Síða 3 af 8

Re: Elon Musk

Sent: Fös 25. Nóv 2022 20:33
af appel
Ég held að vandamálið sé ekki að hægt sé að finna öfgakenndar skoðanir á netinu, held að vandamálið sé einfaldlega að krökkum er ekki kennd gagnrýnin hugsun í dag, þessvegna leita þessir krakkar, aðallega strákar að því virðist, í svona. Engar fyrirmyndir aðrar.

Og þá kem ég doldið að þessu ofbeldi sem hefur verið í miðborginni, þetta eru ungir strákar sem eru þarna að verki, komnir í einhverskonar undirheimastarfssemi, maður sér það alveg að þetta eru kannski 17-19 ára strákar margir þarna í vídjóinu frá bankastræti.
Svo hjó ég eftir frétt frá kennarasamtökunum held ég þar sem þeir vísuðu alveg frá sér að þetta sé "uppeldinu" hjá þeim að kenna.

En það er klárt mál að þessi strákar ganga í gegnum allt skólakerfið nær eingöngu með konur sem sinn uppeldisfræðing/kennara má segja.
Aldrei neitt vandamál með stúlkur, bara strákarnir eru með vandamál, og skv. kennarasamtökunum þá er það strákunum að kenna.

Sér fólk ekki virkilega hvað vandamálið er?

Svo er covid tímabilið algjört disaster fyrir þessa stráka sem eiginlega misstu af síðustu tveimur árunum í grunnskóla, margir fara í eitthvað rugl tel ég.

Re: Elon Musk

Sent: Fös 25. Nóv 2022 21:53
af ZiRiuS
Templar skrifaði:
appel skrifaði:Þið virðist alltaf transleita það sem ég segi sem einhvern stuðning við það sem þeir eru að tala fyrir.
Ég er fyrir tjáningafrelsið, en það þýðir ekki að ég styðji við allt sem allir segja.
....

Getur ekki rökrætt við woke, það er þeirra skoðun og hún er rétt, það er engin millivegur og allt annað eru fasistar og bann á þeim er réttlætanlegt og þeir eru ógeð, fyrirlíta svona og hinsegi osf....
þetta fólk skilur ekki málfrelsi líka, það er einmitt til að verja rétt fólks að hafa óvinsælar skoðanir og slæmar skoðanir. Að vera siðað samfélag er það, siðurinn er í því fólgin að fræða fólk með orðum og ekki ofbeldi eins og bönnum, sektum og frelsisviptingum. En þú veist það er ekki ofbeldi þegar "góða fólkið" gerir það.

Veist þú hvað woke er? Ert þú að segja mér það að þegar þú horfir á merkingu orðsins woke að þú sért það ekki?

Eða ert þú kannski þessi týpa sem idolizar og étur allt upp eftir Joe Rogan, Ben Shapiro, Steven Crowder, Elon Musk og Trump og heldur að "vinstrið" hati "hægrið" og að þetta sé allt us vs. them og þú verður alltaf að trasha allt sem fólk segir sem er ekki á sömu skoðun og þú og öskra "aldrei má maður neitt útaf þessu woke liði" án þess að koma með vott af rökum?

Tjáningarfrelsi ≠ þú mátt segja allt sem þér sýnist

Re: Elon Musk

Sent: Fös 25. Nóv 2022 23:05
af appel
ZiRiuS skrifaði:Tjáningarfrelsi ≠ þú mátt segja allt sem þér sýnist

Við skulum muna eftir að spyrja þig um leyfi næst.

Re: Elon Musk

Sent: Fös 25. Nóv 2022 23:48
af urban
Templar skrifaði:
appel skrifaði:Þið virðist alltaf transleita það sem ég segi sem einhvern stuðning við það sem þeir eru að tala fyrir.
Ég er fyrir tjáningafrelsið, en það þýðir ekki að ég styðji við allt sem allir segja.
....

