Rafbílar koma illa út í könnun
-
- Vaktari
- Póstar: 2598
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 486
- Staða: Ótengdur
-
- /dev/null
- Póstar: 1457
- Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
- Reputation: 226
- Staðsetning: In the forest
- Staða: Ótengdur
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Moldvarpan skrifaði:https://www.youtube.com/shorts/VW82YsNzbNQ
Peter Zeihan með allar staðreyndir á hreinu en kemst yfirleitt að vitlausri niðurstöðu
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
slapi skrifaði:Ég myndi aldrei vilja eiga diselbíl (yngri en 5ára) þegar hann er kominn úr ábyrgð.
Kvaðinar aem hafa verið settar á á díselbíla með nýjustu stöðlunum eru að ganga frá rómantíkinni þar, vegna mags af mjög viðkvæmum skynjurum sem fylgjast með útblæstri, tvöfaldur EGR. LNT, DPF og SCR kútar, allt uppundir 5 hitaskynjarar í pústi osfrv.
Spíssanir sem eru í dag eru bilanagjarnari en eldri gerðir.
Vissulega eru nýlegar díselvélar mjög nýtnar og skemmtilegar en það væri gaman að sjá útreikning á total mengun með öllu viðhaldi upp í 250-300þ km.
Það var einmitt sagt sagt um bíla eldri en 2013. Ætli DPF og allt klabbið hafi ekki byrjað af svona fullri alvöru rétt fyrir það leiti.
Þegar euro 6 disel vélin kom frá toyota minnkaði svakalega þetta dpf vesen. Sótsían kemur þá bara rétt eftir túrbínunni í mínum bíl.
Ég set bara dpf cleaner í eldsneytistankinn tvisvar á ári sem kostar mig 650kr skiptið. Og það er bara 0% vesen á þessum kerfum hjá mér.
Þessar disel vélar endast líka alveg endalaust ef fólk hefur vit á því að skipta um hráolíusíurnar hjá sér á 10-15þkm fresti. Því olían er full af einhverju umhverfisvænu kertavaxi í dag. Ekki allir að pæla í því fyrr en þeir fá $$$$ reikninginn ,og umboðin elska að selja þér nýtt sett af spíssum eða olíuverki.
Hugsa að bílaframleiðendur séu líka að reyna troða þessum rafmagnsbílum og hybrid dóti uppá fólk til að ná aftur völdum á varahlutasölunni hjá sér ,koma aftermarket fyrir kattarnef og hámarka aftur gróðann.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Ég er búin að sannfærast. Rafmagnið er ekki framtíðinn. Bensín og dísel þangað til dauðinn aðskilur okkur. Eða þangað til olían er búin og við förum öll aftur og lifum í torfhúsum, sem margir vilja meina mun gerast innan fimmtíu ára.
Síðast breytt af Henjo á Mið 17. Júl 2024 19:39, breytt samtals 1 sinni.
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Henjo skrifaði:Ég er búin að sannfærast. Rafmagnið er ekki framtíðinn. Bensín og dísel þangað til dauðinn aðskilur okkur. Eða þangað til olían er búin og við förum öll aftur og lifum í torfhúsum, sem margir vilja meina mun gerast innan fimmtíu ára.
Rafbílar eru framtíðin en forsendurnar fyrir þessu rafbílaæði á Íslandi eru bara rangar og einkennast af fanatík og grimmu FOmO .
Þessi loftlagsmarkmið stjórnvalda voru bara til þess fallin að lýta vel út í kokteilboðunum í brussel og auka átilla til að hækka allskyns gjöld og skatta.
Ætli þetta sé 5% mannkyns sem ætla að bjarga heiminum með að banna brunahreyfla 2028 og taka á sig allan þann kostnað sem því fylgir meðan hin 90% hlægja bara af þessari dýrkeyptu ,heimskulegu sýndarmennsku ?
Síðast breytt af jonsig á Mið 17. Júl 2024 20:03, breytt samtals 1 sinni.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Já ég er alveg sammmála þér. Það að ætla að ná loftlagsmarkmiðum með því að niðurgreiða Teslur er jafn hlægilegt og það er sorglegt. Það hefur verið stundað t.d. að gefa marga milljóna niðurgreiðslur á lúxusrafmagsbíla (til hóps af fólki sem þarf minnst a þessum styrkjum að halda) meðan það er endalaust verið skerða niður í strætó segir allt.
