Síða 4 af 5

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Maí 2023 12:51
af jericho

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Maí 2023 20:54
af vesley
Aðdáendur fjármála Reykjavíkurborgar eru alltaf jafn hrifnir af því að eingöngu taka fram A hluta í samanburði. Aldrei má ræða A og B hluta saman.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Maí 2023 21:09
af Le Drum
vesley skrifaði:Aðdáendur fjármála Reykjavíkurborgar eru alltaf jafn hrifnir af því að eingöngu taka fram A hluta í samanburði. Aldrei má ræða A og B hluta saman.

Mátti ekki heldur taka saman Reykjnesbæ og höfnina í Helguvík í sama pakkann. Það var bara skandall ef maður gerði það á sínum tíma :D

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Maí 2023 21:56
af Tbot

Þessar upplýsingar eru bull.

Borgin er nýbúin að viðurkenna að veltufé fyrir síðasta ár var neikvætt um 2 milljarða en ekki í plús eins og allar framsettar töflur halda fram frá borginni.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mið 17. Maí 2023 07:56
af rapport
Tbot skrifaði:

Þessar upplýsingar eru bull.

Borgin er nýbúin að viðurkenna að veltufé fyrir síðasta ár var neikvætt um 2 milljarða en ekki í plús eins og allar framsettar töflur halda fram frá borginni.

Veltufjárhlutfall og veltufé frá rekstri er ekki sama kennitalan.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 19. Jún 2023 17:05
af Tbot
Jæja, þá er það spurning hvernig rapport ætlar að redda þessu.

https://www.dv.is/frettir/2023/6/19/mei ... -foreldra/

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 19. Jún 2023 18:22
af rapport
Tbot skrifaði:Jæja, þá er það spurning hvernig rapport ætlar að redda þessu.

https://www.dv.is/frettir/2023/6/19/mei ... -foreldra/

Hef ég einhverntíman verið að afsaka svona?

Í guðana bænum ekki bendla mig við einhverja svona vitleysu.

Get vísað í gögn og upplýsingar hjá borginni og talað um ýmislegt en ég ber enga ábyrgð á hegðun fólks.

p.s. ef þetta eru ekki "tæknimistök" eða "tæknilegs eðlis"... þetta er "bilun í notanda" :guy

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 19. Jún 2023 22:57
af sundhundur
rapport skrifaði:

Það væri eiginlega forvitnilegt að vita hver kostnaðurinn er við svona sýndarsamráð. Hver ætli árlegur launakostnaður við einn svona sprell-verkefnastjóra sé? Ætli það nái 20 milljónum.

Þessi sami verkefnastjóri var nýlega að ljúka við einn stiga í Breiðholti. Litlar 36 milljónir þar í stiga sem liggur frá engu til einskis af því að einhverjum langaði í þrekstiga og Reykjavíkurborg átti bara 36 millur til að henda í verkefnið.

Engin vanvirðing gagnvart íbúum eða skattgreiðendum á ferðinni þarna :happy

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 19. Jún 2023 23:57
af rapport
sundhundur skrifaði:

Ég furða mig virkilega á svona vinnubrögðum og ég er bara að velta fyrir mér hvort þetta hafi verið tekið úr samhengi eða hvað gerðist eiginlega.

Opinbert starfsfólk á svk. lögum um starfsmenn ríkisins (hélt að það næði til borgarinnar líka) þá er skv. 2.mgr 14.gr. " Starfsmanni er skylt að veita þeim sem til hans leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar, þar á meðal að benda þeim á það, ef svo ber undir, hvert þeir skuli leita með erindi sín."

Þetta er í raun helvíti alvarlegt ef þetta er satt og ef borgin mun ekki taka á þessu þá er það enn verra því þá yrði þetta "samþykkt" verklag hjá fólkinu sem á að sjá um að lýðræðið í borginni virki.

Svo spyr maður sig af hverju það má taka videoið út, hvort það hafi farið official leið eða bara gert og græjað af því að einhver var með aðgangsorð borgarinnar að YouTube.

Þetta verður líklega í fjölmiðlum næstu daga og vikur og eitthvað pólitískt moldviðri sett af stað til að enginn átti sig á hvað sé raunverulega að gerast.

EDIT:
HÉR er gott rit um tjáningafrelsi opinberra starfsmanna.