Getur ekki rökrætt við woke, það er þeirra skoðun og hún er rétt, það er engin millivegur og allt annað eru fasistar og bann á þeim er réttlætanlegt og þeir eru ógeð, fyrirlíta svona og hinsegi osf....
þetta fólk skilur ekki málfrelsi líka, það er einmitt til að verja rétt fólks að hafa óvinsælar skoðanir og slæmar skoðanir. Að vera siðað samfélag er það, siðurinn er í því fólgin að fræða fólk með orðum og ekki ofbeldi eins og bönnum, sektum og frelsisviptingum. En þú veist það er ekki ofbeldi þegar "góða fólkið" gerir það.

Er hægt að rökræða við þig ?
Ert þú ekki á því að þín skoðun sé rétt ?
Finnst þér vera einhver millivegur á t.d. málsfrelsinu ?
Finnst þér þetta vera rökræður að tala um góða fólkið þetta og woke hitt ?

fyrir utan að, jeminn einasti hvað þessi "woke" og "góða fólkið" umræða er orðin þreytt.

alveg merkilegt þegar að einhver er svo á móti "góða fólkinu"
Er svona skemmtilegt að vera hluti af vonda fólkinu ?

Ég hef aldrei skilið þennan hugsunarhátt.

Skal samt alveg styðja það að þú fáir að segja þetta, en á hinn bógin.
Málfrelsi þýðir ekki að það eigi einhver heimtun á stalli til að segja eitthvað og ennþá síður að það beri einhver að hlusta á það.

Twitter og umræða um málfrelsi er algert bull, alveg einsog hérna, það gildir ekki málfrelsi hérna.
Við stjórnendur hérna erum t.d. með alveg ótrúlega mjúkan stjórnanda, hann skiptir sér alveg ótrúlega lítið að því sem að við gerum hérna, en ég kem með nákvæmlega sama punkt og ég kom með áður.

Ef að Guðjóni dettur til hugsar að banna stafinn a hérna inni, þá er hann bara bannaður, alveg sama hversu mikið öllum langar að segja a og langar að öskra málfrelsi hitt og málfresli þetta, þá verðum við stjórnendur líka bara að fara eftir því (eða hætta sem stjórnendur)

Málfrelsið skiptir bara akkúrat engu máli þegar að kemur að einkafyrirtækjum, þeim ber akkúrat engin skylda að halda uppi einhverju málfrelsi.

Ástæðan fyrir því að hinir og þessir voru bannaðir á twitter, hinar og þessar reglur voru til staðar og sum umræða var bönnur var bara einfaldlega útaf því að eigendur þess höfðu sett reglur og töldu að fyrirtækinu sínu væru best varið með þær reglur.

Núna er Musk bara einfaldlega sem eigandi að setja aðrar reglur og telur fyrirtækinu sínu best varið þannig.
Síðan sér kapitalisminn um það að segja hvort að þær séu góðar eða ekki, óhemju mörg fyrirtæki t.d. hætt að auglýsa þar, ekki útaf málfrelsi, heldur útaf því að eigendur þeirra telur sínum peningum best varið í auglýsingar annar staðar á meðan að þetta "shitshow" sem að er búið að vera í gangi undanfarnar vikur er búið.

Re: Elon Musk

Sent: Lau 26. Nóv 2022 00:02
af ZiRiuS
appel skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:Tjáningarfrelsi ≠ þú mátt segja allt sem þér sýnist

Við skulum muna eftir að spyrja þig um leyfi næst.

:face

Mér er drullusama hvað þið segið, ég er ekki forum police (hélt þú værir það, af hverju ertu admin ef þú ert á þeirri skoðun að það megi segja hvað sem er. Hver er tilgangur þinn hérna?) og ég tek voða fáu hérna alvarlega, nema blatant fordómum eins og rasisma, fötlunarfordómum og kvennfyrirlitningu. Annars fyrir utan það er ég bara að tala um tæknimál og trolla "anti-woke" liðið.

