Síða 1 af 1

Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Fös 03. Nóv 2023 15:59
af Fennimar002
Sælir,
vonandi getur einhver hjálpað mér.

Málið er að ég er að vinna ákveðna vinnu og vildi fyrirtækið að ég myndi senda þeim reikning fyrir vinnuna. Hvernig myndi ég fara að því? Er það mikið mál?

Fyrirfram þakkir :japsmile

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Fös 03. Nóv 2023 16:36
af dori
Ef þú ert ekki að gera þetta að staðaldri myndi ég bara kaupa mér reikningshefti (nema fyrirtækið hafi rosalega mikið á móti því að taka á móti þannig).

Hérna er annars gamall þráður um þetta sama efni. viewtopic.php?t=65727

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Fös 03. Nóv 2023 17:06
af Hizzman
Talaðu við bókarann í fyrirtækinu, sá ætti að vera til í að hjálpa. Sýna þér hverning á að skrifa reikning osfv.

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Lau 04. Nóv 2023 09:34
af nidur
inexchange virkar fínt í svona.

Bara passa hvað þú setur í vsk reitinn.

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Mið 08. Nóv 2023 10:57
af Maniax
Getur líka skoðað lausnir eins og payday.is, Innifalin þjónusta seinast þegar ég skoðaði þetta

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Mið 08. Nóv 2023 13:06
af SE-sPOON
konto.is er eðal til að senda einstaka reikning frá sér. Fríi aðgangurinn dugar fínt.

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Mið 08. Nóv 2023 13:50
af jericho
SE-sPOON skrifaði:konto.is er eðal til að senda einstaka reikning frá sér. Fríi aðgangurinn dugar fínt.


x2 - konto.is svínvirkaði fyrir mig þegar ég þurfti að senda reikning

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Mið 08. Nóv 2023 17:03
af izelord
Passa bara að rukka ekki vsk ef þú ert ekki með vsk númer.

Re: Senda reikning á fyrirtæki

Sent: Fim 09. Nóv 2023 20:15
af Viktor