Líka það að núna er verið að skattleggja alla bíla jafnt, bæði rafmags og bensín í gegnum kílometragjald, óháð þyngd, stærð og mengun sýnir að ríkið veit ekkert hvað það er verið að gera. 950kg Dacia spring, með sínu litlu rafhlöðu er að borga sama gjald og 3000kg Benz jeppi með rafhlöðu sem er margfalt stærri. Og á næsta ári mun það sama gerast með bensín og dísel bíla.

- Of mikill frítími
- Póstar: 1860
- Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
- Reputation: 219
- Staða: Ótengdur
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
jonsig skrifaði:nidur skrifaði:Ég var frekar seinn að kaupa mér, vildi fá 50+ kwh battery.
Og ég hefði ekki gert það nema af því að það er ódýrara að reka rafbíl.
Raunin er sú að við erum flest búin að láta gaslýsa okkur og láta okkur trúa að litli dísel bíllinn mans sem eyðir 4,2ltr á hundraðið sé að hækka hitan á plánetunni uppúr öllu valdi.
Hvort sem það er rétt eða rangt þá er tilgangurinn bara til þess að geta skattað okkur meira og auka söluna á "umhverfisvænu" rusli sem endist ekki neitt. Hugmyndin er að þú kaupir t.d. nýjan síma á amk 2ára fresti, og í raun flest allt rusl í dag er hannað þannig. Framleiðandinn er áskrifandi af peningunum þínum.
Ef rafhlaðan í rafmagnsbílnum manns nær 8ára þá er ég því miður fullviss um að það verði nákvæmlega ekkert endurnýjunnar/ eða upgrade option í boði frá framleiðandanum, Í besta falli verður 5% goodwill afsláttur af nýjum bíl. Þetta er nákvæmlega sama ruglið og með iphone ,nema framleiðandinn áttar sig á því að þú getur ekki keypt nýtt 3mkr batterí á 2ára fresti svo hann hefur það 6-8ár og sér til þess að batterí pakkinn sé algerlega 100% ó þjónustuhæfur. Þetta verður bara stór límklessa sem enginn getur tekið í sundur, og réttlætt með því að það sé aðeins uppá rakaþéttni rafhlöðunnar (bullshit) síðan keyir þú í poll og batteríið er ónýtt.
Þegar rafbílarnir voru að koma eftir aldamót var talað um að geta keypt conversion kit á brunaeldsneytisbílana ,en það er nákvæmlega ekkert orðið af því vegna þess að það er ekki gróði í því. Það hefði hinsvegar verið fín hugmynd til þess að reyna nýta skeljarnar og innvolsið í bílum sem eru í fullkomnu lagi. (umhverfisvænt)
Sorglega er að svona öskurapar eins og í byrjun þessa þráðar níðast á öllum sem leyfa sér að benda á þegar hlutirnir eru ekki alveg eins og maður á að trúa. Þessi staðhæfing mín yrði líklega slegin af borðinu með að upphrópa mig sem rafbílahatara ,eða andstæðingur tækniframfara.
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Þetta er það sem koma skal. Ef batteríið kúkar á sig í rafmagnsbíl þá fer maður ekki beint á vöku og fær annað notað í ágætu standi ,eða lætur laga.
"His local dealership has encouraged him to solve the issue by simply purchasing a brand-new Nissan Leaf. The basic 2020 model costs $42,000 and can travel about 240 km on a full charge. That suggestion doesn't seem very sustainable to Brander. "
Owner of all-electric Nissan Leaf frustrated by ...
"His local dealership has encouraged him to solve the issue by simply purchasing a brand-new Nissan Leaf. The basic 2020 model costs $42,000 and can travel about 240 km on a full charge. That suggestion doesn't seem very sustainable to Brander. "
Owner of all-electric Nissan Leaf frustrated by ...
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
jonsig skrifaði:Þetta er það sem koma skal.
"It makes more sense for them financially, I imagine, to sell new cars than to service the old cars."
Svona er kapítalisminn en án djóks þá er þetta mjög sorgleg þróun og eitthvað sem fólk ætti að vera meðvitað um í hugleiðingum á ökutækjum. Það sama gildir um rafmagnshjól sem flest koma með batteríshólk sérhannað fyrir ramman á hjólinu. En þegar batteríið er tekið í sundur (ef það er yfirhöfuð hægt) koma í ljós sellur sem er hægt að panta á netinu og skipta út. Oftast miklu ódýrara en að kapa nýtt batterí frá framleiðanda, ef þeir eru yfir höfuð enþá að gera það sem varahlut fyrir eldir hjól.