*edit*
Fun fact: "Tjáningarfrelsið hefur um langa tíð verið álitið eitt af mikilvægustu réttindum einstaklings. Þrátt fyrir það hefur verið viðurkennt að heimilt sé að setja því ákveðnar skorður. Samkvæmt dómum hæstaréttar verða slíkar takmarkanir að uppfylla þrjú skilyrði. Þær verða að byggja á lögum, þjóna lögmætu markmiði og vera nauðsynlegar."
Source

Re: Elon Musk

Sent: Lau 26. Nóv 2022 00:24
af appel
ZiRiuS skrifaði:

Frábært, loksins einhver sem vísar í lögin. Ég hélt að lögin væru orðin óþarfi og menn væru dæmdir án dóms og laga.

Re: Elon Musk

Sent: Lau 26. Nóv 2022 00:30

Ég þarf engin lög til að dæma þig, er löngu búinn að því :P

Re: Elon Musk

Sent: Lau 26. Nóv 2022 00:38
af appel
Saklaus uns sekt er sönnuð :) beat that!

Re: Elon Musk

Sent: Lau 26. Nóv 2022 07:14
af Moldvarpan

Re: Elon Musk

Sent: Lau 26. Nóv 2022 14:44
af Templar
Fólk að kalla aðra fávita sem eru kílómetrum ofar en þeir í fæðukeðjunni og afrekum en þeir sjálfir, meikar sens.

Annars áhugavert hvað Musk gerir en frábært að byrja á því að tryggja málfrelsi, appið eflaust fær ýmsar viðbætur og stækkar, neytendur geta ekki tapað hérna og öll neikvæðni er varla rökrétt.

Re: Elon Musk

Sent: Lau 26. Nóv 2022 18:51
af rapport
Fólk er ekki að éta annað fólk, við erum á sama stað í fæðukeðjunni.

Elon Musk á bara peninga og er með sambönd.

Hvernig á Twitter að þróast þegar þekkingin á kerfinu er farin úr húsi?

Þetta er einfaldlega chaos í gangi sem verður dæmt eftir því hvernig það endar.

Það er enginn að ná að sjá eitthvað skipulag eða vit að baki þess sem hann er að gera, bara skapa upplausnarástand og vona að allt endi vel.

Málfrelsi án þess að það séu afleiðingar ef fólk fer yfir strikið er ekki frelsi, það er bara yfirgangur og ofbeldi.

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 02:07
af Sinnumtveir
DaRKSTaR skrifaði:Hann fer aldrei á hausinn, getur gert eins og facebook, skellt óendanlega mikið af auglýsingum á þá sem hafa ekki áskrift, mokað inn peningum.

Tesla getur dottið niður í virði en twitter er gull gæsin hans

Þetta er bara eins og youtube, enginn ætlaði að borga áskrift svo var komið svo mikið af auglýsingum að flest allir eru með youtube premium í dag og fyrirtækið farið að mokgræða.

Aldrei á hausinn? Tja, hann gæti hæglega farið á hausinn. Tesla er verðlagt eins og Apple en allar tekjurnar koma úr
beisik framleiðslu. Næstum allir stóru bilaframleiðendurnir eru komnir í samkeppni og fáir eru betri í beisik massaframleiðslu.
Kannski er Tesla eilítið betri í fyrra, í ár og á næsta ári en það er óskynsamlegt að ætla að Tesla haldi einhverju sérstöku
forskoti til framtíðar. Þegar forskotið er farið þá gæti Tesla verið án sundskýlu þegar fjarar út, bara einn af mörgum
bílaframleiðendum en þá með minni markaðshlutdeild, þeas með markaðsvirði á við Ford, GM, Toyota, Renault eða Volkswagen.

Tesla tæknifyrirtæki? Full self-driving? Hið fyrra gæti bjargað einhverju en hið síðara (sem er hluti af hinu fyrra) virðist
enn fjarlægir órar og á þessu stigi deyjandi vonarljós. Það er í meira lagi vafasamt að Tesla takist að hanga á markaðsvirði
sem er tugumfallt yfir því sem aðrir bílaframleiðendur eru verðlagðir á. Í dag, eða eftir nokkur ár, giska ég að nógu margir
átti sig á að Tesla er bara bíll. Bílar streyma út úr verskmiðjum um allan heim, alla daga, fæstir eru Tesla og forskotið
mikla ... hverfur, af því að Tesla er bara bíll. Kannski mjög góður bíll, kannski eilítið betri en keppinautarnir en samt:
bara bíll.

