Síða 1 af 1

Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 11:46
af rapport
https://www.visir.is/g/20242548478d/bru ... -milljonum

Af hverju erum við alltaf svona miklir amatörar?

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 13:42
af Mossi__
Sýnist þvert á móti þetta hafa bara verið ágætlega unnið.

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 14:21
af C2H5OH
Sýnist þjófarnir hafi bara ekkert verið amatörar, nokkuð vel að þessu staðið hjá þeim komust undan með tugi milljóna og enginn meiddist :fly

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 14:35
af worghal
vel skipulagðir, klárlega ekki íslendingar :lol:

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 14:42
af Mossi__
worghal skrifaði:vel skipulagðir, klárlega ekki íslendingar :lol:

Ætli þetta hafi ekki verið þessir "norður afrísku níðingar" sem einhverjir ónefndir voru að tala um hér fyrir nokkru?

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 14:48
af hagur
Ætli OP sé ekki að vísa til þess hvað starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar hafi verið miklir amatörar í þessu tilfelli? Skilja við bíl fullan af peningum ...

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 15:30
af Mossi__
hagur skrifaði:Ætli OP sé ekki að vísa til þess hvað starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar hafi verið miklir amatörar í þessu tilfelli? Skilja við bíl fullan af peningum ...

Tjah.

Er þetta ekki í fyrsta sinn ssem svona glæpur er framinn?

Meina, það eru ógrynni af svona verðmætaflutningum á hverjum degi bara á höfuðborginni (égofc hef ekki nákvæma tölur).

Ég man ekki til þess að svona líkt hafi gerst áður.

Þannig að ef að maður er með 99,99% success rate, er það ekki bara helvíti ágætt?

Meðal í því minnsta.

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 15:51
af Uncredible
20 til 30milljónir eru nú lág upphæð samanborið ef það væri alltaf 3 starfsmaðurinn að vakta bílinn.

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 17:16
af Gunnar
hversu galið er það samt að peningabílar hérna á landi eru bara venjulegir sendiferðabílar greinilega. afhverju er ekki sett einhver grind bakvið gluggana svo ef einhver brýtur glugga kemst hann ekki auðveldlega inn?
ekki að segja að þeir þurfi að vera eins og i usa en common

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 20:24
af jonsig
Mossi__ skrifaði:
worghal skrifaði:vel skipulagðir, klárlega ekki íslendingar :lol:

Ætli þetta hafi ekki verið þessir "norður afrísku níðingar" sem einhverjir ónefndir voru að tala um hér fyrir nokkru?

Ertu að flýta þér að vera bannaður aftur ?

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 21:12
af appel
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242548478d/brutust-inn-i-peningaflutningabil-og-stalu-milljonum

Af hverju erum við alltaf svona miklir amatörar?

Þetta eru klárlega innanbúðamenn, þ.e. fastagestir "happdrættis háskóla íslands", einhverjir local bakkabræður. íslendingar auðvitað, hef aldrei heyrt um útlendinga sem hafa áhuga á að ræna íslenskum krónum... þeir eru meira í að stela verðmætum og flytja úr landi. Ef þú rænir íslenskum krónum þá býstu við að vera hérna á landi til að eyða þeim, gerir það ekki eftir að hafa flúið land, ekki rétt? Gullnáman þarf líklega ekki að bíða lengi eftir að þetta komi allt aftur til þeirra.

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 21:37
af jonfr1900
appel skrifaði:

Enda tekur enginn við íslenskum krónum erlendis í seðlum (bankar sérstaklega). Einhverjir gjaldeyrismarkaðir gera það með hrikalegu álagi.

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 22:54
af appel
jonfr1900 skrifaði:

Ég man vel eftir árunum fyrir 2008, og þá var ISK "internationally traded". Þetta er auðvitað frekar skondið að hugsa til að þessi örmynt rétt rúmlega 300 þús íbúa sé á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum ásamt dollurum, evrum, pundi, sv.frönkum, yen etc. En sumir íslendingar kannski hafa slíkar væntingar enn í dag? Öldin önnur í dag.

Djókið er auðvitað það, að við erum að djóka með "hverslags bjánar stela íslenskum krónum" í dag, og samt erum við að samþykkja laun í íslenskum krónum. Djók on us? :o

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Þri 26. Mar 2024 23:45
af appel
40 sek

https://www.visir.is/g/20242548838d/tos ... ndi-stodum

voru þessir "öryggisverðir" í matarhléi? Ekki stór staður, afgreiðsluborðið svona 3-4 metra frá innganginum þar sem bílnum var lagt. Ef það tók þá 40 sek að EKKI bregðast við þá hljóta þeir að hafa ákveðið að panta sé bara te og bíða eftir löggunni.
Þetta virðist vera þróunin á vesturlöndum, ekki þráast við, leyfa glæpamönnum að fremja glæpinn, kalla svo á greinilega óhæfa lögreglu... tryggingarnar borga þetta allt saman. Í tak við þróun í BNA þar sem framin eru rán í verslunum um hábjartan dag. Glæpamenn hlæjandi allan daginn. Nokkuð spes. Venjulegur borgari má kannski ekki verja sig neitt?

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Mið 27. Mar 2024 07:12
af rapport
En fokk... einn staður safnar 30 milljónum frá spilafíklum á hvað, viku? mánuði?

Þetta mál kemur upp um hversu ógeðfelldur þessi spilakassarekstur er.

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Mið 27. Mar 2024 10:09
af brain
Hef verið í mörg ár í verslun. þar sem sótt er salan af Security/Örryggismiðstöðini.

Aldrei hef ég séð báða koma inn að sækja. Annar er alltaf í bílnum, til að aka burt ef eitthvað kemur uppá.

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Mið 27. Mar 2024 19:58
af hagur
brain skrifaði:Hef verið í mörg ár í verslun. þar sem sótt er salan af Security/Örryggismiðstöðini.

Aldrei hef ég séð báða koma inn að sækja. Annar er alltaf í bílnum, til að aka burt ef eitthvað kemur uppá.

Þannig hélt maður einmitt að þetta væri. Þeir eru tveir ... þurfa væntanlega ekki báðir að fara inn að sækja. Annar hlýtur að eiga að vera í bílnum að passa uppá farminn. En hvað veit ég svosem ...

Re: Íslensk fagmennska

Sent: Mið 27. Mar 2024 20:55
af Henjo
rapport skrifaði:En fokk... einn staður safnar 30 milljónum frá spilafíklum á hvað, viku? mánuði?

Þetta mál kemur upp um hversu ógeðfelldur þessi spilakassarekstur er.

Ein helgi, þetta var á mánudagsmorgun.