En ég kýs að vera bjartsýnn enda biased með glænýjann rafmagnsbíl. Hér er einn youtubari í finnlandi að grúska í þessu https://www.youtube.com/@DalasEVRepair
I started Dala's EV Repair in 2019 when I found out just how expensive lithium battery replacements were. I was also not pleased with the locked down ecosystems all carmakers have when it comes to battery replacements. This prevents third-party shops from fixing cars up for a low cost. Having only expensive battery replacements will scare off potential EV-adopters, and even make people treat cars with a bad battery as disposable!
Síðast breytt af ekkert á Fim 18. Júl 2024 09:34, breytt samtals 1 sinni.
AMDip boii
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
ekkert skrifaði:jonsig skrifaði:Þetta er það sem koma skal.
"It makes more sense for them financially, I imagine, to sell new cars than to service the old cars."
Svona er kapítalisminn
Afsakið mig en hérna kemur smá rulla, bara mín reynsla á að hafa unnið fyrir erlendt stórfyrirtæki.
Ég vann í mörg á fyrir "upprunalega" Finnskt hátæknifyrirtæki sem er ekki frásögu færandi nema þá að ég var að skipa út búnaði frá þeim fyrir þann sem fyrir var frá öðrum fyrirtækjum sem þetta tiltekna fyrirtæki hafði keypt upp og innlimað í sínar raðir.
Munurinn var að nýju tækin voru gott sem unservice´able. Í raun gat framleiðandinn ekki lagað tækin sín sjálf því megnið af componentum tækisins eða modúlur voru keyptar frá hinum og ýmsum verktökum hér og þaðan úr heimi. Þeir áttu í raun hönnunina og var þeirra einka leyndarmál.
Semsagt ekki voru gefin út lengur viðgerðarplön eða uppgefnar rafmagnsteikningar á íhlutastigi sem styttir viðgerðartíman tífalt.
Þessir verktakar komu og fóru, samt aðallega á hausinn því þeir voru að klóra augun úr hvorum öðrum. Svo þegar birgðirnar af t.d. dótturprentplötum fyrir mögnun eða straumreglun voru búnar þá var tækið end of life.
Venjulega gekk hraðar á birgðirnar af vissum prentplötum frá vissum framleiðanda vegna hönnunargalla. Svo kúnninn sem var búinn að eyða $$$$$ í einhvern búnað var fóðraður með þessum prentplötum frítt þar til ábyrgðin rann út, sem var vanalega 1ár eða minna.
Síðan þurfti hann að kaupa nýtt tæki. Og varð eiginlega að kaupa það frá sama framleiðanda svo það væri compatable við öll hin $$$$ tækin.
(tækin viljandi hönnuð til að vera ósamhæfð frá öðrum framleiðanda, notaðir manufacturer specific samskipaprótókollar)
Sorglega er að gömlu tækin voru oft að detta í tvítugt og virkuðu ennþá fínt, og hægt að þjónusta þau án vandræða. Nýrri tækjum var plangrað oft inná kúnnann af söluteymum og kúnnanum gerð nokkuð hagkvæm "pakkatilboð" til að krækja í þá.
Oft er það síðan eftirlitsiðnaðurinn sem hefur verið lobby´aður til að þvinga iðnaðinn til að endurnýja búnaðinn sinn með einhverju nýju sem á að auka öryggi starfsmanna og umhverfis ,en síðan er ekkert sem kveður á að nýja búnaðinum skal haldið við og hann virki yfir höfuð! Nýji búnaðurinn á helst ekki að endast lengur en 3-5ár og þá á að henda honum bara því enginn kann að laga hann.
Mér ég hef grun um að þetta viðskiptamódel sé löngu komið í rafbílana. Og í nánast allt eftir 2010.
Þetta er ekki endilega illur ásetningur til að græða, en gróðamódelið er búið að leiða mörg áður góð fyrirtæki á villigötur. Það verður ekkert gert í loftslagsmálum meðan svona vitleysa fær að rúlla.
