AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17213
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2371
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf GuðjónR » Fim 05. Feb 2026 14:52

Verðþróun hjá Nova, persónuleg reynsla og spurningar um sanngirni

Mig langar að deila hér reynslu minni af Nova og sérstaklega þróun á verðlagningu AlltSaman pakkans síðustu ár. Markmiðið er ekki að ráðast á fyrirtækið eða starfsfólk, heldur að fara yfir staðreyndir og velta fyrir sér hvort þessi þróun sé sanngjörn gagnvart langtímaviðskiptavinum.

Af hverju skipti ég yfir til Nova í ágúst 2020

Í ágúst 2020 flutti ég mig frá Hringdu yfir til Nova og fór beint í stærsta AlltSaman pakkann. Á þeim tíma voru aðalástæðurnar tvær:

  • Hringdu bauð ekki upp á úrlausn fyrir Apple Watch með eSIM.
  • Ég varð var við bandvíddarstýringu á ljósleiðaranum hjá Hringdu þar sem erlent torrent maxaði yfirleitt í kringum 10 MB á sekúndu nema íslensk IP tækju þátt, þá stökk hraðinn upp í um 80 MB á sekúndu.
Þegar ég kvartaði yfir þessu var ekki reynt að draga það í efa. Ég kaus því að skipta og fá þá þjónustu sem ég var að borga fyrir.

Nova bauð þá sambærilegt verð og Hringdu, en meira fyrir peninginn. Ótakmarkað internet án stýringar, úrlausnir, ýmis 2f1 tilboð og tíu prósent afsláttur af tækjum. Síma og gagnasamband reyndist mér einnig stöðugra á þeim tíma. Þetta var einfaldlega augljós ákvörðun.

Verðþróun AlltSaman pakkans

Í upphafi, í ágúst 2020, var mánaðargjaldið hjá Nova 19.900 krónur.

Hér er verðþróunin síðan þá:

  • Ágúst 2020: 19.900 kr
  • Janúar 2021: 20.290 kr
  • Júní 2023: 20.490 kr
  • Janúar 2024: 20.990 kr
  • Júní 2024: 23.490 kr
  • Febrúar 2025: 24.290 kr
  • Október 2025: 24.990 kr
  • Febrúar 2026 boðuð 8% hækkun: verð fer í 26.990 kr

Fyrstu árin voru hækkanir hóflegar. Á covid tímabilinu, var óvissan mikil og vextir í lágmarki, þá hélt Nova hækkunum í algjöru lágmarki og á skilið hrós fyrir. Þar sýndi fyrirtækið samfélagslega ábyrgð.

Eftir 2024 breytist mynstrið hins vegar verulega. Hækkarnir tvisvar á ári og sumar hverjar all hressilegar.

Samskipti við Nova

Í haust sendi ég póst og bað um að farið yrði yfir pakkann minn. Þar sem ég er ekki að nýta allt sem ég greiði fyrir:

  • Ég er með þrjár úrlausnir en pakkinn inniheldur fimm.
  • Ég nota hvorki router né kastara frá Nova þó ég greiði fyrir það í pakkanum.
Svarið sem ég fékk var á þessa leið, með minni áherslu á að aðlaga þjónustuna að notkun minni og meiri áherslu á að pakkinn væri í raun hagstæður þar sem annars væri þetta dýrara.

Dæmið sem Nova setti upp var eftirfarandi:

  • Ljósleiðari án router og kastara: 12.990 kr
  • Farsími ótakmarkað gagnamagn, fimm númer: 16.450 kr
  • Úrlausn, þrjú tæki: 1.770 kr
Samtals 31.210 krónur.

Þetta sýnir vissulega að AlltSaman pakkinn er ódýrari en að kaupa allt stakt. Það svarar hins vegar ekki spurningunni um hvort hækkunarhraðinn sé orðinn úr takti við raunverulegt virði og notkun.

Í ljósi nýlegra hækkana

Samkvæmt frétt á mbl.is hafa forsvarsmenn Nova nú boðað nýjar hækkanir um næstu mánaðamót. AlltSaman pakkinn hækkar um allt að 8 prósent, farsímaáskriftir og 5G þjónusta hækka einnig og ekki er lengra síðan en í október að síðasta hækkun gekk í gegn.

Þegar þetta er sett í samhengi við þróun síðustu ára er eðlilegt að langtímaviðskiptavinir spyrji sig hvort hér sé komið að ákveðnum vendipunkti.

