vesley skrifaði:Gagnrýnin hefur verið í mörg ár hvað varðar skuldasöfnun borgarinnar, og ég hef engan áhuga á að fá samanburð við aðra bæi, það afsakar ekki rekstur Reykjavíkur það að einhver annar geri það saman. 10% af öllum tekjum borgarsjóðs fer eingöngu í að greiða vexti og verðbætur af öllum þeim lánum sem borgin hefur tekið.
A-hluti borgarinnar hefur verið rekinn með afgangi 2017-2019 (samtals um 11 milljarðar) , tap 2020 og 2021 (samtals um 9,5 milljarðar)
https://reykjavik.is/arsreikningarMá ekki vitna í svar Innviðaráðherra til Kjartans Magnússonar um stöðu fjármála borgarinnar?
https://www.althingi.is/altext/152/s/0928.html
- Capture.JPG (101.16 KiB) Skoðað 1882 sinnum
Hvað varðar félagsbústaði og bókhaldsaðferðina þar að baki, þá er þetta hér á síðum 14 og 20.
https://fundur.reykjavik.is/sites/defau ... a_2021.pdfvesley skrifaði:Þetta er engar raunverulegar tekjur.
Það er krafa skv. lögum að færa breytingar á gangvirði fjárfestingafasteigna í rekstrarreikning...
39.gr. laga um ársreikninga (
https://www.althingi.is/lagas/nuna/2006003.html)
Félög, sem eru með starfsemi á sviði fjárfestinga í [fjárfestingarfasteignum], 1) mega meta eignir og skuldbindingar, sem þeim tengjast innan þessarar starfsemi, til gangvirðis. … 1)
Ákvæði 1. mgr. tekur til fjárfestinga í [fjárfestingarfasteignum] 1) eða hluta þeirra, svo sem fasteigna og annarra efnislegra eigna ásamt skuldbindingum þeim tengdum.
Félög, sem stunda eldi á lifandi dýrum eða rækta plöntur, í þeim tilgangi að selja þau eða afurðir þeirra, með úrvinnslu eða framleiðslu í huga, mega meta þær eignir á gangvirði.
Við mat á eignum og skuldbindingum þeim tengdum, sbr. 1.–3. mgr., skulu ákvæði 37. gr. gilda.
Breyting á virði eigna og skuldbindinga, sem tengjast þeim, sbr. 2. og 3. mgr., skal færð á rekstrarreikning.
Félagsbústaðir reka sig sem leigufélag... er það svo rangt?
Borgin er s.s ekki að reka félagslegt húsnæði, það er leigufélag sem borgin á sem gerir það og ef önnur sveitafélög mundu vilja kaupa sig inn í félagið þá að sjálfsögðu þarf félagið að vera verðmetið og rekið út frá gangvirði fasteignasafnsins.
vesley skrifaði:Ef Reykjavík væri ekki með Orkuveituna á sínum snærum þá væri borgarsjóður einfaldlega í djúpum skít, dýpri en hann er núþegar.
Rangt, eins og ég lýsti hér að ofan, þá er A hluti borgarinnar búinn að vera undanfarin fimm ár í plús í heildina litið og spjarar sig ágætlega, alltaf gott að fá arð frá OR en er ekki eðlilegt að borgarbúar njóri arðs af eignum borgarinnar?
vesley skrifaði:EFTA er með ársreikninga borgarinnar undir eftirliti hjá sér og alvarlegar athugasemdir verið gerðar bæði þar og af öðrum aðilum.
Einhver sendi tilkynningu á EFTA sem að sjálfsögðu fer að skoða málið, ekkert óeðlilegt við það að EFTA sinni skyldu sinni.
Dæmi um sterka stöðu borgarinnar:
https://hringbraut.frettabladid.is/fret ... -kjartans/vesley skrifaði:Í því skyni að brengla og afvegaleiða umræðuna hafa einhverjir reynt að setja fram staðhæfingar sem byggja einvörðungu á upplýsingum úr A-hluta Reykjavíkurborgar (borgarsjóðs). Samkvæmt reglum skal miða við heildarskuldir og skuldbindingar bæði A- og B-hluta í reikningsskilum. (Svonefnd B-hluta fyrirtæki eru fyrirtæki á borð við Félagsbústaði). Ársreikningur Reykjavíkurborgar er sem sé ekki samanburðarhæfur við reikninga flestra eða allra annarra sveitarfélaga þar sem brugðið hefur verið á það ráð að færa skuldir vegna félagslegs húsnæðis í sérstakt fyrirtæki, Félagsbústaði hf., til þess að fegra ársreikninginn. Framsetning ársreikningsins sætir nú sérstakri athugun eftirlitsstofnunar EFTA.
Sjá svör að ofan.
vesley skrifaði:Á meðan borgin getur ekki staðið við loforð sitt að lagfæra leikskólamál sín, heldur ætla þeir að skerða þá þjónustu enn frekar!
Þetta er meginástæðan fyrir því að ég flutti úr Reykjavík fyrir örfáum árum, ásamt fjölda annarra fjölskyldna sem eru á sama máli.
Borgin getur ekki neytt verktaka til að byggja fyrir sig...
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022 ... ikskolans/Adam og Evu "Lostaborg" við Holatveg er viðbót og verið er að reyna laga alla þessa mygluðu skóla OG byggja nýja.
Ég veit ekki hvað þú vilt... viltu að borgin eyði meiri pening eða haldi sig réttum megin við núllið?
Það eru milljarðar í pípunum af leikskólareddingum, t.d. bara að reyna ná betri nýtingu plássa með endurbættri nýskráningu barna inn í leikskóla.
Edit:
vesley skrifaði:Svo ekki sé minnst á byggingageirann, verktakar eru ekki feimnir að tala um hvað það sé margfalt tímafrekara og dýrara að fá öll tilskilin leyfi hjá borginni vs önnur bæjarfélög.
Byggingareftirlit o.þ.h. hjá borginni mætti sannarlega vera betra en þarna er Byggingarfulltrúi að vinna þrekvirki m.v. umfangið sem eykst stöðugt án þess að það megi "spreða" í fleira fólk...
https://reykjavik.is/sites/default/file ... a_2021.pdfvesley skrifaði:Hef ég t.d. unnið hjá verktaka sem endaði á barmi gjaldþrots þar sem það tók hátt í 2. ár að fá byggingarleyfi á framkvæmd sem byrjað var á.
Hvað var vandamálið ? Bókstaflega ekki neitt, leyfið var afturkallað vegna athugasemda á að húsið væri of hátt, sem það var svo ekki, enda var þetta seinasta fjölbýliði í götunni og húsið er nákvæmlega eins og öll hin húsin!
Þú ert að segja sögu blokkarinnar sem ég bý í, verktaki sem fór ekki eftir lögum og reglum og fúskaði vinnuna sína, fékk uppáskrifað eftirá hjá hönnuði hvað hann hafði gert og nú er búið að dæma þá til að greiða 40 milljónir en þeir áfrýjuðu til Landsréttar.
Það er ekki borginni að kenna að verktakar og hönnuðir komi sér ekki upp þekkingu til að gera þetta rétt. Að það þurfi einhverja skrifstofupésa til að segja fagfólki hvaða lágmarksatriði þurfi að koma fram á teikningum... fagfólki sem á að hafa lært þetta skóla og selur vinnu sína fyrir tugi þúsunda á klst.