Síða 3 af 5

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Lau 25. Feb 2023 00:00
af Sinnumtveir
Hin endanlega niðurstaða eins og mörg okkar höfum þegar ályktað er að Kóreumenn eru að NEGLA það í kvikmyndageiranum. Td er heill haugur af k-draslinu á streymisveitunum bara verulega gott og stundum frábært stöff. Áfram Kórea.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Lau 25. Feb 2023 01:39
af agnarkb
Sinnumtveir skrifaði:Hin endanlega niðurstaða eins og mörg okkar höfum þegar ályktað er að Kóreumenn eru að NEGLA það í kvikmyndageiranum. Td er heill haugur af k-draslinu á streymisveitunum bara verulega gott og stundum frábært stöff. Áfram Kórea.

Kóreumenn búnir að vera í allra fremstu röð í kvikmyndagerð síðan um aldarmótin. Park Chan-wook, Bong Joon Ho og Jee-woon Kim varla tekið feilspor síðustu 20 ár. Sprakk út með Oldboy og Hefndar-þríleiknum.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Lau 25. Feb 2023 01:58
af appel
agnarkb skrifaði:

Ég sá Oldboy í bíó :) þrusugóð.

S-Kóreska stjórnin ákvað að dæla peningum í "skemmtanageirann", þ.e. tónlist, kvikmyndir, sjónvarp, eftir asísku fjármálakrísuna rétt fyrir aldmótin. Þannig að kringum 2000 byrjar S-Kórea að framleiða mikið magn af afþreyingarefni. Þetta hefur verið kallað "Hallyu-wave". En upp úr þessu verður til mikill iðnaður í kringum afþreyingu, mörg stór umboðsfyrirtæki starfa í S-Kóreu sem eru með marga listamen á sínum snærum. Eftir það hefur verið talað um bylgju #2 og bylgju #3 etc eftir því sem kynslóðirnar vaxa úr grasi.
Held að ekkert annað land hafi ákveðið að taka svona fast um þetta einsog S-Kórea, nema þá Kína, þar sem þetta er einnig í gangi þar.

T.a.m. er stærsta stúlknaband í poppi í dag, í heiminum, s-kóreska bandið Blackpink.
Svo ég tali nú ekki einnig um stærsta strákabandið, BTS, einnig s-kóreskt.
Ekki tilviljun.

Vestrænt efni er bara orðið of fúlt, allt lið á ellilífeyri að stunda "rememberberry" world toura, á hækjum og í hjólastólum að koma fram. Er Rolling Stones enn að? Maður veit ekki. Vestræn afþreying snýst bara um nostalgíu í dag, ekkert frumlegt, ferskt. Ekki gaman að vera ungur í dag þar sem eina afþreyingarefnið er í raun á youtube þar sem einhverjir furðufuglar láta þig horfa á spilun á minecraft og þvíumlíku.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Lau 25. Feb 2023 02:14
af agnarkb
appel skrifaði:

Mörgu leiti sammála með vestrænt efni vs. asískt. Þá sérstaklega þegar kemur að kvikmynda og sjónvarpsbransanum, telst eiginlega til stórtíðinda nú orðið ef það kemur eitthvað nýtt á streymisiveitur sem er ekki Marvel.

Get samt ekki mainstream tónlistina hjá þeim, en ég er reyndar eins langt frá þeim markhópi og hugsast getur. Ekki mikið um metal í Kóreu, allaveganna ekki ennþá, miðað við t.d. Japan.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Lau 25. Feb 2023 02:49

Það er auðvitað mjög erfitt stundum að ræða þessa hluti við fólk. T.d. nefndi ég þetta við félaga sem er mikill tónlistarmaður, hefur samið lög og er svona já mikill lagahöfundur og hvaðeina. Ég sagði að "blackpink er stærsta stúlknaband í heimi í dag"... hann sagði "ha? hvað er það?".
Svona er vestrænt fólk orðið aftengt veruleikanum finnst mér. Vita ekkert um stöðu mála í heiminum. Þetta er einsog að vera pólitíkus 1970 og vita ekki hvað sóvétríkin eru.

En tónlist er auðvitað algjört smekksatriði, einsog matur, list og hvaðeina. Vildi bara nefna Blackpink og BTS því jú peningalega séð og mannfjöldalegaséð eru þetta vinsælustu böndin í dag, bæði kóresk.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Lau 25. Feb 2023 08:07
af rapport
My Name á Netflix var helvíti góð, kom á óvart. Fanbst hún í anda Stieg Larson myndanna.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Lau 25. Feb 2023 08:15
af rapport
Smá off track.

Er í Skotlandi, gekk inn í anime verslun sem mér fannst ég verða að versla við. Fann svartan kaffibolla, ekkert info á pakkanum nema "made in korea" og ég hugsaði að það kæmi í ljós eitthvað flott anime megar bollinn hitnaði.

Nibb... lét heitt vatn renna á hann og þetta er uppstillt mynd af BTS.

