Nú er þetta orðiði eitthvað skrítið, síðan þeirra er búinn að vera í uppfærslu í allavega mánuð og engin sem hefur svarað í símann eða email í dágóðan tíma líka.
Ef einhver hefur fundið start.is má endilega láta mig vita


Geronto skrifaði:Sælir vaktarar,
Nú er þetta orðiði eitthvað skrítið, síðan þeirra er búinn að vera í uppfærslu í allavega mánuð og engin sem hefur svarað í símann eða email í dágóðan tíma líka.
Ef einhver hefur fundið start.is má endilega láta mig vita
jonsig skrifaði:Maður er ekki alveg viss um hvort vaktin góða hafi endilega verið til alls góð. Minnir í den að það hafi verið svakalegir séníar að vinna í þessum tölvubúðum, en núna oftar en ekki einhverjir freðnir unglingar sem vita nánast ekkert.
Maður fær það sem maður borgar fyrir.
 Þetta var ókeypis auglýsing og gerði allar búðirnar verulega sýnilegar og gaf litlu búðunum tækifæri á að koma höggi á þær stærri. Við Guðjón höfum það staðfest frá sumum stofnendunum að þetta hafi komið sér vel þrátt fyrir að viðkomandi hafi ekki alltaf verið grænn, heldur var það einmitt sýnileikinn sem skilaði alltaf sínu. Hvað sem öllu líður er glatað að missa búð úr lestinni, ég öfunda ekki verslunareigendur í dag þar sem þeir þurfa að keppa við erlenda netverslun á sama tíma og lagerinn þeirra úreldist mjög hratt og samkeppnin gríðarlega hörð. Það er ekkert grín að eiga alltaf allt til á lager og á samkeppnishæfu verði nema með því að panta í stórkostlegu magni. M.ö.o. er nær vonlaust að ætla að halda úti verslun þegar aðilar eins og Tölvulistinn og Tölvutek geta spilað út "ódýrari" búðum þeim til höfuðs, eina sérstaðan sem lítil verslun getur boðið upp á er þjónusta, og það getur reynst erfitt þegar álagningin er svo lítil að það borgar sig varla að standa í þessu.
 Þetta var ókeypis auglýsing og gerði allar búðirnar verulega sýnilegar og gaf litlu búðunum tækifæri á að koma höggi á þær stærri. Við Guðjón höfum það staðfest frá sumum stofnendunum að þetta hafi komið sér vel þrátt fyrir að viðkomandi hafi ekki alltaf verið grænn, heldur var það einmitt sýnileikinn sem skilaði alltaf sínu. Hvað sem öllu líður er glatað að missa búð úr lestinni, ég öfunda ekki verslunareigendur í dag þar sem þeir þurfa að keppa við erlenda netverslun á sama tíma og lagerinn þeirra úreldist mjög hratt og samkeppnin gríðarlega hörð. Það er ekkert grín að eiga alltaf allt til á lager og á samkeppnishæfu verði nema með því að panta í stórkostlegu magni. M.ö.o. er nær vonlaust að ætla að halda úti verslun þegar aðilar eins og Tölvulistinn og Tölvutek geta spilað út "ódýrari" búðum þeim til höfuðs, eina sérstaðan sem lítil verslun getur boðið upp á er þjónusta, og það getur reynst erfitt þegar álagningin er svo lítil að það borgar sig varla að standa í þessu.Kristján skrifaði:hvað af þessum litlu búðum er eftir í séreign, semsagt ekki framlenging af stærri búðum.
Tölvulistinn á @tt er það ekki
Tölvutek á ódýrið
hvernig er þetta með restina eru þær allar í séreign?
Moldvarpan skrifaði:Kristján skrifaði:hvað af þessum litlu búðum er eftir í séreign, semsagt ekki framlenging af stærri búðum.
Tölvulistinn á @tt er það ekki
Tölvutek á ódýrið
hvernig er þetta með restina eru þær allar í séreign?
Kísildalur og Tölvutækni?