Office tölva


Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Office tölva

Pósturaf END » Sun 03. Apr 2005 18:17

Er að hugsa um nýja tölvu fyrir mömmu, PIII 500 Gateway tölvan er ekki að gera sig lengur. Tölvan er aðallega notuð í Word og önnur Office forrit og vefsíðuflakk.

Ég var að spá í eftirfarandi búnað:

Örgjörvi: Celeron D 335 með viftu 9.919kr. (Tölvuvirkni)
Móðurborð: MSI 661 FM2 LSR (með innbyggðu skjákorti) 6.950kr. (Att.is)
Kassi: Antler PC177 4.745kr. (Tölvuvirkni)
Vinnsluminni: PC3200 PQI 3.990kr. (Start.is)
Geisladrif: MSI CD-ROM 52x Retail 999kr. (BT)
Floppydrif: Sony OEM Svart 1.140kr. (Tölvuvirkni)
Harður diskur: Seagate Barracuda 200GB S-ATA 9.990kr. (Hugver)
Þjónusta: Samsetning & Stilling á BIOS. 2.850kr. (Tölvuvirkni)

Heildarpakkinn kostar: 40.583kr.

Edit: Búinn að breyta þessu aðeins frá upprunalega póstinum. Ég nota þráðinn í raun bara til að halda saman um þetta. Held ég býði með að versla þetta þangað til eftir próf, liggur ekki það mikið á.
Síðast breytt af END á Þri 12. Apr 2005 19:16, breytt samtals 8 sinnum.




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 03. Apr 2005 18:31

Bara spyr, pabba er með office tölvu með endalaust af Word skjölum og stuffi á 40gb disk, ef þú villt spara smá má allveg taka minni disk held ég.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3852
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 165
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Sun 03. Apr 2005 18:50

Líka hægt að finna mun ódýrara skjákort með TVout. Jafnvel bara notað Geforce mx4**

Edit: svo efast ég um að tölvuvirkni setji saman vélbúnað keyptan hjá öðrum aðilum.



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Pósturaf ponzer » Sun 03. Apr 2005 19:12



Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.


Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Sun 03. Apr 2005 19:13

hahallur skrifaði:Bara spyr, pabba er með office tölvu með endalaust af Word skjölum og stuffi á 40gb disk, ef þú villt spara smá má allveg taka minni disk held ég.


Þá gæti ég allavega notað það sem væri afgangs :wink: og mér finnst það ekki borga sig fyrir þessa örfáu þúsundkalla að taka svona miklu minni disk, það er líka 40 gb diskur í gömlu vélinni sem hægt væri að nota (reyndar IBM deskstar, en hann er í lagi ennþá).



Daz skrifaði:Edit: svo efast ég um að tölvuvirkni setji saman vélbúnað keyptan hjá öðrum aðilum.

Af hverju ekki? Auðvitað setja þeir saman tölvur þó vélbúnaðurinn sé keyptur annars staðar, þeir taka kannski meira fyrir það en ég held samt ekki, þetta er uppgefið verð fyrir samsetningu og stillingu BIOS.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3852
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 165
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Sun 03. Apr 2005 19:20

END skrifaði:
Daz skrifaði:Edit: svo efast ég um að tölvuvirkni setji saman vélbúnað keyptan hjá öðrum aðilum.

Af hverju ekki? Auðvitað setja þeir saman tölvur þó vélbúnaðurinn sé keyptur annars staðar, þeir taka kannski meira fyrir það en ég held samt ekki, þetta er uppgefið verð fyrir samsetningu og stillingu BIOS.


Ég kíkti á síðuna hjá þeim og já það virðist sem þeir setji saman fyrir þig hvað sem er. Gott mál þar.
En hvaða minni er þetta sem þú ert með, ég fann það hvergi á síðunni hjá @tt.




Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Sun 03. Apr 2005 19:34

Daz skrifaði:En hvaða minni er þetta sem þú ert með, ég fann það hvergi á síðunni hjá @tt.


Það er líka ekki selt í Att, heldur Hugveri. Búinn að breyta þessu núna :wink:

Viðbætt: Ég man það reyndar núna að gamla tölvan er með TV-out skjákort, 3dfx Voodoo3 16mb, en það hlýtur að vera lélegra en þetta onboard dæmi, eða hvað?




Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Lau 09. Apr 2005 15:00

Ein spurning: Er öruggt að nota tveggja ára (að mig minnir) IBM Deskstar 40gb harðan disk? Það væri yfirdrifið nóg fyrir allt sem mamma geymir á tölvunni en ég vil ekki eiga á hættu að diskurinn gæfi sig og gögn töpuðust. Eru það kannski óþarfa áhyggjur?

(Þið veltið kannski fyrir ykkur af hverju ég ætli þá að taka svona dýran harðan disk, en mér finnst bara óþarfi að spara nokkra þúsundkalla með því að kaupa miklu minni disk ef hann á að kaupa á annað borð)



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3772
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 134
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Lau 09. Apr 2005 15:18

Nei það er ekki öruggt að nota IBM deskstar diskanna þeir hafa nefninlega viðurnefnið Deathstar alltaf að bila ég verslaði mér einu sinni 40gb Deathstar og hann bilaði eftir viku.
Mæli með að þú kaupir eins öruggan disk og hægt er ef þetta er vinnutölva.




Mr.Jinx
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 394
Skráði sig: Fös 25. Mar 2005 20:37
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf Mr.Jinx » Lau 09. Apr 2005 15:21

Segate :8) Þeir bila Aldrei :!:




Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Lau 09. Apr 2005 15:34

OK, þá held ég mig við Seagate diskinn :wink:




Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Þri 03. Maí 2005 16:40

Hvort er skynsamlegra að taka:

Örgjörvi: Celeron D 335 með viftu 9.919kr. (Tölvuvirkni)
Móðurborð: MSI 661 FM2 LSR (með innbyggðu skjákorti) 6.950kr. (Att.is)
Samtals: 16.869

eða:

Örgjörvi: AMD Sempron 3100+ 9.990 kr. (Hugver)
Vifta: ???
Móðurborð: Abit NF8-V 9.490kr. (Hugver)
Skjákort: Abit Siluro R9250 4.490kr. (Hugver)
Samtals: 23.970kr. (+vifta)

Hvaða viftu ætti ég að taka?
Er þessi vifta nothæf:
http://www.tolvulistinn.is/content.asp?view=detail&code=49e883ecc95ec185b64951e5dddee9a882fa84d28b2de8279aca11faa6d779ea&level=2&top=k%E6lingar&s=%F6rgj%F6rvaviftur
Er ég að eyða of miklu í skjákort, er e-ð annað sem ég ætti frekar að taka undir 5.000kr., eða kaupa notað, eða nota gamalt Voodoo 3 skjákort?

Ég veit að báðar tölvurnar ráða fyllilega við venjulega Office og internetvinnslu en ég er líka að hugsa um að gera góð kaup, sem muni endast til framtíðar. Því spyr ég hvort ég geri betri framtíðarkaup með því að eyða nokkrum þúsundköllum meira í AMD pakkann?




Dust
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Fim 30. Des 2004 15:54
Reputation: 0
Staðsetning: Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dust » Mið 04. Maí 2005 01:44

Sorry langaði bara aðeins að skipta mér af :catgotmyballs en fyrir mitt leiti, þá fer fátt annað í pirrurnar á mér (persónulega) en að heyra floppy drif fara í gang þegar maður startar á tölvunni, og líka þar sem floppy diskar taka ekki meira en 1.44 mb inn á sig og svo notar maður þá nánast aldrei.

Væri þá ekki sniðugt að láta hana kaupa sér usb-lykil sem tekur allavegana um 128 mb inn á sig sem hún getur flutt word skjöl og slíkt yfir í aðrar tölvur.

Fann 3 svona í gamni fyrir þig (kosta svipað og floppy drifið) USB 2.0 128mb hjá Computer og svo 256MB USB 2.0 frá Tölvuvirkni og 128mb USB 2.0 hjá Task

Bara svona hugmynd :megasmile


AMD64 - 3000+1.8ghz@2.4ghz. ASUS A8N-SLI Deluxe. 6800GT. OCZ Platinum EL PC-3200 1024 Dual. OCZ 450w ModStream Psu

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3852
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 165
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Mið 04. Maí 2005 06:37

Dust skrifaði:Sorry langaði bara aðeins að skipta mér af :catgotmyballs en fyrir mitt leiti, þá fer fátt annað í pirrurnar á mér (persónulega) en að heyra floppy drif fara í gang þegar maður startar á tölvunni, og líka þar sem floppy diskar taka ekki meira en 1.44 mb inn á sig og svo notar maður þá nánast aldrei.

