Pósturaf KristinnK » Þri 16. Jan 2024 14:28
Þessar bækur eru mjög eftirsóttar, og ég sé þær mjög sjaldan til sölu. Í um fimm ár hef ég farið reglulega í Góða Hirðirinn, Nytjamarkað ABC, Basarinn og fleiri verslanir með notaðar bækur, og ég hef bókstaflega aldrei séð innbundnu útgáfuna af Hringadróttinssögu (ég sá einu sinni kiljuútgáfuna með myndir á kápunni úr kvikmyndunum). Ég hef einu sinni séð allar þrjár auglýstar á Facebook, og tvisvar séð stakt bindi til sölu á vefverslun Góða Hirðisins þegar hún var og hét. Ég veit ekki hvað bækurnar sem voru auglýstar á Facebook fóru á, en stöku bindin á vefverslun Góða Hirðisins kostuðu 1500 kr. hvor.
Ef ég myndi áætla eitthvert sanngjarnt verð fyrir öll þrjú bindin saman á almennum markaði, þá myndi ég ekki segja að það gæti verið undir 10 þúsund krónum. Kannski á bilinu 15-20 þúsund. Kannski hærra. Verðið ræðst einfaldlega af því hvað þeir sem eiga þessar bækur eru tilbúnir til að láta bækurnar á, og þar sem enginn virðist vilja selja sínar þá er erfitt að áætla það. Persónulega hef ég engan áhuga á að selja mínar.
Síðast breytt af
KristinnK á Þri 16. Jan 2024 14:31, breytt samtals 2 sinnum.
AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580