Niðurstaða mín

Ég hef verið almennt sáttur við þjónustu Nova í gegnum árin og tel fyrirtækið hafa staðið sig vel á mörgum sviðum. Þetta snýst ekki um eitt einstakt atriði heldur heildarmyndina.

Spurningin sem ég sit eftir með er einföld: á ég að sætta mig við þessa þróun áfram, eða taka af skarið og skoða aðra kosti sem endurspegla betur mína raunverulegu notkun og væntingar?

Ég væri forvitinn að heyra hvernig aðrir hér á spjallinu upplifa þessa verðþróun og hvort fleiri séu að velta svipuðum spurningum fyrir sér.

IMG_0095.jpeg
IMG_0095.jpeg (246.47 KiB) Skoðað 1252 sinnum

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... rdhaekkun/



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1286
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 391
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf Njall_L » Fim 05. Feb 2026 14:58

Án þess að ætla að taka upp hanskann fyrir Nova sérstaklega eða aðra sem selja netþjónustu og hafa verið að hækka verð þá er líka hægt að horfa á þetta þannig að þú sért að borga um 400kr minna fyrir netið eftir hækkun í febrúar heldur en þú gerðir í upphafi, m.t.t. verðlagsþróunar.
NOVA-Verð.png
NOVA-Verð.png (12.35 KiB) Skoðað 1226 sinnum

Til að gæta sanngirnis þá er rétt að taka fram að ég er fyrrum starfsmaður Nova, en skoðanir hér eru mínar eigin


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6856
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 962
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf Viktor » Fim 05. Feb 2026 15:16

Njall_L skrifaði:Án þess að ætla að taka upp hanskann fyrir Nova sérstaklega eða aðra sem selja netþjónustu og hafa verið að hækka verð þá er líka hægt að horfa á þetta þannig að þú sért að borga um 400kr minna fyrir netið eftir hækkun í febrúar heldur en þú gerðir í upphafi, m.t.t. verðlagsþróunar.
NOVA-Verð.png
Til að gæta sanngirnis þá er rétt að taka fram að ég er fyrrum starfsmaður Nova, en skoðanir hér eru mínar eigin


x2


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17213
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2371
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf GuðjónR » Fim 05. Feb 2026 15:17

@Njáll_L ... valid punktur upp að vissu marki. Þeir tóku þá ákvörðun að vera undir verðlagsþróun í nokkur ár, það þýðir ekki að þeir eigi að rjúka upp einn daginn og afturreikna sig hálfan áratug aftur í tímann og skella á risahækkun.

Sem dæmi, þá var ég að selja banner hérna í febrúar 2011 á 20.000 kr. plús vsk, bannerinn var 100x150 punktar.
Í dag er bannerinn stærri eða 150x150 punktar og kostar 26.000 plús vsk. Hefði ég elt þessa verðlagsvél þá væri ég að rukka 36.352.- plús vsk sem ég geri ekki þar sem mér finnst það ósanngjart.

Punkturinn minn er, get ég fengið sambærilega fjarskiptaþjónustu fyrir betra verð?
Viðhengi
Screenshot 2026-02-05 at 15.09.02.png
Screenshot 2026-02-05 at 15.09.02.png (146.3 KiB) Skoðað 1191 sinnum




gunni91
Besserwisser
Póstar: 3477
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 252
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf gunni91 » Fim 05. Feb 2026 15:30

GuðjónR skrifaði:@Njáll_L ... valid punktur upp að vissu marki. Þeir tóku þá ákvörðun að vera undir verðlagsþróun í nokkur ár, það þýðir ekki að þeir eigi að rjúka upp einn daginn og afturreikna sig hálfan áratug aftur í tímann og skella á risahækkun.

Sem dæmi, þá var ég að selja banner hérna í febrúar 2011 á 20.000 kr. plús vsk, bannerinn var 100x150 punktar.
Í dag er bannerinn stærri eða 150x150 punktar og kostar 26.000 plús vsk. Hefði ég elt þessa verðlagsvél þá væri ég að rukka 36.352.- plús vsk sem ég geri ekki þar sem mér finnst það ósanngjart.

Punkturinn minn er, get ég fengið sambærilega fjarskiptaþjónustu fyrir betra verð?


Nú er ég ekki að verja Nova, persónuleg skoðun. Kannski er þetta of djarfar hækkanir.. en eins og ég sé þetta:

Þetta er valid hjá þér Guðjón, en verðlagsreiknivélin er auðvitað ekkert annað en þróun vísitölu neysluverðs, sem við vitum að er aðeins ein breyta af mörgum í þessu samhengi.

