast í þessu? Heyrði i fréttum að þetta muni bara lognast út með kvöldinu?
Miðað við það sem ég er að sjá á vefmyndavélum. Þá mun þessu ekki ljúka í kvöld nema ef þetta byrjar að falla mjög hratt og það eru engin merki um það ennþá.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 15:38
af jonfr1900
Það er ekkert farið að draga úr gosóróa ennþá. Síðasta eldgos á þessum sama stað var búið um þetta leiti.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Sun 17. Mar 2024 18:56
af jonfr1900
Nýtt kort frá Veðurstofunni ef að hraun nær út í sjó.