Síða 3 af 3

Re: Nýr forseti

Sent: Fim 11. Apr 2024 10:13
af Baldurmar
Ég held því miður að ég "þurfi" að kjósa þann aðila sem er líklegri til að fá fleiri atkvæði en Katrín Jakobsdóttir.
Það gengur ekki upp í raunverulegu lýðræði að forsætisráðherra geti orðið forseti á sama ári. Hún basically helti bensíni á íslenska pólitík síðustu 6 árin og henti síðan eldspýtu inn og labbaði í burtu.

Re: Nýr forseti

Sent: Fim 11. Apr 2024 10:49
af zetor
Baldurmar skrifaði:Ég held því miður að ég "þurfi" að kjósa þann aðila sem er líklegri til að fá fleiri atkvæði en Katrín Jakobsdóttir.
Það gengur ekki upp í raunverulegu lýðræði að forsætisráðherra geti orðið forseti á sama ári. Hún basically helti bensíni á íslenska pólitík síðustu 6 árin og henti síðan eldspýtu inn og labbaði í burtu.


en samt ekki greinilega það mikið skitið upp á bak að engin vilji kjósa hana, þvert á móti hefur hún töluvert fylgi.

Re: Nýr forseti

Sent: Fim 11. Apr 2024 11:05
af Baldurmar
zetor skrifaði:
Baldurmar skrifaði:Ég held því miður að ég "þurfi" að kjósa þann aðila sem er líklegri til að fá fleiri atkvæði en Katrín Jakobsdóttir.
Það gengur ekki upp í raunverulegu lýðræði að forsætisráðherra geti orðið forseti á sama ári. Hún basically helti bensíni á íslenska pólitík síðustu 6 árin og henti síðan eldspýtu inn og labbaði í burtu.


en samt ekki greinilega það mikið skitið upp á bak að engin vilji kjósa hana, þvert á móti hefur hún töluvert fylgi.


Sem að mér finnst algjörlega óskiljanlegt

Re: Nýr forseti

Sent: Fim 11. Apr 2024 11:37
af brain
Katrín hefur verið vinsæl gegnum árin, og mun halda því áfram.
Einsog Ólafur Ragnar, sér hún fram á að enda feril sinn sem Forseti Íslands.

Held það sé voða lítið sem hindrar það.

Re: Nýr forseti

Sent: Fim 11. Apr 2024 21:23
af ribs
Mossi__ skrifaði:
worghal skrifaði:
Mossi__ skrifaði:Ég verð nú að segja það að af öllum þessum framboðspistlumsem hafa komið út, þá er Ástþór alveg að gjörsigra.



Ég hef aldrei séð slíka list. Klárlega mitt at kvæði :D

bjarga íslandi? hvað í ósköpunum á forseti að geta gert til að bjarga íslandi?


Við vitum hvernig heiminum er háttað án Ástþórs, en við vitum ekki hvernig honum er háttað með Ástþóri.

Ég ætlaði að svara eitthvað með að það skiptir máli hver er forseti en þitt er betra.

Re: Nýr forseti

Sent: Fim 11. Apr 2024 23:35
af Tóti
Ekki Jón

Re: Nýr forseti

Sent: Fös 12. Apr 2024 08:49
af ribs
Hvað er að frétta af drottningunni okkar, er hún komin með nægan fjölda undirskrifta? Við verðum að passa að það verði ekki þaggað niður í fulltrúa svo fjölmargra Íslendinga. Annars er það okkur að kenna. Ef hún fær ekki að tjá sig óheft í þessari kosningabaráttu þá er ekki hægt að kalla þetta lýðræði.

Eruði ekki með hana á samfélagsmiðlum? Ef þið eruð lýðræðissinnar, hafið þá samband og spurjið hvernig þið getið veitt framboði hennar liðsinni. Framboð í dag krefjast mikils mannafla.