Síðast breytt af jonsig á Fim 18. Júl 2024 09:59, breytt samtals 1 sinni.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Besta umhverfisstefnan er að lengja líftíma bíla, ekki neyða alla til að henda vel nothæfum og viðgerðarhæfum bíl fyrir einhvern "grænan" rafmagnsbíl sem engin reynsla er komin á af viti. Viðgerðarkostnaður á gömlum bílum ætti að fá alveg 50% endurgreiðslu úr ríkissjóði. Hætta þessari niðurgreiðslu á fansí rafbílum fyrir efnameira fólk.
*-*
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
jonsig skrifaði:slapi skrifaði:Ég myndi aldrei vilja eiga diselbíl (yngri en 5ára) þegar hann er kominn úr ábyrgð.
Kvaðinar aem hafa verið settar á á díselbíla með nýjustu stöðlunum eru að ganga frá rómantíkinni þar, vegna mags af mjög viðkvæmum skynjurum sem fylgjast með útblæstri, tvöfaldur EGR. LNT, DPF og SCR kútar, allt uppundir 5 hitaskynjarar í pústi osfrv.
Spíssanir sem eru í dag eru bilanagjarnari en eldri gerðir.
Vissulega eru nýlegar díselvélar mjög nýtnar og skemmtilegar en það væri gaman að sjá útreikning á total mengun með öllu viðhaldi upp í 250-300þ km.
Það var einmitt sagt sagt um bíla eldri en 2013. Ætli DPF og allt klabbið hafi ekki byrjað af svona fullri alvöru rétt fyrir það leiti.
Þegar euro 6 disel vélin kom frá toyota minnkaði svakalega þetta dpf vesen. Sótsían kemur þá bara rétt eftir túrbínunni í mínum bíl.
Ég set bara dpf cleaner í eldsneytistankinn tvisvar á ári sem kostar mig 650kr skiptið. Og það er bara 0% vesen á þessum kerfum hjá mér.
Þessar disel vélar endast líka alveg endalaust ef fólk hefur vit á því að skipta um hráolíusíurnar hjá sér á 10-15þkm fresti. Því olían er full af einhverju umhverfisvænu kertavaxi í dag. Ekki allir að pæla í því fyrr en þeir fá $$$$ reikninginn ,og umboðin elska að selja þér nýtt sett af spíssum eða olíuverki.
Hugsa að bílaframleiðendur séu líka að reyna troða þessum rafmagnsbílum og hybrid dóti uppá fólk til að ná aftur völdum á varahlutasölunni hjá sér ,koma aftermarket fyrir kattarnef og hámarka aftur gróðann.
Ég myndi segja að varahlutasala sé meiri í nýlega díselbíla en bíla með annan drifmáta.
DPF kemur ~2007 með EURO 4 og mér finnst meira vesen á þessu því nýrri sem staðallinn er.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Fréttin punktur is. Allar fréttir þarna búnar til og beint úr fake news fabrikku í rússlandi. Gert af liði sem fór til Ukraníu til að "votta" kosningar þar og fannst þær svo æðislega að það væri frábært ef Ísland tæki upp eins kerfi.
Ég smelli ekki á link á þessum miðli án þess að gera í einnota virtual vél, ég er ekki að grínast.
Ég smelli ekki á link á þessum miðli án þess að gera í einnota virtual vél, ég er ekki að grínast.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Ég skoða aldrei fréttina.is fyrr en ég opnaði óvart fyrstu síðuna í þessum þræði.
https://frettin.is/2024/07/18/carbfix-o ... -skynsemi/
Þarna er ég kominn á miðil sem mér er illa við og lesandi grein eftir mann sem ég hef ekkert álit á.
En þessi grein sem ég vísa í er með áleitnar spurningar. Ég veit ekki hvort að þetta séu góð vísindi og sannleikur sem hann er að segja en það er eitthvað forvitnilegt við þá hugmynd að "meiri CO2 muni jafnvel aðstoða við að rækta upp heiminn" og snúa þessari þróun við sem er í gangi s.s. hlýrri jörð og meira CO2 fyrir plöntur að vinna úr = besta ráðið við hamfarahlýnun er að skapa plöntum sem bestar aðstæður til að vaxa = að skila kolefninu sem plöntur hafa bundið út í lofthjúpinn svo að þær geti bundið það aftur = Það er hluti hringrásarinnar á jörðinni að koma CO2 út í andrúmsloftið svo plönturnar lifi góðu lífi.