Og þar segir m.a. :
Í þriðja lagi er það eitt af hlutverkum stjórnsýslunnar að varðveita yfirsýn, samhengi og að farið sé að lögum og réttum leikreglum. Það má orða svo að hún tryggi vissan stöðugleika til mótvægis við pólitíska krafta sem taka þátt í að móta samfélagið.51 Þetta hlutverk verður skýrara þegar haft er í huga að forystumenn stjórnsýslunnar, ráðherrarnir, staldra iðulega stutt við á meðan starfsmennirnir eru að jafnaði ráðnir til lengri tíma. Þetta sjónarmið styður það að starfsmenn gæti hófs í ummælum um umdeild mál.

Í fjórða lagi þarf stjórnsýslan að vera vel starfhæf og í því felst að hver og einn ríkisstarfsmaður þarf að gæta þess að spilla ekki góðum vinnuanda á vinnustað og góðu samstarfi við aðra með ummælum sínum. Í almennum siðareglum starfsmanna ríkisins kemur fram að þeir eigi að láta samstarfsfólk njóta sannmælis og sanngirni og gæta að orðspori vinnustaðar í samskiptum utan vinnu.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 20. Jún 2023 12:00
af sundhundur
rapport skrifaði:Ég furða mig virkilega á svona vinnubrögðum og ég er bara að velta fyrir mér hvort þetta hafi verið tekið úr samhengi eða hvað gerðist eiginlega.

Held að það sé erfitt að slíta þetta mikið úr samhengi. Þetta virðist bara vera nákvæmlega í samhengi.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 20. Jún 2023 12:17
af Hizzman
haha, er ánægður með að borga ekki útsvar í þetta rugl!

fullkomið shitshow!!

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 20. Jún 2023 14:23
af rapport
sundhundur skrifaði:
rapport skrifaði:Ég furða mig virkilega á svona vinnubrögðum og ég er bara að velta fyrir mér hvort þetta hafi verið tekið úr samhengi eða hvað gerðist eiginlega.

Held að það sé erfitt að slíta þetta mikið úr samhengi. Þetta virðist bara vera nákvæmlega í samhengi.

Nú er videoið komið aftur inn á Youtube, bara blurrað á meðan BIN vandamálið varir.

Ég hef sjálfur þurft að eyða óteljandi klukkutímum í að svara fyrirspurnum frá kjörnum fulltrúum, innri og ytri endurskoðendum og ótal samstarfs- og hagaðilum, oft erfið samskipti, ágreiningur í gangi o.þ.h.

Regla #1 - Svaraðu spurningunni sem þú fékkst á skýran einfaldan hátt, helst svo vel að svarið kveiki ekki þörf fyrir fleiri spurningar.

Regla #2 - Ekki fara útfyrir spurninguna og ekki kafa of djúpt í einhverja forsögu = "stay relevant".

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Lau 24. Jún 2023 16:47
af Tbot
Mannréttindastjóri Reykjavíkur, Anna Kristinsdóttir.

Þetta er aldeilis starfstitill, það er eitt víst að hún er ekki fyrir borgarana heldur starfsmenn borgainnar.

Það er stöðugt að verða erfiðara fyrir borgina að fela skítinn, þar sem hann er farinn að flæða um allt.

Því miður virðist vera að hægt sé að líta á allt of marga staði hjá borgini sem "verndaða vinnustaði".

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Lau 24. Jún 2023 16:50
af Tbot
Það er ansi mikið í þessari tilvitnun úr DV

"Ef vissulega væri um einangrað tilvik að ræða, að starfsmenn hafi tekið upp á þessu tali og framkomu upp á sitt einsdæmi, væri nokkuð ljóst að niðurstaðan hefði leitt til uppsagna þeirra. Það hafi þó ekki verið gert og því nokkuð ljóst að þeir hafi verið að fara að fyrirmælum."

Ef starfsmenn eru ekki reknir fyrir svona þá eru þeir að framkvæma skipanir sem koma að ofan.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 15. Jan 2024 23:36
af rapport
https://www.visir.is/g/20242515635d/-th ... ennan-dag-

Jæja...

Hver spáir batnandi fjárhag og bættum rekstri hjá RVK?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Mán 15. Jan 2024 23:51
af Nariur
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242515635d/-thad-kemur-dagur-eftir-thennan-dag-

Jæja...

Hver spáir batnandi fjárhag og bættum rekstri hjá RVK?

:roll:

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Jan 2024 06:11
af talkabout
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242515635d/-thad-kemur-dagur-eftir-thennan-dag-

Jæja...

Hver spáir batnandi fjárhag og bættum rekstri hjá RVK?