Hvernig fyrirtæki er rekið – hvort sem um er að ræða markaðskostnað eða almennt aðhald í rekstri – á ekki að bitna á neytendum líkt og okkur. Það væri til dæmis galið að taka stefnubreytingu og hækka alla verðskrá eingöngu vegna þess að flutningur á bækistöðvum Nova yfir í Mjódd reyndist of dýr.

Þá er einnig launavísitalan, sem við getum ekki horft fram hjá. Hún hefur hækkað um 49,5% á sama tímabili og er breyta sem einfaldlega er ekki hægt að líta fram hjá. Ef Nova ætlar að viðhalda ákveðnu „X“ þjónustustigi og fylgja launaþróun í okkar þjóðfélagi, þá munu neytendur á endanum alltaf borga brúsann enda er Nova hagnaðardrifið félag.

Varðandi samkeppni væri þó athyglisvert að fá greiningu á því hver er að bjóða bestu kjörin í dag.

launavísitala.jpg
launavísitala.jpg (133.62 KiB) Skoðað 1156 sinnum
Síðast breytt af gunni91 á Fim 05. Feb 2026 15:49, breytt samtals 6 sinnum.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8773
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1407
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf rapport » Fim 05. Feb 2026 18:00

Af hverju ætti fjarskiptaþjónusta að fylgja VNV?

Arðsemi fyrirtækisins virðist hafa verið að aukast, skuldir og kostnaður nokkurnvegin staðið í stað og samt hækkað þeir verð?

https://app.calculatorstudio.co/@novaft ... oaOuNkLkRQ

Það er s.s. ekkert nema græðgi sem keyrir þessar snörpu hækkanir.

Nú er stórt tækifæri fyrir samkeppnisaðila, held að fólk sé að fá nóg af Nova.

Ætlaði að vera löngu farinn en það er bara fólk á heimilinu sem vælir því að það þarf nýtt simkort fyrir rafrænu skilríkin.



Skjámynd

olihar
/dev/null
Póstar: 1480
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 335
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf olihar » Fim 05. Feb 2026 18:07

rapport skrifaði:Af hverju ætti fjarskiptaþjónusta að fylgja VNV?

Arðsemi fyrirtækisins virðist hafa verið að aukast, skuldir og kostnaður nokkurnvegin staðið í stað og samt hækkað þeir verð?

https://app.calculatorstudio.co/@novaft ... oaOuNkLkRQ

Það er s.s. ekkert nema græðgi sem keyrir þessar snörpu hækkanir.

Nú er stórt tækifæri fyrir samkeppnisaðila, held að fólk sé að fá nóg af Nova.

Ætlaði að vera löngu farinn en það er bara fólk á heimilinu sem vælir því að það þarf nýtt simkort fyrir rafrænu skilríkin.


Það ætti náttúrlega enginn að nota sim rafræn skilríki lengur, er þetta ekki bara kjörið tækifæri til þess að laga það og færa alla yfir í auðkennis appið.
Síðast breytt af olihar á Fim 05. Feb 2026 18:07, breytt samtals 1 sinni.




GunniH
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Mið 07. Apr 2010 16:40
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf GunniH » Fim 05. Feb 2026 21:12

GuðjónR skrifaði:[...]
Í ágúst 2020 flutti ég mig frá Hringdu yfir til Nova og fór beint í stærsta AlltSaman pakkann. Á þeim tíma voru aðalástæðurnar tvær:

  • Hringdu bauð ekki upp á úrlausn fyrir Apple Watch með eSIM.
  • Ég varð var við bandvíddarstýringu á ljósleiðaranum hjá Hringdu þar sem erlent torrent maxaði yfirleitt í kringum 10 MB á sekúndu nema íslensk IP tækju þátt, þá stökk hraðinn upp í um 80 MB á sekúndu.
Þegar ég kvartaði yfir þessu var ekki reynt að draga það í efa. Ég kaus því að skipta og fá þá þjónustu sem ég var að borga fyrir.

[...]


