Síða 1 af 1

Hljóðmaður - laun?

Sent: Fös 17. Nóv 2023 16:21
af falcon1
Veit einhver hér hvað hljóðmenn eru að fá sirka í laun? Ég get ómögulega fundið einhverja taxta eða kjarasamninga á netinu.

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Fös 17. Nóv 2023 16:57
af JReykdal
Ætli að Félag tæknifólks í rafiðnaði sé algengast fyrir þann bransa, þótt verktaka sé náttúrulega algengast.

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Sun 19. Nóv 2023 14:15
af einarhr
falcon1 skrifaði:Veit einhver hér hvað hljóðmenn eru að fá sirka í laun? Ég get ómögulega fundið einhverja taxta eða kjarasamninga á netinu.

Allt meira og minna í Verktöku

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Sun 19. Nóv 2023 23:27
af falcon1
Eru hljóðmenn eins og á sjónvarpsstöðvunum og leikhúsunum ekki á föstum launum?

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Sun 19. Nóv 2023 23:29
af JReykdal
falcon1 skrifaði:Eru hljóðmenn eins og á sjónvarpsstöðvunum og leikhúsunum ekki á föstum launum?

Eins og ég sagði...félag tæknifólks í rafiðnaði.

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Mán 20. Nóv 2023 13:36
af einarhr

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Mán 20. Nóv 2023 13:53
af JReykdal
falcon1 skrifaði:Eru hljóðmenn eins og á sjónvarpsstöðvunum og leikhúsunum ekki á föstum launum?

Og ekki endilega allir. Þetta er mikil verktakavinna.

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Mán 20. Nóv 2023 18:35
af SolviKarlsson
Ég starfa sjálfur sjálfstætt sem hljóðmaður. Þessir samningar hjá Felags tæknifólks í rafiðnaði virka kannski sem ágætt viðmið, en finnst þeir þó persónulega of lágir, en það er kannski önnur umræða.

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Þri 21. Nóv 2023 21:21
af falcon1
Þetta eru frekar lág laun sem eru gefin upp í þessum samningum, trúi varla að það séu einhverjir á svona lágu kaupi fyrir þetta starf.

Re: Hljóðmaður - laun?

Sent: Þri 21. Nóv 2023 21:41
af einarhr
falcon1 skrifaði:Þetta eru frekar lág laun sem eru gefin upp í þessum samningum, trúi varla að það séu einhverjir á svona lágu kaupi fyrir þetta starf.


ég tók eftir því aðan að þetta er taxti 2019-2022 svo það hafa komið einhverjar hækkanir.