Semsagt, Musk getur bara víst farið á hausinn, rétt eins og flestir. Ef rekstur og verðhræriingar eru honum óhagsstæðar
þó ekki sé nema til tiltölulega skamms tíma gæti auðjöfurinn á að giska mögulega orðið gjaldþrota. Hann mun örugglega
geta étið humar með kampavíni með XO í eftirdrykk svo lengi sem öndin leyfir en ...

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 02:47
af Henjo
Sinnumtveir skrifaði:

Ok, en Tesla er samt ólíkt öðrum bílaframleiðendum eins og VW og Toyota. Hagnaður þeirra á síðasta ársfjórðun er hærra en t.d. Toyota þrátt fyrir að Toyota framleiðir 7 fallt fleiri bíla en þeir.

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 11:35
af Hjaltiatla
Mögulega sér hann fyrir sér Twitter sem tól til að þróa gervigreind í núverandi verkefni.

SpaceX
Tesla Bílar
Starship
Starlink
Tesla Autopilot
Tesla sjálfkeyrandi bílar
Tesla Bot

Ég tel hæpið að hann hafi það mikla trú á Twitter sem platform að áhrifavaldar drífi upp verðið miðað við kaupverðið.
Bara mín tilfinning án þess að hafa neinar heimildir fyrir því sem ég skrifa.

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 13:27
af Sinnumtveir
Henjo skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:Hann fer aldrei á hausinn, getur gert eins og facebook, skellt óendanlega mikið af auglýsingum á þá sem hafa ekki áskrift, mokað inn peningum.

Tesla getur dottið niður í virði en twitter er gull gæsin hans

Þetta er bara eins og youtube, enginn ætlaði að borga áskrift svo var komið svo mikið af auglýsingum að flest allir eru með youtube premium í dag og fyrirtækið farið að mokgræða.

Aldrei á hausinn? Tja, hann gæti hæglega farið á hausinn. Tesla er verðlagt eins og Apple en allar tekjurnar koma úr
beisik framleiðslu. Næstum allir stóru bilaframleiðendurnir eru komnir í samkeppni og fáir eru betri í beisik massaframleiðslu.
Kannski er Tesla eilítið betri í fyrra, í ár og á næsta ári en það er óskynsamlegt að ætla að Tesla haldi einhverju sérstöku
forskoti til framtíðar. Þegar forskotið er farið þá gæti Tesla verið án sundskýlu þegar fjarar út, bara einn af mörgum
bílaframleiðendum en þá með minni markaðshlutdeild, þeas með markaðsvirði á við Ford, GM, Toyota, Renault eða Volkswagen.

Tesla tæknifyrirtæki? Full self-driving? Hið fyrra gæti bjargað einhverju en hið síðara (sem er hluti af hinu fyrra) virðist
enn fjarlægir órar og á þessu stigi deyjandi vonarljós. Það er í meira lagi vafasamt að Tesla takist að hanga á markaðsvirði
sem er tugumfallt yfir því sem aðrir bílaframleiðendur eru verðlagðir á. Í dag, eða eftir nokkur ár, giska ég að nógu margir
átti sig á að Tesla er bara bíll. Bílar streyma út úr verskmiðjum um allan heim, alla daga, fæstir eru Tesla og forskotið
mikla ... hverfur, af því að Tesla er bara bíll. Kannski mjög góður bíll, kannski eilítið betri en keppinautarnir en samt:
bara bíll.

Semsagt, Musk getur bara víst farið á hausinn, rétt eins og flestir. Ef rekstur og verðhræriingar eru honum óhagsstæðar
þó ekki sé nema til tiltölulega skamms tíma gæti auðjöfurinn á að giska mögulega orðið gjaldþrota. Hann mun örugglega
geta étið humar með kampavíni með XO í eftirdrykk svo lengi sem öndin leyfir en ...