Hæ Guðjón,

Ég vildi bara nýta tækifærið og leiðrétta þetta með bandvíddarstýringuna. Mig langaði helst að segja að við hjá Hringdu höfum aldrei shape'að umferð en við gerðum það vissulega á sínum tíma þegar við buðum gagnamagnspakka. Ef ég leita í mailinu mínu eru síðustu ummerki um einhverskonar shaping árið 2015. Það er reyndar fyndið að segja frá því að á þeim tíma áttum við ekki efni á frábærum innviðum þannig við vorum að keyra netmiðjuna á Vyatta/VyOS og það tók of mikið processing power að vera "cappa" viðskiptavini þannig við einfaldlega réðum ekki við það - enda var mikið af fólki á þeim tíma að borga fyrir 20 GB pakka að nota mörg terabyte.

Við höfum aldrei stýrt umferð á ótakmörkuðum pökkum hjá okkur frá því að þeir urðu partur af okkar vöruframboði. Hvað þá heldur niður á sérstakar þjónustur eins og torrent en við getum auðvitað ekki tryggt hraða við erlenda aðila frekar en aðrir ISP'ar á Íslandi.

Ef þú værir til í að deila með mér samskiptum þínum við okkar starfsmann þar sem þetta var ekki dregið í efa væri það mikils metið - þú nærð á mig á gunnar hjá hringdu.is

Eins og Njáll kemur inn á hafa verð á fjarskiptamarkaði almennt verið undir verðlagsþróun og höfum við hjá Hringdu reynt að lágmarka verðhækkanir. Almennt höfum við reynt að hækka ekki verð nema við séum sjálfir að lenda í verðhækkunum frá okkar birgjum þrátt fyrir aukinn kostnað á yfirbyggingu. Þess má t.d. geta að verðið hjá okkur á svokallaðri Farsími 100 GB leið var kynnt árið 2018 á 1.990 kr. og er enn þann dag í dag á 1.990 kr. undir heitinu Farsími Ótakmarkað.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17213
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2371
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf GuðjónR » Fös 06. Feb 2026 11:07

GunniH skrifaði:Hæ Guðjón,


Sæll Gunnar.

Ég vil bara undirstrika eitt skýrt atriði. Ég er ekki að halda því fram að Hringdu hafi markvisst brotið skilmála eða verið að gera eitthvað ólöglegt. Ég er að lýsa minni upplifun á þeim tíma og þeirri ákvörðun sem ég tók út frá henni.

Ég prófaði þetta mjög kerfisbundið. Torrent á mörgum tölvum, með mismunandi torrent clientum og alltaf sama niðurstaðan. Erlent torrent fór aldrei yfir 10 MB á sekúndu. Á sama tíma voru allar hraðaprófanir í toppi, Steam sótti á nærri 100 MB á sekúndu og FTP virkaði fullkomlega. Þetta var endurtekið mynstur.

Ég ræddi þetta við starfsmann hjá Hringdu á sínum tíma. Ég man ekki hvort það var í síma eða á staðnum enda myndi ég ekki benda fingri þó ég myndi hver það var, en það sem stendur upp úr er að þessu var hvorki játað né neitað. Fyrir mig sem viðskiptavin var þetta þá einfaldlega staðan.

Daginn sem ég skipti yfir til Nova stökk hraðinn á erlendum torrentum strax upp í um 90 MB á sekúndu.
Það var hraði sem ég hafði aldrei séð hjá Hringdu, sama hvaða leiðir ég prófaði.

Hvort ástæðan hafi verið kölluð bandvíddarstýring, takmörkun á erlendum tengingum, peering, innviðir eða eitthvað annað skiptir í raun engu máli fyrir kjarna málsins. Fyrir mig leit þetta út eins og takmörkun og hafði raunveruleg áhrif á notkun mína.
Út frá því tók ég ákvörðun sem viðskiptavinur.

Ég hef í raun ekkert nema gott um ykkur að segja. Ég var einn af fyrstu viðskiptavinum Hringdu á sínum tíma og var í töluverðum samskiptum við ykkur, meðal annars á meðan þið hýstuð Vaktina þar til ég fór frá ykkur. Þessi umræða snýst því ekki um að gera lítið úr Hringdu, heldur er hún einfaldlega sett fram sem samhengi við af hverju ég tók þá ákvörðun að skipta. Hún er aukaatriði miðað við meginumræðuna sem snýr að verðþróun hjá Nova.



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 756
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 52
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf gRIMwORLD » Fös 06. Feb 2026 21:07

Sýn var líka að hækka verðin hjá sér um mánaðarmótin á öllu og hafa gert það markvisst undanfarinn áratug. Sama má segja um eiginlega allt.

