Síða 1 af 2
Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fim 24. Apr 2025 23:23
af emil40
Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ????
Þetta var mín, Sinclair Spectrum 48k með kassettutæki og litlu sjónvarpi ....
Hver var fyrsta tölvan ykkar. Endilega deilið reynslusögum.

- emil tölvu meme.png (2.44 MiB) Skoðað 4590 sinnum
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 00:00
af oliuntitled
Fyrsta "pc" tölvan mín var macintosh plus, eðal maskína sem hafði mikil áhrif á mig

fyrsta pc vélin sem ég setti saman sjálfur var pentium pro (man ekki hvaða módel nkl) með 3dfx skjákorti (þurfti að tengja það samhliða pci skjákorti í þá daga) og 300mb hörðum disk, þvílíka mulningsvélin

Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 00:14
af Langeygður
Viktor 8087 með 2x 5 1/4 floppy drifum.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 04:58
af Climbatiz
pabbi var að vinna hjá einhverju tölvufyrirtæki sem sinnaði tölvur hjá öðrum fyrirtæknum, man ekki hvað það hét, en oneday þá kom hann með einhverja corporate tölvu sem átti að henda og gaf mér hana plús 3x CRT skjái, bara svona uppá backup, tölvan sem ég fékk var með Win95 á og ekkert hafði verið formatted :Þ samt bara 300MB HDD
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 08:18
af Hausinn
Ef þú meinar tölvu sem ég átti 100% sjálfur, þá væri það skólafartölvan sem ég keypti mér þegar ég byrjaði í framhaldsskóla. Sú tölva var með eitt allra versta lyklaborð sem ég hef nokkurntíman notað á ævi minni.
Fyrsta borðtölvan keypti ég hins vegar á Bland þegar ég var kannski svona 18 ára. Man það ekki alveg. Var með i7 2600k og GTX 460 sem ég uppfærði síðan í GTX 970. Ágæt vél, en hugsandi um það núna þá yfirborgaði ég sennilegast fyrir hana. Hef verið í mörgum samsetningum síðan.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 08:50
af Black
Keypti þessa vél fyrir hluta af fermingapeningunum, eftirminnilega töff kassi með skjákortinu
Processor: AMD Athlon(tm) 64 X2 Dual Core Processor 4200+ (2 CPUs), ~2.2GHz
Memory: 2048MB RAM
Hardisk:320gb Western Digital 32mb Buffer
GPU: 8400GS

Stuttu seinna uppfærði ég í 9600GT og 4gb í vinnsluminni, þá fór windows vista að rúlla smoooth

Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 09:09
af audiophile
Fyrsta tölvan sem ég eignaðist var Sinclair Spectrum 48k. Það kom svo seinna á heimilið 486 33MHz PC tölva. Fyrsta PC tölvan sem ég eignaðist sjálfur var líklega 1998 og minnir að það hafi verið AMD K6 örgjörvi í henni.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 09:09
af KristinnK
Fyrsta tölvan mín var einmitt um fermingaraldurinn með Pentium 4 2.4 GHz örgjörva og Nvidia Geforce 6600 GT skjákorti.
Þetta var góð vél og ég vildi að ég ætti hana enn í dag.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 09:51
af rostungurinn77
Ég hef óljósar um minningar um einhverja tölvu, sem var eiginlega innbyggð í lyklaborð, sem var tengd við sjónvarp. Hugbúnaðurinn var á snældum sem var stungið í lyklaborðið.
Þetta voru aðallega leikir, hvernig maður valdi leiki veit ég ekki. Þetta virkaði allt voðalega handahófskennt þegar maður setti græjuna í gang.
Kannski einhver kannist við þetta.
Síðar kom forláta windows tölva inn á heimilið sem hét líklegast Cordata og keyrði Windows 3.1
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 09:56
af drengurola
Amstrad CPC 464, pimpuð í drasl með 128kb og diskettudrifi
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 10:10
af Nördaklessa
Intel P4 og eitthvað AGP skjákort, man ekki specca

Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 10:28
af hagur
Atari ST1024, enginn harður diskur. Notaði hana aðallega í tónlist, hún var með MIDI tengjum sem ég tengdi við hljómborð. Fékk hana í fermingargjöf.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 10:31
af GuðjónR
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 10:41
af litli_b
Fyrsta tölvan mín var tölva.
Ég hreinlega man ekki meira. Ég er búinn að leita í gegnum gamla harða diska og reyna finna myndir af henni en ég get bara ekki fundið neitt meira! Sem er virkilegur bummer því mig langar virkilega að búa hana til uppánýtt.
Það eina sem ég man var að það var svartur kassi með dvd drifi og flottum, stórum power takka sem varð blár þegar kveikt var á henni. Góðar minningar af að spila CSGO á 480p til að reyna fá amk. 30 fps
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 12:16
af Snaevar
Fyrsta tölvan mín var afar ómerkileg Hewlett Packard fartölva.
2 kjarna 2 þráða Intel Celeron örgjörvi sem hlóð upp leikjanet.is á 2-3 virkum dögum liggur við.
En ég dáði þessa tölvu þrátt fyrir það, ég var rúm 2 ár að safna afmælispening og vinna í garðvinnu o.s.frv. svo ég gæti keypt vélina haha.
Þessi tölva var uppsprettan á áhugamálinu og er ein ástæðan fyrir því að ég vinn við tölvur í dag.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 12:32
af rapport

- Skjámynd 2025-04-25 123112.jpg (207.97 KiB) Skoðað 4220 sinnum
Macintosh Plus 4mb minni og 40mb harður diskur "Cutting Edge" nákvæmlega eins og myndin sýnir.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 12:41
af GuðjónR
rapport skrifaði:Skjámynd 2025-04-25 123112.jpg
Macintosh Plus 4mb minni og 40mb harður diskur "Cutting Edge" nákvæmlega eins og myndin sýnir.
Nohh okkar allra besti Mac maður!

Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 13:44
af Oddy
Intel Pentium 186( gæti hafa verið 286) að mig minnir, mátti velja hvort ég vildi harðann disk eða litaskjá. Valdi harðann disk.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 14:46
af codec
Commodore 64, fyrst með leikjum á kubbum svo segulbandi og að lokum keypti ég eitt stærsta 5/4 floppy diska drif sem framleitt hefur verið, Commodore 1541, í minningunni finnst mér að það hafi verið 5kg hlunkur.
Arftakinn af c64, Commodore Amiga var svo draumur í dós.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 14:55
af Diddmaster
Mín fyrsta tölva var 386 með win 3,1 man ekki specs en hún kom með öllu semsagt skjá lyklaborði og mús, Keypti hana af mömmu vinar á 15þ hún var að uppfæra í 486. Man ekkert söguna um mín tölvu kaup
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 15:34
af hfwf
Telst Nintendo(NES) með?
Annars Tulip 486dx2 man ekki megariðin , 40mb harður diskur sirka ef ég man rétt, annars man ég ekki meir, mögulega er þessi tölva einvhverstaðar á timarit.is frá nýherja eða hvað búðin hét á þessum tíma.
-Segðu mér hvað þú ert gömul/gamall án þess að segja hvað þú ert gömul/gamall þráður-

Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 17:10
af emil40
rostungurinn77 skrifaði:Ég hef óljósar um minningar um einhverja tölvu, sem var eiginlega innbyggð í lyklaborð, sem var tengd við sjónvarp. Hugbúnaðurinn var á snældum sem var stungið í lyklaborðið.
Þetta voru aðallega leikir, hvernig maður valdi leiki veit ég ekki. Þetta virkaði allt voðalega handahófskennt þegar maður setti græjuna í gang.
Kannski einhver kannist við þetta.
Síðar kom forláta windows tölva inn á heimilið sem hét líklegast Cordata og keyrði Windows 3.1
sennilega sinclair spectrum
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 17:23
af svanur08
Intel 286 minnir mig, með B drifi.
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 18:10
af emil40
GuðjónR skrifaði:rapport skrifaði:Skjámynd 2025-04-25 123112.jpg
Macintosh Plus 4mb minni og 40mb harður diskur "Cutting Edge" nákvæmlega eins og myndin sýnir.
Nohh okkar allra besti Mac maður!

Ég var líka með apple IIc og síðan gerði ég grín að bill gates ....
Re: Hvernig var fyrsta tölvan ykkar ?
Sent: Fös 25. Apr 2025 18:52
af kjartanbj
Mín fyrsta tölva var IBM PS/2 50 með 286 10mhz örgjörva og 1mb í Ram sem var síðan stækkað í 2Mb, 60mb harður diskur. þetta hefur verið líklega kringum 1990. þá var maður bara nota DOS að mestu ásamt Windows 3.0/3.1