vesley skrifaði:Ég á bágt með að trúa að þér finnst leikskólamálin vera í lagi. Biðlistar eru orðnir lengri en þeir voru áður fyrr.
Samfylkingin og núverandi meirihluti hafa í yfir 16. ár lofað styttri biðlistum og leikskólapláss fyrir öll börn 18 mánaða og eldri, og aldrei nokkurn tíman getað staðið við það
2019 var staðan ekki svona...
https://fundur.reykjavik.is/sites/defau ... kskola.pdfÞegar Covid skall og á fólk fór bara undir sæng að fjölga sér, þá gat borgin ekkert byggt af leikskólum...
- Capture.PNG (11.69 KiB) Skoðað 1223 sinnum
Í borginni fóru krakkar á leikskólaaldri úr 8.911 í 9.234, fjölgaði um 323.
Hvernig á borgin að tækla svona sveiflu í þessu árferði + húsnæði er að mygla + fáránlega erfitt að fá fólk til að vinna á leikskólum.
Ef borgin væri með illa nýtta leikskóla þá hefur það nú ratað í fréttirnar.
vesley skrifaði:Í desember sendi upplýsingafulltrúi Reykjarvíkurborgar frá sér minnisblað þar sem meðalaldur við inngöngu á leikskólum Reykjarvíkurborgar væri 29 mánuðir og hefði hækkað úr þeim 26 mánuðum sem það var áður en kjörtímabilið hófst.
Bréfið sem ég vitnaði í áður var staðan eins og hún var skv. svari SFS til borgarstjórnar, held að enginn viti stöðuna betur en þeir sem reka skólana.
vesley skrifaði:Hér er vert að taka fram að þetta er auðvitað miðgildi og þýðir ekki að börn yngri en 29 mánaða komast ekki inn, hinsvegar er aldur þeirra barna sem komast á leikskólann að hækka sem er alls ekki gott. Á meðan hafa öll önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu náð að stytta sinn biðlista.
Borgin hefur sannarlega opnað nýja leikskóla og reynt að byggja fleiri en þessi covidfjölgun á krökkum er óviðbúin og kemur á tíma þar sem lítið náðist að byggja.
vesley skrifaði:Hildur Steinþórsdóttir segist hafa margspurt lögmann borgarinnar hvort að ekki þurfi neitt að standa á bakvið boð um leikskólapláss og í raun sé stutta svarið „nei“. Ekki þurfi að vera til leikskóli til þess að hægt sé að bjóða leikskólapláss.
Í tölvupóstsamskiptum hennar við borgina er henni kastað á milli sviða innan borgarinnar og fá svör fást við spurningum hennar. Hver sá sem svarar tölvupóstum hennar firrar sig ábyrgð og bendir hver á annan, ef svar fæst.
Leikskólinn sem dóttur hennar var boðið á er ekki ennþá tilbúinn þrátt fyrir að skólagangan hafi átt að hefjast í janúar. Nú rúmum fjórum mánuðum eftir að leikskólastarf átti að hefjast eru bygging leikskólanna ekki klár og biðlistar aldrei verið lengri.
vesley skrifaði:Það líka lagfærir ekki biðlistann að bjóða börnum leikskólapláss á leikskólum sem eru ekki einu sinni til..
Á borgin ekki að ganga út frá því að verktakar standi við gerða samninga um afhendingu á húsnæði ?
Leikskólar eiga að vera meira en bara geymslupláss, það er krafa um faglega mönnun, námsskrá, eldamennsku, lóðarinnar og stöðugs eftirlits með börnunum að sjálfsögðu.
Það eru akkúrat svona þræðir sem fólk les og hugsar "Ég ætla sko aldrei að vinna á leikskóla" eða "Það hlítur að vera ógeðslegt að vinna hjá borginni".
Og það er ástæðan fyrir því að ég fór í þessi skrif, því þessi gagnrýni er mikið til "angry man yelling at cloud"... þessi vandamál eru oft þess eðlis að það er í raun fáránlegt að skammast yfir þeim...
Ég hef beðið eftir leikskóla hjá borginni og þurft að redda mér og endaði hjá Hjallastefnunni. (sem var svo líklega miklu betra) en það kostaði mann extra á námsárunum. Aldrei hefði mér dottið í hug að kenna borginni um það vesen. Ég eignaðist þetta barn og hefði þá einfaldlega skoðað að flytja í sveitafélag þar sem ástandið væri betra.
Borgin borgar ekki samkeppnishæf laun, borgin má takmarkað gera fyrir sitt starfsfólk, pólitíkin og nöldrarar eru endalaust að bíta í hælana á öllu sem er gert, minnihlutinn oft með tilgangslausar fyrirspurnir sem tekur líklega marga mannmánuði að safna gögnum fyrir og svara á hverju ári...
Kerfið er sannarlega þungt á margan hátt og það fyrsta sem slegið er á frest núna er líklega stafræn umbreyting og sjálfvirknivæðing... ekki búast við því að ástandið batni á meðan starfsemi borgarinnar fær ekki að þróast.