Ok, en Tesla er samt ólíkt öðrum bílaframleiðendum eins og VW og Toyota. Hagnaður þeirra á síðasta ársfjórðun er hærra en t.d. Toyota þrátt fyrir að Toyota framleiðir 7 fallt fleiri bíla en þeir.

Uþb helmingur af hagnaði Tesla er vegna sölu á losunarheimildum. Þessi hagnaður mun líklega minnka eða gufa upp á næstu árum.

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 15:38
af Trihard
Tesla er líka að selja bílatryggingar, eru ennþá að stækka í BNA amk. stefna væntanlega á að selja öllum Tesla eigendum tryggingar í framtíðinni.
Þeir eru nr. 1 í fjöldaframleiðslu rafbíla í öllum heiminum árið 2022 og á eftir þeim er BYD, stærsti viðskiptavinur Teslu er Kína, source: https://cleantechnica.com/2022/11/01/to ... -globally/
Tesla selur líka sólarsellur og batterí fyrir heimili.

Ekkert af risaeðlubílaframleiðendunum hefur séns á að nálgast framleiðslugetu Tesla á rafbílum á næstu 10-20 árum, það kostar mjög mikið að henda eldsneytisbílaframleiðslubúnaði og kaupa inn rafbílaframleiðslubúnað í allar verksmiðjur, sem er áhætta sem flestir þeirra vilja forðast, en á endanum munu þau þurfa að taka þá akvörðun, þar sem það verður ólöglegt að flytja inn risaeðlufólksbíla í Evrópu og BNA. Þegar það gerist munum við sjá stór risaeðlubíla fyrirtæki lýsa yfir gjaldþroti þar sem þau hafa ekki efni á að breyta verksmiðjunum sínum til að framleiða rafbíla í staðinn og mun færri þjóðir kaupa af þeim risaeðlufólksbíla lengur.

Það ætti ekki að taka mið af stærstu bílaframleiðendunum þegar horft er á framtíðina, frekar að horfa bara á rafbílamarkaðinn þar sem risaeðlurnar munu hægt og rólega fjarast.

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 16:06
af Moldvarpan
Svolítið barnalegt að kalla þetta risaeðlubíla.

Stærsti hluti orkunnar sem búin er til fyrir rafmagnsbílana er ekkert síður mengandi.
Það er ekkert að marka okkur íslendinga, það búa fáar þjóðir að jafn mikilli hreinni orku eins og við.

Mynd
Mynd

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 16:55
af Henjo
Sinnumtveir skrifaði:
Henjo skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:

Uþb helmingur af hagnaði Tesla er vegna sölu á losunarheimildum. Þessi hagnaður mun líklega minnka eða gufa upp á næstu árum.

Ertu alveg viss? Því þegar ég googlaði þetta kom upp að aðeins örfá prósent af tekjum hjá þeim koma af losunarheimildum.

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 17:05
af ekkert
Moldvarpan skrifaði:Stærsti hluti orkunnar sem búin er til fyrir rafmagnsbílana er ekkert síður mengandi.

Rétt, en þessi gröf sem þú setur fram er ekki að sýna það. Þau sýna heildar orku notkun, líka risaeðlueldsneytið sem fer beint í flutninga- og farartæki. Hér er PDF með nýrri tölum og betri sundurliðun: https://www.eia.gov/energyexplained/us- ... sector.pdf

Edit: bæti við að ég kann vel við herra Musk en frægðin fer illa með flesta.

Re: Elon Musk

Sent: Sun 27. Nóv 2022 22:32
af Viktor
Moldvarpan skrifaði:Stærsti hluti orkunnar sem búin er til fyrir rafmagnsbílana er ekkert síður mengandi.

Nuclear energy is by far the largest source of clean air energy in the United States, generating more than half of the nation's emission-free electricity. Air pollution causes millions of premature deaths annually, according to the World Health Organization. Nuclear can go further than any other energy source to reduce air pollution-related health problems and deaths caused by burning fossil fuels.

Nuclear energy is considered by some as ecological energy in the sense that producing electricity with nuclear fission emits almost no CO2 or fine particles. On the contrary, coal or oil, and even gas, when put into combustion to produce electricity (or heat, or to power an engine), emit CO2 and pollute. And it is CO2 and fine particles that are responsible for global warming and air pollution. From this point of view, nuclear electricity can be seen as relatively ecological.

