Síða 1 af 1

Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 24. Nóv 2023 18:55
af Tóti
Hvar er best að kaupa heimahleðlsustöð fyrir rafbílinn?

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 24. Nóv 2023 19:07
af Semboy
ískraft

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 24. Nóv 2023 19:12
af Trihard
Tesla

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 24. Nóv 2023 19:40
af kjartanbj
Tesla

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 24. Nóv 2023 20:19
af jonsig
Kaupa eitthvað sem þolir íslenskt veðurfar. Annars þarftu að kaupa nýja á 2ára fresti.

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 24. Nóv 2023 21:56
af nidur
Ódýrast er tesla stöð með áföstum kapli, fyrir heimahús.

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 24. Nóv 2023 22:34
af Gislos
FÍB hefur gert verðkönnun sem ég hef líka nýtt mér.

https://www.fib.is/static/files/kannani ... inal_1.pdf

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Lau 25. Nóv 2023 18:14
af Tóti
Mér var bent á aliexpress.
Margar stöðvar til þar og ódýrar.

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Lau 25. Nóv 2023 18:45
af ZoRzEr
**SELD**



Ég á eina 5 mánaða Tesla hleðslustöð sem ég nota ekki lengur. Kemur með bakplötu og tilbúin til uppsetningar.

Keypt hjá Tesla í júní á þessu ári. Notið í heimahúsi á eins fasa 16A streng. Sér ekki á henni.

Hún er föl fyrir 40þ?

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Sun 26. Nóv 2023 04:14
af Sinnumtveir
Gislos skrifaði:FÍB hefur gert verðkönnun sem ég hef líka nýtt mér.

https://www.fib.is/static/files/kannani ... inal_1.pdf


Ég skannaði hluta netsins í dag og niðurstaðan var í ætt við þetta.

Semsagt, verðumunur milli seljenda hleðslustöðva er VÆGAST sagt svakalegur.

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Sun 26. Nóv 2023 10:12
af Hausinn
Langar að benda á að Örtækni er með fínar hleðslustöðvar, einnig:

https://ortaekni.is/index.php/hledhslustoedhvar

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Sun 26. Nóv 2023 14:08
af kjartanbj
Tóti skrifaði:Mér var bent á aliexpress.
Margar stöðvar til þar og ódýrar.


Ég myndi ekki kaupa stöð þaðan, margt sniðugt og gott þarna en er maður virkilega að treysta á eitthvað sem er mögulega að fara hleypa 11kw í gegnum sig? svo er alls ekkert víst að stöðin sé með réttu viðurkenningarnar og það fáist rafvirki til að setja hana upp enda eru þær tilkynningarskyldar til mannvirkjastofnunar. Lang best að kaupa bara Tesla stöð hjá Tesla á 75kall 7m langur kapall og þær virka fínt. mín stöð er búin að fara á kaf í snjó oftar en einu sinni og er í fullkomnu lagi eftir 3+ ár

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Fös 15. Des 2023 19:25
af Tóti
Teslastöð varð fyrir valinu. Kostaði 80K
Virkar ein fasa og líka þriggja fasa sem er kostur ef maður getur fengið þrjá
fasa inn í hús.
Takk fyrir hjálpina :)
https://rafbilastodin.is/blogs/greinar/ ... dbeiningar
Er þetta ennþá í gildi?

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Lau 16. Des 2023 01:25
af astro
Tóti skrifaði:Teslastöð varð fyrir valinu. Kostaði 80K
Virkar ein fasa og líka þriggja fasa sem er kostur ef maður getur fengið þrjá
fasa inn í hús.
Takk fyrir hjálpina :)
https://rafbilastodin.is/blogs/greinar/ ... dbeiningar
Er þetta ennþá í gildi?


Já, til áramóta...

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Lau 16. Des 2023 08:48
af jonsig
Það vantar jonnyguru síðu sem reviewar svona stöðvar.

Ef menn muna þá var þetta fyrsta síðan sem hægt var að skoða review um power supply í pc, og gæðamunurinn kom aldeilis í ljós hjá kallinum.
Enda var þessi náungi með vit í höfðinu sem maður sér ekki oft á netinu í dag.

Sjálfur vann ég við tækni hlutann á fyrstu hraðhleðslustöðvunum sem komu hérna upp á klakanum og gæðin á stöðvunum voru hreinlega svart og hvítt þótt verðið væri jafnvel svipað.

Sjálfur fengi ég mér eitthvað frá fullorðins framleiðanda eins og ABB sem ég myndi borga aðeins meira fyrir, frekar en eitthvað "ZOOMYIE" drasl sem er framleitt í iðnaðarbílskúr í amsterdam.

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Lau 16. Des 2023 10:45
af Cascade
jonsig skrifaði:Það vantar jonnyguru síðu sem reviewar svona stöðvar.

Ef menn muna þá var þetta fyrsta síðan sem hægt var að skoða review um power supply í pc, og gæðamunurinn kom aldeilis í ljós hjá kallinum.
Enda var þessi náungi með vit í höfðinu sem maður sér ekki oft á netinu í dag.

Sjálfur vann ég við tækni hlutann á fyrstu hraðhleðslustöðvunum sem komu hérna upp á klakanum og gæðin á stöðvunum voru hreinlega svart og hvítt þótt verðið væri jafnvel svipað.

Sjálfur fengi ég mér eitthvað frá fullorðins framleiðanda eins og ABB sem ég myndi borga aðeins meira fyrir, frekar en eitthvað "ZOOMYIE" drasl sem er framleitt í iðnaðarbílskúr í amsterdam.



Þessar blessuðu AC stöðvar gera í raun ekkert, bara einn spólu rofi sem lokar. Vissulega kostur ef þær koma með dc leka liða vörn.
Þannig það er enginn gæða munur á rafmagni sem bilar fá

Þetta skiptir ekki máli fyrr en þú ferð í margar stöðvar og þarf álags dreifingu og/eða greiðslugátt
Þá mismunandi hvernig þau kerfi virka

Þannig fyrir heimahús myndi ég bara velja eftir útliti og verði

Re: Hleðlsustöðvar fyrir rafbíla

Sent: Lau 16. Des 2023 11:31
af jonsig
Þetta snýst um meira en einn spólurofa.
Flottari stöðvar eru væntanlega með SSR frekar en ódýran spólurofa. Ég mundi búast við fleirri og öruggari kompónentum í ABB stöðinni heldur flest ruslið sem selt hérna útá lookinu.

Síðan var eitthvað um samhæfingarvandámál á ódýru stöðvunum ( virkuðu ekki á suma bíla )

Og þetta klassíska, ef stöðin er utandyra og þú kaupir eitthvað dót, þá verður hún rakaskemmd fljótlega.