Ég þekki svolítið til í þessum einmenningsrekstri þar sem fólk er í auglýsingasölu og það er sorglegt að sjá hvar jón og gunna í rekstri út í bæ eru mörg hver að halda aftur hækkunum því sambandið við kaupendur er oft ekki sterkara en svo að smá hækkun gæti valdið hruni í sölu. Siðferði Jóns og Gunnu er líka meira en svo að þau hækki verð bara hagnaðins vegna. Nóg til að standa undir rekstri og rétt meira.

En stóru fyrirtækin eru ekki í sömu stöðu því þau hafa "locked-in" viðskiptavini og einu kröfurnar sem virkilega hlustað er á eru frá hluthöfum sem vilja sína arðgreiðslur.

Persónulega þoli ég ekki þess1 "pakkatilboð" og þvingaða neyslustýringu sem kemur með "2fyrir1" tilboðunum hér og þar í business sem kemur vörunni sem ég er að kaupa nkl ekkert við. Þetta er samt sorglegi veruleikinn.

Má kannski líka nefna að línuverð ljósleiðara kostaði einu sinni ca þúsund krónur en kostar í dag yfir 5000 á mánuði. Það er samstillt átak Mílu og Gagnaveitunnar. Þessi hækkun ýtir beint undir hærra verð hjá internetþjónustunum sem rukka þetta saman.


9950X | 96GB | 2TB Gen5 | 3090 | ProArt X870 Creator

Skjámynd

olihar
/dev/null
Póstar: 1480
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 335
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf olihar » Fös 06. Feb 2026 21:14

Er ekki svolítið alvarlegt að það sé verið að ráðast svona svakalega á fyrirtæki hérna.

Ég hélt shaping væri ekki löglegt og kannast ekki við slíkt sem viðskiptavinur Hringdu. Ég nota heldur ekki Torrent svo ég get ekki sett athugasemd við slíkt ólöglegt niðurhal og shaping tengt því.

Eina sem ég get staðfest er að alveg sama hversu hratt internet maður er með og hvaða þjónustu aðila maður velur er utanlandssamband ömurlegt.




steinarorri
Gúrú
Póstar: 566
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf steinarorri » Fös 06. Feb 2026 22:50

Ég tek undir gagnrýni á Nova hvað það varðar að fá ekki afslátt fyrir að vera með eigin netbeini og access punkta. Það þykir mér alveg fáránlegt, það er ódýrara fyrir þá að maður sé með eigin búnað.




sxf
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 313
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 21:24
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf sxf » Lau 07. Feb 2026 00:38

olihar skrifaði:Er ekki svolítið alvarlegt að það sé verið að ráðast svona svakalega á fyrirtæki hérna.

Hér er einmitt verið að terrorize-a fyrirtæki alveg svakalega. Rosaleg meðvirkni með fyrirtækjum sem eru með há verð eða lélega þjónustu. Skoðaðu ársreikninga hjá nova og hringdu og spurðu þig svo að því hvort þau þola ekki gagnrýni.
olihar skrifaði:Ég hélt shaping væri ekki löglegt og kannast ekki við slíkt sem viðskiptavinur Hringdu. Ég nota heldur ekki Torrent svo ég get ekki sett athugasemd við slíkt ólöglegt niðurhal og shaping tengt því.

Þú hefur ekki lesið allan póstinn frá Guðjóni
GuðjónR skrifaði:Hvort ástæðan hafi verið kölluð bandvíddarstýring, takmörkun á erlendum tengingum, peering, innviðir eða eitthvað annað skiptir í raun engu máli fyrir kjarna málsins. Fyrir mig leit þetta út eins og takmörkun og hafði raunveruleg áhrif á notkun mína.



Skjámynd

olihar
/dev/null
Póstar: 1480
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 335
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf olihar » Lau 07. Feb 2026 00:45

Auðvitað má gagnrýna fyrirtæki, en það þarf að leggja eitthvað fram til sönnunar.

Hérna kemur fram bæði að shaping hafi átt sér stað á meðan starfsmenn segja svo hafi aldrei verið.

Ýmislegt sem ég vildi að ég gæti fengið fra Hringdu, e-sim í úr og shared sim kort fyrir tæki sem ég þarf að nettengja saman. I stað þess að þurfa að borga mánaðargjald fyrir hvert og eitt einasta sim kort.
Síðast breytt af olihar á Lau 07. Feb 2026 00:46, breytt samtals 1 sinni.