Myndin kemur voða hægt.

Mun setja hann á kaffistofuna í vinnunni, láta gesti fá hann og nýtt starfsfólk.

En maður er sucker fyrir kóresku...

Screenshot_20230224_180300_Google.jpg
Screenshot_20230224_180300_Google.jpg (1.04 MiB) Skoðað 4457 sinnum
Screenshot_20230225_090133_Photos.jpg
Screenshot_20230225_090133_Photos.jpg (783.5 KiB) Skoðað 4457 sinnum

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Sun 12. Mar 2023 23:30
af falcon1
appel skrifaði:Mæli sterklega með:
https://www.netflix.com/is/title/81357268
Flower of Evil

Þetta er vaaangefið þrumuspennandi þáttaröð þar sem þú situr á sætisbrúninni alla þættina með kökk í hálsinum.

Takk fyrir ábendinguna. Var að klára. :D Mjög góðir þættir.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Mán 20. Mar 2023 13:21
af falcon1
Hafið þið eitthvað prófað að læra kóresku? :) Finnst þetta eitthvað svo "krúttlegt" mál en örugglega erfitt að mastera.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Mán 20. Mar 2023 13:24
af appel
falcon1 skrifaði:Hafið þið eitthvað prófað að læra kóresku? :) Finnst þetta eitthvað svo "krúttlegt" mál en örugglega erfitt að mastera.

Ekkert skipulegt.
En hef auðvitað lært heilan helling á að horfa á kdrama, maður getur stundum sleppt að lesa undirtextann... og einnig tekur maður eftir þegar það er léleg textaþýðing á efni.
Gerði það í stuttan tíma að hlusta á svona "learning korean" á spotify, það var alveg gagnlegt. En vandinn alltaf við að læra annað tungumál er að maður þyrfti helst að búa í samfélaginu til að læra það best best og fljótast, tala það alltaf, vera tilneyddur til þess í raun.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Mán 20. Mar 2023 13:37
af rapport
falcon1 skrifaði:Hafið þið eitthvað prófað að læra kóresku? :) Finnst þetta eitthvað svo "krúttlegt" mál en örugglega erfitt að mastera.

Prófaði eitthvað frítt eða ódýrt app á Quest en eiginlega tapaði þolinmæðinni þegar ég gat ekki fyrstu tvö orðin fyrr en eftir heilmikið vesen.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Mán 20. Mar 2023 13:47
af vatr9
falcon1 skrifaði:Hafið þið eitthvað prófað að læra kóresku? :) Finnst þetta eitthvað svo "krúttlegt" mál en örugglega erfitt að mastera.

Aðeins skoðað Duolingo námskeið. Góður punktur með Spotify.
Hef áhuga á málinu og finnst það fallegt og sé fyrir mér að halda áfram.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Mán 20. Mar 2023 14:01
af gnarr
falcon1 skrifaði:Hafið þið eitthvað prófað að læra kóresku? :) Finnst þetta eitthvað svo "krúttlegt" mál en örugglega erfitt að mastera.

Annyeonghaseyo!

Kóreska er æði :) Ég æfði taekwondo í nokkur ár og lærði tölur, raðtölur, kveðjur, nöfn á hreifingum íþróttinni og bardagamynstrum í gegnum þjálfun. Hef svo pikkað upp einstaka orð í gegnum bíómyndir, þætti og youtube gláp (horfi á vandræðalega margar kóreskar katta rásir á youtube :-$ Valleycatfriends, Street Cat, CreamHeroes, Kittisaurus...).

Það er nokkuð einfalt að læra talaða kóresku, en Hangul er svo allt annar höfuðverkur og líklega ekki mjög auðvelt að ná góðum tökum á.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Mán 20. Mar 2023 14:15
af rapport

Þú veist ekki hvað þú varst að gera mér...

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Þri 21. Mar 2023 09:05
af kizi86
rapport skrifaði:

Þú veist ekki hvað þú varst að gera mér...

konan mín sá þennan póst þinn....

þú getur vel lesið á milli línanna..

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Þri 21. Mar 2023 21:55
af vatr9
Það er annars merkilegt að hugsa til þess hvað KDrama er að útbreiða kóreanska menningu út um allan heim. Fólk fær áhuga á Kóreu í kjölfarið á að horfa á sjónvarpsefnið. Bandarísk menning hefur sannarlega notið þess hvað sjónvarpsefni þaðan er útbreitt um allan heim og Kórea nýtur þess núna á sama hátt. Við hjónin horfum töluvert á KDrama og fórum í framhaldi að ræða möguleikann á að fara þangað sem túristar einhvertíma. Við áttum okkur alveg á að raunveruleikinn er ekki endurspeglaður í sjónvarpsefninu en samt er þetta nóg til að við erum forvitin.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Þri 21. Mar 2023 22:50
af rapport
vatr9 skrifaði:Það er annars merkilegt að hugsa til þess hvað KDrama er að útbreiða kóreanska menningu út um allan heim. Fólk fær áhuga á Kóreu í kjölfarið á að horfa á sjónvarpsefnið. Bandarísk menning hefur sannarlega notið þess hvað sjónvarpsefni þaðan er útbreitt um allan heim og Kórea nýtur þess núna á sama hátt. Við hjónin horfum töluvert á KDrama og fórum í framhaldi að ræða möguleikann á að fara þangað sem túristar einhvertíma. Við áttum okkur alveg á að raunveruleikinn er ekki endurspeglaður í sjónvarpsefninu en samt er þetta nóg til að við erum forvitin.

nkl.
Maður var kominn með ógeð af US/EU sápunni...

