Sæl öll og gleðileg jól.
Í tilefni þess að ég fékk loksins heilsukoll í jólagjöf þá hef ég ekkert að gera með hermann miller aeron B stólinn minn.
Mig langar að vera alveg heiðarlegur, ég fékk þennan stól notaðan á sínum tíma (ca. 4 ár síðan?) og hann er ekki í frábæru standi.
Það eru málningarklessur á honum (reyndi að þrífa þær, gaf honum bara svona fallega gráhvíta bletti í staðinn - sjá myndir), hann er rispaður, og það vantar bakpúðann á hann.
Hins vegar er hann mjög þægilegur og stöðugur ef maður sest í hann með lokuð augun og hundsar útlitið.
Sökum ástands er ég ekki að búast við að fá neinum rosalegum tölum, sé að efnisveitan og vaktarar hafa verið að setja á svona stóla 130-150 þús, svona út frá ástandi er 40 þúsund einhver verðhugmynd? Sjálfsagt að koma og skoða hann, er í 101.
MYNDIR hér:










Kveðja,
Tordek