Skv. þessu þá hefur brennsla kola framleitt mest CO2 frá 1850, eyðing skóga næst (skil samt ekki fyllilega hvernig það býr til CO2) og svo á eftir því kemur Olía...
https://en.wikipedia.org/wiki/Carbon_di ... atmosphere
Það sem hræðir mann í þessu er að frá 2000 þá hefur Kína eitt og sér nær fjórfaldað kolaframleiðslu í heiminum:
https://ourworldindata.org/fossil-fuels
Hlutfallsleg notkun landa á kolum - https://ourworldindata.org/grapher/coal-energy-share
Hlutfall í allri raforkuframleiðslu - https://ourworldindata.org/grapher/shar ... icity-coal

rapport skrifaði:Það sem hræðir mann í þessu er að frá 2000 þá hefur Kína eitt og sér nær fjórfaldað kolaframleiðslu í heiminum:
https://ourworldindata.org/fossil-fuels
Þetta er áhugavert.
Þeir hafa fjórfaldað orkunotkun, og á sama tíma minnkað hlutfall notkunar á kolum úr 70% í 54%
Svo er allt í lagi að minnast á að fossil fuel per capita er 62.000 kwh í usa á móti 27.000 kwh í kína.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
rapport skrifaði:...
Skv. þessu þá hefur brennsla kola framleitt mest CO2 frá 1850, eyðing skóga næst (skil samt ekki fyllilega hvernig það býr til CO2)...
Tvennt þarna. Það er áhugavert afhverju tímapunkturinn 1850 er valinn en ekki síðustu ár (t.d. 20 eða 40). Brennsla kola árið 1851 og áhrif þess hafa lítið með það að gera hvernig við ættum að skapa orku í dag og eiga við umhverfisáhrif þeirrar orkusköpinar.
Hins vegar þá binda tré CO2 (þau eru byggð úr kolefnum), ef þú eyðir skógi, þá sleppirðu því bundna CO2 út í andrúmsloftið.
rapport skrifaði:Ég veit ekki hvort að þetta séu góð vísindi og sannleikur sem hann er að segja en það er eitthvað forvitnilegt við þá hugmynd að "meiri CO2 muni jafnvel aðstoða við að rækta upp heiminn" og snúa þessari þróun við sem er í gangi s.s. hlýrri jörð og meira CO2 fyrir plöntur að vinna úr = besta ráðið við hamfarahlýnun er að skapa plöntum sem bestar aðstæður til að vaxa = að skila kolefninu sem plöntur hafa bundið út í lofthjúpinn svo að þær geti bundið það aftur = Það er hluti hringrásarinnar á jörðinni að koma CO2 út í andrúmsloftið svo plönturnar lifi góðu lífi.
Það er ekkert sem segir að kjöraðstæður fyrir plöntur sé þær sömu og kjöraðstæður fyrir mannfólk. Í það minnsta held ég að enginn vísindamaður sé að neita því að plöntur þrífst á CO2, spurningin er alltaf hvort hækkandi CO2 valdi því að aðstæður verði mannfólki óhagstæðar (veðurfar, hækkandi sjávarmál osfrv). Greinarhöfundurinn skautað yfir það með einni setningu, að til væru vísindamenn sem hefðu skrifað grein sem segði að hækkandi CO2 sé ekki vandamál. Þá er það leyst.
En ef við segjum að aukið CO2 sé vandamál fyrir okkur, þá gæti lausnin verið að auka magn plantna sem binda mikið CO2. Án þess að rannsaka það neitt, þá held ég að það sé erfitt. Við mannfólkið höfum verið að ryðja burt skógum og öðrum villtum gróðri þúsundir ára til að skapa pláss fyrir okkar eigin ræktun og mannvirki, ég efast um að nægt pláss fyndist til að rækta þann gróður sem þarf til að binda allt CO2 sem til þarf.
Svo til að sýna að ég las greinina. Þetta er skemmtileg staðhæfing, "byggð" á gögnum þar sem þveröfug niðurstaða er dregin.
Það sem meira er: óhugsandi er að manngerður koltvísýringur valdi loftslagsvá eða hamfarahlýnun.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
rapport skrifaði:https://www.facebook.com/share/v/1W4DNwctT8/
Hvernug eru Teslur í hálku ef þær eru svona á malbiki?
"Tesla had winter tyres while the others had performance tyres"
Þetta eru allt high end bílar í þessu video sem myndu mölva meðalbíll sem er á íslenskum vegum þegar það kemur að bremsutesti. Teslur eru góðar í hálku.