Re: Elon Musk

Sent: Mán 28. Nóv 2022 00:28
af rapport
Þessi þráður er um manneskjuna Elon Musk og hann er sannarlega ekki vanmetinn og hefur ekki verið.

Hann er andlit Tesla en ekki upphafsmaður, og hefur gert fyrirtækinu meira gott en slæmt.

Ég hefði ekki áhyggjur af Tesla án hans.

En um hversu hrein kjarnorkan er, þá þarf maður bara að hafa spilað SimCity2000 til að skilja takmarkanir vatns og vindorku, það bara er ekki pláss á kortinu og kjarnorkan er best þangað til ný tækni er fundin upp.

Ef það á að rafvæða allt, líka kyndingu í heimahúsum í stað kola og gass, þá er kjarnorkan eina vitið.

Re: Elon Musk

Sent: Mán 28. Nóv 2022 10:15
af ZiRiuS
rapport skrifaði:...þá er kjarnorkan eina vitið.

Þangað til vanhæfir einstaklingar stjórna, eins og gerðist í Chernobyl og Fukushima :P

Re: Elon Musk

Sent: Mán 28. Nóv 2022 10:48
af Viktor
ZiRiuS skrifaði:
rapport skrifaði:...þá er kjarnorkan eina vitið.

Þangað til vanhæfir einstaklingar stjórna, eins og gerðist í Chernobyl og Fukushima :P

Skárra að díla við kjarnorkuslys á afmörkuðu svæði heldur en að rústa allri plánetunni á ljóshraða.

Re: Elon Musk

Sent: Mán 28. Nóv 2022 10:51
af Henjo
ZiRiuS skrifaði:
rapport skrifaði:...þá er kjarnorkan eina vitið.

Þangað til vanhæfir einstaklingar stjórna, eins og gerðist í Chernobyl og Fukushima :P

Ég hef það á tillfiningunni að kjarnorkuver sem eru byggð 2022 eru talsvert öruggari en þau byggð í kringum 1970, þannig engar áhyggjur.

Í raun ættirðu að hafa mun meiri áhyggjur af hydro power eins og við Íslendingar elskum svo mikið: https://en.wikipedia.org/wiki/Banqiao_Dam (allt að 240 þús manns dóu)

Re: Elon Musk

Sent: Mán 28. Nóv 2022 10:58
af GuðjónR
Fyndið hvernig svona þræðir taka oft óvæntar stefnur, held að það sé engin lausn. Enginn vill gefa eftir og þetta snýst allt um peninga. Það eru haldnar ráðstefnur á ráðstefnur ofan og fólk flýgur heimshorna á milli í einkaþotum til þess að ræða mengunarmál. Yfir 50% CO2 losunar Íslendinga kemur frá flugvélum samt ferðumst við sem aldrei fyrr og höldum að lausnin sé rafmagnsbílar, man ekki hvort bílar á Íslandi séu ábyrgir fyrir 7% eða 15% en það var mjög lítil sneið af kökunni.

Íslendingar sendu 43 fulltrúa á COP27 um daginn, var það virkilega nauðsynlegt?
Þetta jafngildir því að ameríkanar hefðu sent 43.000 fulltrúa og Indverjar 169.000 fulltrúa.

Þetta lagast ekki fyrr en það verða komnar upp 100 milljón vindmyllur, öll farartæki jarðar verða rafknúin, landbúnaður bannaður og allir farnir að lifa á pöddum. Þá verður allt gott. Peningar hafa ekkert með þetta gera er það nokkuð... :baby

Það eru endalausar heimsendaspár, heimurinn alltaf að farast en alltaf rúllum við áfram.

Annars þá er allskonar áróður, sumir segja að kjarnorkan sé það besta:
https://www.energy.gov/ne/articles/3-re ... ustainable

Meðan aðrir segja annað:
https://eu.boell.org/en/2021/04/26/7-re ... ate-change