Síða 1 af 1
Prófa VR (fyrir hópa)
Sent: Mán 21. Mar 2022 12:55
af jericho
Daginn.
Er staður á höfuðborgarsvæðinu sem býður upp á að upplifa sýndarveruleika (e. virutal reality) fyrir hópa? Það eru margir sem hafa aldrei prófað slíkt og það gæti verið gaman að leyfa fólki að prófa, sem hópefli eða slíkt.
Með fyrirfram þökkum.
Re: Prófa VR (fyrir hópa)
Sent: Mán 21. Mar 2022 13:07
af Fennimar002
Hvernig leiki ertu að leitast eftir?
Skemmtisvæðið hja Smárabíó er með VR svæði með 8 gleraugu með skemmtilegum leikjum, mæli með að skoða það hjá þeim.
Re: Prófa VR (fyrir hópa)
Sent: Mán 21. Mar 2022 13:09
af jericho
Takk fyrir skjót svör.
Afsakið að ég tók það ekki nægilega skýrt fram í upphafi, en ég er helst að spá í rólegri upplifum fyrir þá sem hafa aldrei sett svona á höfuðið.
kv
Re: Prófa VR (fyrir hópa)
Sent: Mán 21. Mar 2022 13:42
af rapport
Hugsanlega mögulega hefur Mixtúra - mixtura.is útfært eitthvað svona fyrir grunnskóla, veit að einhverjir skólar eru komnir með VR headset fyrir krakka að leika sér í.
Heyrði eitthvað af fundum sem haldnir voru í VR, en man ekki hvort það var á þeirra vegum eða eitthvað promotional sem þær tóku þátt í.
Re: Prófa VR (fyrir hópa)
Sent: Mán 21. Mar 2022 14:30
af Fennimar002
Ég fór í tvo leiki hjá þeim í Smárabíó um daginn, einn leikurinn var Escape Room og hinn var bogaleikur. Mér fannst þeir báðir alveg frekar rólegir, en getur verið mismunandi fyrir aðra. Síðan voru einhverjir fleiri leikir.
Getur prufað að heyra í þeim hvað þeir bjóða uppá sem þú ert að hugsa þér