:shock:
Aldrei nokkurntíman hef ég heyrt í mínum disklingadrifum í ræsingu NEMA það sé diskur í drifinu. Er ég kannski bara orðinn ónæmur fyrir hljóðinu?



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mið 04. Maí 2005 08:37

Dust skrifaði:en fyrir mitt leiti, þá fer fátt annað í pirrurnar á mér (persónulega) en að heyra floppy drif fara í gang þegar maður startar á tölvunni
Iss, þú ert nú lélegi tölvunördinni :P BIOS/CMOS -> Advanced BIOS settings -> Boot up floppy seek -> Disabled.

Persónulega myndi ég ekki vilja sleppa floppy drifinu




Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Mið 04. Maí 2005 11:48

MezzUp skrifaði:Persónulega myndi ég ekki vilja sleppa floppy drifinu


Sammála, finnst alveg óþarfi að sleppa floppy drifinu, það er LÍKA hægt að nota USB minnislykla,.




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Mið 04. Maí 2005 11:50

Floppy drif er nauðsynlegt til þess að installa Windows inn á SATA harðan disk.




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1825
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Mið 04. Maí 2005 13:09

kristjanm skrifaði:Floppy drif er nauðsynlegt til þess að installa Windows inn á SATA harðan disk.
Er það alltaf eða bara fyrsta skipti? ég gerði það fyrsta skipti sem ég setti tölvuna upp.. og aldrei aftur.. hef formattað 2x síðan...



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6590
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 363
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 04. Maí 2005 13:11

það er náttúrulega ekkert mál að slipstreama sata drivera inní install disk. Annars held ég að ms hafi bætt inn sata driverum með SP1 eða SP2.


"Give what you can, take what you need."


Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1825
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Mið 04. Maí 2005 13:13

gnarr skrifaði:það er náttúrulega ekkert mál að slipstreama sata drivera inní install disk. Annars held ég að ms hafi bætt inn sata driverum með SP1 eða SP2.
ég formatta alltaf svona(er með 160gb) set windows upp með Windows Xp vanilla disk.. (ekki sp1/sp2) á 20gb partition.. Loada windows og bý til 140gb partition úr restinni eftir að ég set sp2 inn.. Nlite virkar aldrei hjá mér.. kemur alltaf einhver error.. Þanniig að mér fiinnst þetta alveg jafn fínnt..




Höfundur
END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Mán 09. Maí 2005 13:39

END skrifaði:Hvort er skynsamlegra að taka:

Örgjörvi: Celeron D 335 með viftu 9.919kr. (Tölvuvirkni)
Móðurborð: MSI 661 FM2 LSR (með innbyggðu skjákorti) 6.950kr. (Att.is)
Samtals: 16.869

eða:

Örgjörvi: AMD Sempron 3100+ 9.990 kr. (Hugver)
Vifta: ???
Móðurborð: Abit NF8-V 9.490kr. (Hugver)
Skjákort: Abit Siluro R9250 4.490kr. (Hugver)
Samtals: 23.970kr. (+vifta)

Hvaða viftu ætti ég að taka?
Er þessi vifta nothæf:
http://www.tolvulistinn.is/content.asp?view=detail&code=49e883ecc95ec185b64951e5dddee9a882fa84d28b2de8279aca11faa6d779ea&level=2&top=k%E6lingar&s=%F6rgj%F6rvaviftur
Er ég að eyða of miklu í skjákort, er e-ð annað sem ég ætti frekar að taka undir 5.000kr., eða kaupa notað, eða nota gamalt Voodoo 3 skjákort?

Ég veit að báðar tölvurnar ráða fyllilega við venjulega Office og internetvinnslu en ég er líka að hugsa um að gera góð kaup, sem muni endast til framtíðar. Því spyr ég hvort ég geri betri framtíðarkaup með því að eyða nokkrum þúsundköllum meira í AMD pakkann?


En hvað segiði um AMD vs. Intel? AMD svolítið dýrari en er það þess virði þess virði?




Hognig
Ofur-Nörd
Póstar: 226
Skráði sig: Fim 14. Apr 2005 14:18
Reputation: 0
Staðsetning: hfj
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hognig » Lau 14. Maí 2005 23:50

í "office" vél hefur intel yfirburði að mínu mati... amd meira leikjavélar... eða bara mitt mat :P veit ekki hvað öðrum finnst :)