Síða 1 af 1

Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 07:32
af Moldvarpan
Nú hef ég tekið eftir því í frosthörkunum síðastliðnu 30 daga að hátalarnir í bílnum hjá mér hljóma mikið dósalegri en þeir gera vanalega.

Þeir hljóma í frostinu eins og þeir séu hálf sprungnir.

Lagast þetta aftur þegar frostið fer? Eða skemmast þeir í frosti?

Væri gott ef eh skvett aðeins úr viskubrunni fyrir mig :)

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 08:28
af Danni V8
Hugsa að þínir hafa bara verið tæpir fyrir og náð að springa.

Bíllinn minn er 15 ára gamall og búinn að fara í gegnum all nokkra vetra og aldrei hef ég heyrt mun á hátölurunum í frosti

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 08:38
af Moldvarpan
Já líklega rétt hjá þér :)

Hélt kannski að frostið hefði eh áhrif á þetta, og gert þá viðkvæmari. Sá hitamælinn sýna -19°C í bílnum tvisvar allavegana á síðastliðnum mánuði.

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 09:28
af brain
Ef það hefði verið mikill raki í bílnum hjá þér. þá gætu hátalararnir hafa dregið í sig smá, og náð að rifna þegar frostið jókst.

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 10:33
af rapport
Hefur frostið ekki áhrif á seglana... veit hvað þú ert að tala um og ímyndaði mér alltaf að seglarnir væru aumari + allt segla málmvirkið ótrúlega lengi að hitna.

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 10:38
af worghal
hef verið að lenda í þessu á skodanum mínum, vantar allann bassa og hljómar frekar lélega en svo eitthvað seinna yfir daginn þegar ég starta honum þá hljómar allt eðlilega. spáði einmitt í því hvort að frostið færi að hafa þessi áhrif á hátalarana í hurðum.

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 10:55
af Hlynzi
Ég hef aldrei orðið var við að hitastig á hátölurum breyti neinu, spurning hvort þetta sé útaf breyttri eigintíðni (resonance) í málminum og plastinu í kuldanum ?

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 20:22
af Moldvarpan
worghal skrifaði:hef verið að lenda í þessu á skodanum mínum, vantar allann bassa og hljómar frekar lélega en svo eitthvað seinna yfir daginn þegar ég starta honum þá hljómar allt eðlilega. spáði einmitt í því hvort að frostið færi að hafa þessi áhrif á hátalarana í hurðum.


Fór út á bílnum eftir kvöldmat og núna er 5 gráðu hiti, hljóðið í hátölurunum er orðið eins og það á að sér að vera.

Veit ekki hvað er að gerast sem útskýrir þetta.

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Fös 20. Jan 2023 22:59
af appel
Moisture and Cold Temperature is Bad for Speakers
https://geekmusician.com/does-cold-temp ... -speakers/

flestir eldri bílar eru með raka inni þar sem þeir eru ekki eins þéttir, á sérstaklega við um minn bíl þar sem ég hef þurft að skafa rúðurnar bæði að innan og utan.

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Lau 21. Jan 2023 07:40
af audiophile
Ætli það sé ekki bara misjafnt? Flestir þola þetta, aðrir ekki? Kannski voru þeir eitthvað viðkvæmir fyrir?

Hef átt marga gamla bíla og aldrei lent í svona. Ég er á 16 ára gömlum Subaru sem eru líklega óþéttustu bílar sem þú færð og ekkert vesen í frostinu undanfarið.

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Lau 21. Jan 2023 07:59
af Moldvarpan
Þetta er í fyrsta sinn sem ég lendi í þessu. Líka langmesta frostið sem ég man eftir.

Og þetta var s.s. að gerast í Hyundai i10 bílnum mínum, 2018 árgerð.

En ángæður með að þetta sé komið í lag núna þegar frostið fór :)

Væri gaman að vita samt hvað er að gerast :D

Re: Áhrif frosts á bílhátalara

Sent: Lau 21. Jan 2023 10:08
af Hlynzi
appel skrifaði:Moisture and Cold Temperature is Bad for Speakers
https://geekmusician.com/does-cold-temp ... -speakers/

flestir eldri bílar eru með raka inni þar sem þeir eru ekki eins þéttir, á sérstaklega við um minn bíl þar sem ég hef þurft að skafa rúðurnar bæði að innan og utan.


Ef þetta er að gerast þá er oftast líklegra að það séu stífluð dren rör og dren tappar sem eru í bílum, ásamt því að ég hef lent í því að miðstöðvar filter sem er blautur olli því að það kom móða á rúðurnar þegar ég setti miðstöðina í gang. Einstaka sinnum er raunverulegur leki inní bílinn (algengast er að þétting á framrúðu hafi klikkað) en afþví að vatnið fer ekki rétta leið endar það inní bíl.