Síða 1 af 1

Bollur fyrir einstakling með mjólkuróþol

Sent: Sun 27. Feb 2022 17:12
af Klemmi
Sælir félagar,

langaði að reyna að gleðja einstakling með mjólkuróþol, svo ég spyr:

Hvar er hægt að kaupa tilbúnar bollur fyrir einstakling með mjólkuróþol?

Með fyrirfram þökkum,
Klemmi

Re: Bollur fyrir einstakling með mjólkuróþol

Sent: Sun 27. Feb 2022 17:15
af HalistaX
https://mosfellsbakari.is/bolludagur/

Ímynda mér að "Vegan" sé fínt dæmi fyrir þá með mjólkuróþol.

Re: Bollur fyrir einstakling með mjólkuróþol

Sent: Sun 27. Feb 2022 17:44
af SolidFeather
Í Veganbúðinni og svo er Passion Álfheimum með tvær tegundir af vegan bollum.

Re: Bollur fyrir einstakling með mjólkuróþol

Sent: Mán 28. Feb 2022 09:21
af Sinnumtveir
Það er vitaskuld fallegt að vilja gleðja fleiri en sjálfan sig en þarf það að vera svona mikið mál? Ég mæli því fyrst og fremst með að þú finnir einhvern annan til að gleðja. Það getur ekki verið erfitt að finna staðgengil í því efni hér í táradalnum. Ekki gera þér lífið svona erfitt!

Nei, hafi einhver velkst í vafa, þá er ég vitaskuld að djóka :)
Svörin eru einmitt til fyrirmyndar og vonandi eins gagnleg og þau líta út fyrir að vera.
Bon appétit.

Re: Bollur fyrir einstakling með mjólkuróþol

Sent: Mán 28. Feb 2022 09:45
af Klemmi
Takk elsku vinir fyrir frábær svör :hjarta