Síða 1 af 1

Hvar á maður að kaupa Apple iPhone 14? Nova.is, USA , amazon.de?

Sent: Mið 07. Des 2022 16:36
af elri99
Hvar á maður að kaupa Apple iPhone 14? Nova.is, USA , amazon.de?

Re: Hvar á maður að kauða Apple iPhone 14? Nova.is, USA , amazon.de?

Sent: Mið 07. Des 2022 17:27
af Predator
Eru það ekki USA símarnir sem eru ekki með simkorta rauf og þar af leiðandi virka ekki með rafrænum skilríkjum?

Re: Hvar á maður að kauða Apple iPhone 14? Nova.is, USA , amazon.de?

Sent: Mið 07. Des 2022 18:02
af elri99
Predator skrifaði:Eru það ekki USA símarnir sem eru ekki með simkorta rauf og þar af leiðandi virka ekki með rafrænum skilríkjum?


Góður punktur. Takk fyrir ábendinguna.

Á kost á að kaupa í New York. Apple iPhone 13 kæmi vel til greina. Á maður að versla í Apple store eða skiptir það ekki máli?

Re: Hvar á maður að kauða Apple iPhone 14? Nova.is, USA , amazon.de?

Sent: Mið 07. Des 2022 19:35
af Ghost
Predator skrifaði:Eru það ekki USA símarnir sem eru ekki með simkorta rauf og þar af leiðandi virka ekki með rafrænum skilríkjum?


Skilst á einum sem ég þekki sem var í Florida um daginn að það var í boði að kaupa bæði með og án símkorts. En auðvitað glatað að það sé ekki hægt að nota rafræn skilríki með þessu.

Re: Hvar á maður að kauða Apple iPhone 14? Nova.is, USA , amazon.de?

Sent: Mið 07. Des 2022 20:30
af Trihard
Amazon.de, borgar meira en færð nýrri týpuna og ekkert vesen.


Edit: Borgar sig ekki að kaupa hann frá Amazon.de, bara 3000kr ódýrari með heimsendingu og toll en hjá Nova, dollarinn ekkert svakalega ódýr heldur

NYC iphone kostar $903 eftir skatt svo þú sparar einhvern 36 þús kall við að kaupa hann í BNA miðað v. Ísland

Ekki þess virði út af tryggingum

Re: Hvar á maður að kauða Apple iPhone 14? Nova.is, USA , amazon.de?

Sent: Mið 07. Des 2022 20:32
af darkppl
Nova og síminn eru kominn með esim
Hægt er að nota rafræn skilríki á sumum stöðum með auðkenni appinu en fyrst þarf að virkja það með rafrænum skilríkjum

https://app.audkenni.is/thjonustur/thjonustuadilar.cfm Þjónustur þar sem þú getur notað auðkenni appið með