Dauðlangar að komast til Kóreu, borða pork belly og staupa soju.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Þri 21. Mar 2023 23:02
af appel
Ég hef ekki horft á amerískt efni eða enskumælandi efni síðan janúar 2020. Kannski stolist til þess að horfa á 2-3 bíómyndir og get talið þær upp, en er alveg hættur að horfa á enskumælandi efni. Eingöngu kóreskt, kínverskt og japanskt. Þetta er bara svo miklu fallegra og innihaldsríkara og mannlegra efni en þetta ameríska sorp.

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Fös 31. Mar 2023 00:06
af falcon1
Var að klára Alchemy of Souls. :D Frábærir þættir, fannst samt part 1 betri en part 2. :)

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Fös 31. Mar 2023 10:48
af appel
falcon1 skrifaði:Var að klára Alchemy of Souls. :D Frábærir þættir, fannst samt part 1 betri en part 2. :)

Mér fannst bæði seasonin eiginlega bara sambærilega góð. Bæði seasonin fá að því virðist mjög sambærilega einkunn á MDL (mydramalist.com).
Ég hafði mestar áhyggjur af því að þeir voru með aðra leikkonu í season 2 heldur en í season 1, og hvort þá að það yrði eitthvað klúður. En það gekk bara mjög vel upp. Fílaði báðar leikkonur mikið. Fannst reyndar leikkonan í season 1 skemmtilegri að því leyti að karakterinn var svo klaufalegur.
En klárlega ein besta þáttaröðin sem ég horfði á í fyrra.

Ef þú fílar svona kóreskt fantasíudrama þá er Arthdal Chronicles líka þrusugóð, en hún er kannski ekki með eins mikið húmor eða rómans, meira svona Game of Thrones liggur við.
https://mydramalist.com/28116-aseudal
https://mydramalist.com/34665-arthdal-c ... s-season-2
https://mydramalist.com/34667-arthdal-c ... s-season-3
(í heild 18 þættir)

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Fös 31. Mar 2023 12:41

Sammála með leikkonurnar, sú sem var í season 1 heillaði mig einhvernvegin meira en leikkonan í season 2 sem var samt líka mjög góð. Mér fannst þetta alveg virka og meika sens. :)

Arthdal Chronicles eru frábærir, horfði á þá fyrir nokkru síðan. Finnst sá þáttur jafnvel betri en Alchemy of Souls, eins og þú segir meiri Game of Thrones fílingur í Arthdal Chronicles.

Hugsa að ég taki Mr. Queen næst. :D

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Fös 31. Mar 2023 13:54
af appel
Veit ekki hvort þú ert búinn að glápa á Goblin, en það er "must watch" kdrama sería, og líklega ein sú þekktasta (fyrir utan Squid Game).
https://mydramalist.com/18452-goblin

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Fös 31. Mar 2023 13:59
af falcon1
appel skrifaði:Veit ekki hvort þú ert búinn að glápa á Goblin, en það er "must watch" kdrama sería, og líklega ein sú þekktasta (fyrir utan Squid Game).
https://mydramalist.com/18452-goblin

Takk fyrir þetta. :) Ekki búinn að sjá þessa þætti, komið á lista hjá mér. :D

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Fös 31. Mar 2023 15:57
af rapport
falcon1 skrifaði:
appel skrifaði:Veit ekki hvort þú ert búinn að glápa á Goblin, en það er "must watch" kdrama sería, og líklega ein sú þekktasta (fyrir utan Squid Game).
https://mydramalist.com/18452-goblin

Takk fyrir þetta. :) Ekki búinn að sjá þessa þætti, komið á lista hjá mér. :D

ohh... elska Goblin þættina... var að klára "My roommate is a gumiho" í gær, ætti maður að skella sé á Goblin í 4. sinn?

Var að hugsa um itaewon Class eða Whats worng with secretary Kim eða It´s ok not to be ok eða eitthvað nýtt.

Apple, er eitthvað varið í eitthvað af þessu? henti þessu á playlistann hjá mér einherntíman...

Capture.JPG
Capture.JPG (110.56 KiB) Skoðað 3452 sinnum

Re: Squid Games og kdrama?

Sent: Fös 31. Mar 2023 17:50
af falcon1
Finn ekki Goblin á Netflix, hvar getur maður horft á þá þætti?