Btw ef þetta video væri á hálku, þá væri Teslan búin að læsa öllum dekkjunum með aðeins part af bremsugetunni. Hálka er ekki það sama og slett og þurt malbik.
Ef þetta væri hálka, þá væru bremsurnar ekki bottlenneckið. Það eru alltaf dekkin.
Síðast breytt af Henjo á Fim 21. Nóv 2024 19:47, breytt samtals 1 sinni.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Fyrir utan að frettin punktur is er klósettpappír. Þau sem eru á bak við þetta fóru til Ukraníu til að fylgjast með kosningum um innleiðingu inn í rússland og sögðust aldrei hafa séð ein vel heppnaða kosningu, jafn löglega. Þetta er liðið sem étur upp allar net trölla fréttir.
Það er alveg orðið kýrskýrt að rafmagnsbílar eru frábærir. Það eru komnar margar milljónir af þeim á götuna, þeir eru yfir 50% af seldum bílum í Noregi. Fólk keypti ekki rafbíla þar vegna þess að þau geti keyrt á strætó línunni og það var tekið af fljótlega. Þessir bílar eru bara að reynast fólki ákaflega vel. Þeir eru ekki komnir með bíl ennþá sem getur leyst af hólmi þessa jeppa og breyttu jeppu, ennþá. En það er ekki stór hluti bíla.
Eitt sem ég tók eftir á rúmlega 30 ára sögu bílprófsins míns og yfir 20 eldsneytis bíla eign, að rosa mikið sem var gert við bílinn minn á meðan hann var í ábyrgð var kallað "reglulegt viðhald" eða "Umboðs aðhald og þjónusta", á meðan það litla sem hefur gerst í mínum 3 rafbílum eru kallaðar viðgerðir.
Það má reyna að fá hvaðeina til að líta ílla út, sérstaklega ef þú ert bara að ljúga og búa til tölur.
Bara einfalt dæmi, því sem næst 10 af 10 eigendum Tesla bifreiða ætla að eignast rafbíl sem næsta bíl. Það er enginn flótti frá rafbílum, kannski hjá einhvrjum sem búa til youtube video og gera slíkt fyrir áhorfið.
Ég held að lokum, að hver sá sem tengir í fréttina . is sem einhvern sannleika, sé á mjög vondum stað í lífinu.

En ef eitthv vill anti-Tesla áróður, þá var að koma út núna að Teslu bílar eru með hæðstu dánarslys, þrátt fyrir að vera öruggustu bílar sem hægt er að kaupa. En þá er fólk að fikta í snertiskjánum og allskonar víst. Kæmi mér líka ekki á óvart ef þessi óþægilega öfluga hröðun (fyrir venjulegt fólk í venjulegum akstri) gæti verið að kenna.
Man þegar ég var að taka bílprófið, þá þótti 200 hestöfl rosa mikið. Í dag sér maður krakka í æfingarakstri á 500 hestafla rafmagsbílum. Eins gott að ruglast ekki á pedala.
Man þegar ég var að taka bílprófið, þá þótti 200 hestöfl rosa mikið. Í dag sér maður krakka í æfingarakstri á 500 hestafla rafmagsbílum. Eins gott að ruglast ekki á pedala.
Re: Rafbílar koma illa út í könnun
Henjo skrifaði:En ef eitthv vill anti-Tesla áróður, þá var að koma út núna að Teslu bílar eru með hæðstu dánarslys, þrátt fyrir að vera öruggustu bílar sem hægt er að kaupa. En þá er fólk að fikta í snertiskjánum og allskonar víst. Kæmi mér líka ekki á óvart ef þessi óþægilega öfluga hröðun (fyrir venjulegt fólk í venjulegum akstri) gæti verið að kenna.
Man þegar ég var að taka bílprófið, þá þótti 200 hestöfl rosa mikið. Í dag sér maður krakka í æfingarakstri á 500 hestafla rafmagsbílum. Eins gott að ruglast ekki á pedala.
Ég er mikill gömlubílakarl, en var á Mözdu c-30 eða C-5 bílaleigubíl um daginn, að keyra norður í land. Allt þetta fancy hjálparstöff var algjörlega magnað á leiðinni norður í mestu rigningu sem ég man eftir... en á leiðinni heimí geggjuðu veðri þá var maður orðinn of rólegur og strax farinn að treysta helst of mikið á tæknina... fannst einhvernvegin auðveldara að missa athygli á akstrinum með allt þetta "assist" í gangi.