Síða 1 af 1

Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Þri 20. Sep 2022 21:46
af emil40
Sælir félagar.


Ég notaði tækifærið þegar tölvulistinn var með tilboð og náði seinasta Asus TUF Gaming RTX 3090Ti OC 24GB kortinu á spottprís 300þ \:D/ 170þ í afslátt.

Fékk líka nýja Spiderman leikinn í kaupbæti \:D/

Það eru myndir inn á síðunni hjá Tölvulistanum samt ennþá. Kassinn minn er alltaf að verða þyngri og þyngri haha

https://tl.is/asus-tuf-gaming-rtx-3090ti-oc-24gb.html

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Þri 20. Sep 2022 22:20
af Borð
Sorry to bust your balls. Afhverju að versla við þessa okrara?

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Þri 20. Sep 2022 22:26
af emil40
ég gat ekki hafnað þessu tilboði :D

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 01:02
af Tiger
emil40 skrifaði:ég gat ekki hafnað þessu tilboði :D


En verðið af Amazon sem Borð vísar í er 185.000kr komið heim að dyrum.... eða 125.000kr lægra en þetta rosa tilboðsverð hjá TL.

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 18:06
af Trihard
Trip til Boston báðar leiðir fyrir eina manneskju kostar ábyggilega svipað og tollur+sendikostnaður, myndi ábyggilega skella mér til BNA í staðinn fyrir að kaupa þetta af Amazon.

Key to happiness is being cheap af

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 18:37
af Diddmaster
Til lukku með gripinn smá öfund gangi þér vel með þetta

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 18:40
af Borð
Trihard skrifaði:Trip til Boston báðar leiðir fyrir eina manneskju kostar ábyggilega svipað og tollur+sendikostnaður, myndi ábyggilega skella mér til BNA í staðinn fyrir að kaupa þetta af Amazon.

Key to happiness is being cheap af


Tölvulistanum* væntanlega?

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 19:13
af Trihard
Borð skrifaði:
Trihard skrifaði:Trip til Boston báðar leiðir fyrir eina manneskju kostar ábyggilega svipað og tollur+sendikostnaður, myndi ábyggilega skella mér til BNA í staðinn fyrir að kaupa þetta af Amazon.

Key to happiness is being cheap af


Tölvulistanum* væntanlega?


Nei, prófaðu að googla Kef Boston, þá færðu miða í báðar leiðir á 33000 kall ca.

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 19:40
af arnarpumba
Tiger skrifaði:
emil40 skrifaði:ég gat ekki hafnað þessu tilboði :D


En verðið af Amazon sem Borð vísar í er 185.000kr komið heim að dyrum.... eða 125.000kr lægra en þetta rosa tilboðsverð hjá TL.


Er þessi 310$ það eina sem bætist við? Er ekki alltaf eitthver önnur gjöld hér og þar áður en þetta er loksins afhent? :-k

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 19:55
af emil40
Diddmaster skrifaði:Til lukku með gripinn smá öfund gangi þér vel með þetta


takk vinur

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 19:57
af emil40
Tiger skrifaði:
emil40 skrifaði:ég gat ekki hafnað þessu tilboði :D


En verðið af Amazon sem Borð vísar í er 185.000kr komið heim að dyrum.... eða 125.000kr lægra en þetta rosa tilboðsverð hjá TL.


Mér finnst betra að vera með ábyrgðina heima og það er oft ansi dýrt að fá sent frá Amazon verðið á síðunni segir ekki alla söguna

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 20:17
af MarsVolta
emil40 skrifaði:
Tiger skrifaði:
emil40 skrifaði:ég gat ekki hafnað þessu tilboði :D


En verðið af Amazon sem Borð vísar í er 185.000kr komið heim að dyrum.... eða 125.000kr lægra en þetta rosa tilboðsverð hjá TL.


Mér finnst betra að vera með ábyrgðina heima og það er oft ansi dýrt að fá sent frá Amazon verðið á síðunni segir ekki alla söguna


Jújú það segir alla söguna :eh Hvað ertu að þvæla?

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 20:33
af Cepheuz
Hef aldrei lent í því að þurfa borga meira heldur en Amazon reiknar út þarna, oftar en ekki fær maður eitthvað smá endurgreitt útaf ofreiknun.

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 20:41
af emil40
sendingarkostnaðurinn er oft mjög hár frá Amazon og þú veist það sjálfur og þægilegra að sækja ábyrgð heima

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 21:55
af ChopTheDoggie
Til hamingju með kortið, njóttu :D

En ég skil bara ekki hvernig þetta kort gæti í alvörunni kostað 470þús hjá Tölvulistanum, það er bara alveg ógeðslega mikið rugl þegar önnur verslun selur 3090ti á 300þús án einhverju "tilboði". Þú gætir jafnvel pantað þér x2 3090ti af Amazon og það væri samt enn ódýrari.. :catgotmyballs

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Mið 21. Sep 2022 23:11
af Gurka29
emil40 skrifaði:sendingarkostnaðurinn er oft mjög hár frá Amazon og þú veist það sjálfur og þægilegra að sækja ábyrgð heima


Kaupr þá frá þessari síðu 25€ fyrir sendingarkostnað með DHL svo vaskur væri komið heim á líklegast undir 200

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Fim 22. Sep 2022 00:22
af snakkop
Til hamingju með kortið =D> \:D/ þetta bara fínn afsláttur þá tölvulistanum fólk elskar tuða á þessari síðu

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Fim 22. Sep 2022 10:16
af brain
Vinur minn keypti EVGA 3090 Ti frá Amazon US

Kom uppá 265.000

Hér sést hvað það kostaði að senda og vsk
Hann fékk 6700 endurgreitt 6 vikum seinna.


Mynd

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Fim 22. Sep 2022 10:51
af emil40
brain : 300þ fæ svo vsk endurgreiddan því kortið var keypt í gegnum fyrirtæki. Fékk líka nýja Spider-Man leikinn í kaupbæti.

Re: Nýtt skjákort 3090 ti

Sent: Fim 22. Sep 2022 11:00
af brain
Þessu var frekar póstað til að sýna sendingarkosnað og vsk.

Varla hægt að bera saman verslun einstaklinga sem þurfa að greiða VSK og þeirra sem nota fyrirtæki til að sleppa við það