Það hættir örugglega að snjóa í Reykjavík líka.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Jan 2024 08:33
af Jón Ragnar
Er enginn aðdáandi Dags en mikið hriklaega er maðurinn búinn að hafa breitt bak, Allt sem fer úrskeðiðs eða er ekki vinsælt í borginni. Allt honum að kenna

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Jan 2024 09:33
af vesley
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242515635d/-thad-kemur-dagur-eftir-thennan-dag-

Jæja...

Hver spáir batnandi fjárhag og bættum rekstri hjá RVK?

https://qlikqap.reykjavik.is/extensions ... hluti.html

Fullkomin tímasetning fyrir Dag sýnist manni.

Skuldir virðast komnar yfir 500 milljarða.
Samkvæmt þeirra yfirliti verður farið 2x sinnum yfir 150% skuldaviðmið (2025-2026)

Vaxtaberandi skuldir munu hækka næstu 5 árin.
Eigiðfjár mun lækka á hverju ári.

Ætli Samfylkingin skelli svo ábyrgðinni á Framsókn?

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Jan 2024 09:35
af brain
Jón Ragnar skrifaði:Er enginn aðdáandi Dags en mikið hriklaega er maðurinn búinn að hafa breitt bak, Allt sem fer úrskeðiðs eða er ekki vinsælt í borginni. Allt honum að kenna

Dagur B sem Borgarstjóri, bar ábyrgð á stjórn borgarinnar og því starfsfólki sem þar er.

Og þar með öllu klúðrinu.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Jan 2024 10:55
af rapport
brain skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Er enginn aðdáandi Dags en mikið hriklaega er maðurinn búinn að hafa breitt bak, Allt sem fer úrskeðiðs eða er ekki vinsælt í borginni. Allt honum að kenna

Dagur B sem Borgarstjóri, bar ábyrgð á stjórn borgarinnar og því starfsfólki sem þar er.

Og þar með öllu klúðrinu.

Borgarstjóri er CEO en borgarritari er COO og svo er haugur af sviðsstjórum sem eru C-level stjórnendur.

Borgarstjóri eða borgarritari vinna með stefnumótun fyrir heildina og geta í raun ekki gripið inn í starfsemi hvers sviðs nema eitthvað ámælisvert gerist. Sviðsstjórar bera alfarið ábyrgð á starfsemi og rekstri sinna sviða.

Borgarstjóri er því sannarlega ábyrgur fyrir stefnunni sem hann setur og þeim áhrifum sem það hefur á starfsemina að fylgja henni með lögmætum hætti.

Borgarstjóri verður ekki ábyrgur fyrir atvikum í rekstrinum nema löng keðja af millistjórnendum hafi klikkað og borgarstjóri hafi vitað af því eða hefði mátt vita af því og gerði ekki neitt.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Jan 2024 11:02
af agnarkb
Staðan greinilega mikið alvalegri hjá borginni en látið er um í blöðum. 25 manns á þjónustu og nýsköpunarsviði sagt upp í dag, þ.m.t. mér.
Eflaust ráðnir inn dýrir verktakar í staðinn.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Þri 16. Jan 2024 22:21
af falcon1
agnarkb skrifaði:Staðan greinilega mikið alvalegri hjá borginni en látið er um í blöðum. 25 manns á þjónustu og nýsköpunarsviði sagt upp í dag, þ.m.t. mér.
Eflaust ráðnir inn dýrir verktakar í staðinn.

Samhryggist þér með atvinnumissinn. Ömurlegt að missa vinnuna en vonandi finnurðu eitthvað fljótt aftur.

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 18. Jan 2024 09:04
af rapport
Þetta nýjasta útspil hjá borginni virðist hafa hitt á einhverjar taugar hjá fólki.
https://www.dv.is/eyjan/2024/1/17/loksi ... d-er-vist/

Re: Reykjavíkurborg á hausnum

Sent: Fim 18. Jan 2024 09:16
af GullMoli
rapport skrifaði:Þetta nýjasta útspil hjá borginni virðist hafa hitt á einhverjar taugar hjá fólki.
https://www.dv.is/eyjan/2024/1/17/loksi ... d-er-vist/

Þetta stemmir við það sem ég hef heyrt frá fólki sem þekkir til og hefur jafnvel starfað hjá Borginni á þessu sviði. Gífurlegt skipulagsleysi, alltof margir yfirmenn og að allt taki alltof langan tíma.

Veit ekki hvort að Völu leikskóla appið sé afkvæmi þessara deildar, en guð minn góður hvað það er lýsandi ef svo er.